Morgunblaðið - 16.12.2007, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 16.12.2007, Qupperneq 50
50 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN EKKI hefur það farið framhjá bókamönnum að út er komin end- urminningabók eða ævisaga Guðna Ágústssonar þingmanns Sunnlend- inga og áður ráðherra. Titill hennar er einfaldlega Guðni og á þá öllum að vera ljóst hver maðurinn er; ekki sízt vegna þess að mynd er á forsíðunni af vel kunnu andliti hans. Annar landskunnur maður, Sigmundur Ernir Rúnarsson, skáld og sjónvarpsmaður, hefur skráð bókina. Eftir nýjustu sölutölum að dæma hefur vel tek- izt, því bókin hefur ver- ið í öðru sæti á met- sölulistum. Hún er „stórskemmtileg lesn- ing“ segir Hrafn Jök- ulsson rithöfundur og annar úr skáldahópi, Pétur Gunnarsson, seg- ir bókina „heiðarlega og hreinskilna.“ Ég trúði því vel og kom raunar ekki til hugar að bókin væri neitt öðruvísi eftir kynnum mínum af Guðna. Því rak mig í rogastanz þegar ég las ritdóm í Morgunblaðinu 6. des- ember síðastliðinn undir fyrirsögn- inni „Ný biskupasaga“. Þarna hafði Jón Þ. Þór lesið og krufið bókina til mergjar og hann þekki ég frá gamalli tíð á Lesbók og einungis sem vand- aðan öndvegismann og ágætan sagn- fræðing. Það kann vel að vera réttur skiln- ingur hjá Jóni Þ. Þór að ekki sé hægt að kalla þessa bók ævisögu í eig- inlegri merkingu þar sem söguhetjan er enn á bezta aldri og í fullu fjöri. Hún sé nær því að teljast minn- ingabók. Ég get ekki séð að það skipti máli hvorn merkimiðann við setjum á bókina; margoft hafa slíkar bækur verið skrifaðar í útlöndum eft- ir mönnum á bezta aldri. „Verst er þó að bókin er ein sam- felld lofrolla, í ætt við biskupa- og heilagra manna sögur miðalda, og lesandinn hlýtur að fá þá hugmynd að Guðni Ágústsson hafi aldrei mis- stigið sig,“ segir þar einnig. Rétt er það að vísu að Guðni notar ekki þetta tækifæri til að úthúða neinum, enda væri það ekki líkt honum. Guðni er afar jákvæður maður og talar ekki einu sinni illa um andstæðinga sína, hvað þá aðra. Gagnrýnandinn telur bókina bera þess merki að hún sé unnin á of skömmum tíma, en hún er rúmar 400 síður. Hann telur einnig að bókin sé „ekki vel skrifuð, textinn ýmist mar- flatur blaðamannatexti eða tilgerð- arlegur og uppskrúfaður.“ Ekki get ég heldur fallizt á það og læt mér helzt koma til hugar að gagnrýnand- inn hafi farið öfugum megin framúr daginn sem hann skrifaði þetta. Hér hafa tveir röskir menn unnið saman og ekki þurft lengri tíma. Sigmundur Ernir er meðal þeirra fjölmiðla- manna sem hvað skí- rasta íslenzku tala og að auki er hann ljóðskáld. Viðmælandi hans er einfaldlega meðal mál- snjöllustu manna á Al- þingi og þótt víðar væri leitað. Ekki er mér málið skylt á nokkurn hátt, nema hvað við Guðni erum góðir kunningjar, báðir Árnesingar og báð- ir sjötti liður frá Jóni bónda Eiríks- syni, sem bjó í Stóru-Mástungu í Eystrihrepp snemma á 18. öld. Rétt er einnig að taka fram að ég hef enga sérstaka samúð með Framsókn- arflokknum og hef aldrei stutt hann. Mér er hinsvegar ekki sama hvað birtist í mínum gamla Mogga og mér leiðist þegar ég rekst á eitthvað þar sem betur mætti fara. Þeir sem hafa mestan áhuga á póli- tík munu telja að hnýsilegast sé að lesa um margháttuð vandræði innan Framsóknarflokksins um það leyti sem Halldór Ásgrímsson var að láta af formennsku. og allt til þess að Guðni var kjörinn formaður flokks- ins. Gætu andstæðingar flokksins jafnvel haft nokkra Þórðargleði af þeim lestri. Minnisstæður er kafli um kynni Guðna og Davíðs Oddssonar, svo og um kynni hans og langt sam- starf við Halldór Ásgrímsson, sem fékk ekki farsælan endi. En mesta ánægju hafði ég af því að lesa kaflana um lífsbaráttu foreldra Guðna, Ágústs Þorvaldssonar og Ingveldar Ástgeirsdóttur, bænda á Brúnastöð- um í Hraungerðishreppi. Auk þess sat Ágúst á Alþingi fyrir Framsókn- arflokkinn á Suðurlandi um tíma. Ágúst mátti heita óþekktur maður þegar hann komst á þing og sigraði óvænt þungaviktarmenn úr flokkn- um eins og Bjarna skólastjóra á Laugarvatni og Þorstein bónda á Vatnsleysu, sem þá var formaður Bændasamtakanna. Mér er Ágúst á Brúnastöðum minnisstæður þótt ég þekkti hann ekki persónulega. Eins og Guðni lýsir í bókinni var faðir hans uppalinn við slíka fátækt á unglingsárum sínum á Eyrarbakka að stundum svalt hann heilu hungri. En ekki var að sjá að það hefði bitnað á honum því mað- urinn var stór og glæsilegur. Hann hafði ekki síður en sonur hans magn- aða útgeislun og djúpa rödd og var orðlagður ræðumaður. Þeim Brúnastaðahjónum varð auð- ið sextán barna, enda samsvaraði Ingveldur bónda sínum að mann- kostum og þreki. Þau bjuggu við þrengsli sem nú þættu óbærileg, en fyrir utan innanbæjarstörf er svo að sjá að hún hafi að mestu leyti annast mjaltir, að minnsta kosti framan af. Það var í upphafi sjötta áratug- arins að sonur þeirra, stubburinn Guðni, byrjaði að sjá út yfir víðáttur Flóans. Hann verður nokkurnveginn samferða vélaöldinni inn í búskap- arsöguna og mér fannst eftirtekt- arvert að lesa um margt sem var ná- kvæmlega eins í mínum uppvexti í Tungunum. En eins og samgöngum var þá háttað í Árnessýslu var óraleið niður í Flóa og við vissum lítið um fólkið á bæjunum þar. Ég er Guðna og Sigmundi Erni þakklátur fyrir að hafa gefið sér tíma til að rifja upp og skrá þessa löngu liðnu daga. Orð í belg um Guðna Gísli Sigurðsson skrifar í tilefni af gagnrýni um ævisögu Guðna Ágústssonar »Hér hafa tveir röskirmenn unnið saman og ekki þurft lengri tíma. Sigmundur Ernir er meðal þeirra fjöl- miðlamanna sem hvað skírasta íslenzku tala og að auki er hann ljóð- skáld. Gísli Sigurðsson Höfundur er blaðamaður, rithöfundur og listamaður og er frá Úthlíð. Í NÆSTUM hvert skipti sem rætt er um sjávarútvegsmál á Ís- landi fylgja því gjarnan miklar til- finningar. Einhverra hluta vegna telja allir sig hafa ástæðu til að hafa skoðun á málinu. Lík- ast til má rekja það til þess að frá því að við vorum börn var okkur kennt að fiskurinn væri sameign allrar þjóðarinnar – það eiga s.s. allir í landinu fisk- inn í sjónum. Engu að síður eru mjög fáir tilbúnir að leggja fram fjármagn sitt og tíma til að veiða fiskinn, verka hann og koma í sölu, þannig að hægt sé að fá eitthvað fyrir þessa ,,sameign“ okkar allra. Þetta er auðvitað alveg frá- bært, þ.e. að það skuli vera silfur í hafinu, enginn nennir að ná í það en allir fá verð- mætið – eða telja sig eiga að fá verðmætið. Auðvitað ætti þetta ekki að vera hug- arfarið. Það er eðlileg- ast að myndaður sé sem raunhæfastur eignarréttur á fiskinum í sjónum (líkt og gert hefur verið með kvótakerfinu) og að þeir sem leggja út tíma og fjármagn til að ná í þessa auðlind fái að njóta af- raksturs erfiðis síns. Einu sinni var fiskurinn nokkurs konar sameign þjóðarinnar. Það var þannig að hver sem var gat farið og veitt hvað sem var, hvenær sem var. Þetta kerfi reyndist ekki vel eins og flestir menn vita. Til að leysa úr þeim vanda og stjórnleysi sem ríkti var sett á kerfi sem við daglega þekkjum sem kvótakerfi. Kerfið hef- ur reynst vel en eins og alltaf er með frjáls viðskipti eru sumir óánægðir. Ég hef alltaf sagt að fólk hafi auð- vitað frelsi til að hafa skoðun á hlut- unum. Kvótakerfið er ekki heilagt og það er sjálfsagt að fólk hafi skoð- un á því. En kvótakerfið er ein- hverra hluta vegna eitt mesta til- finningamál sem um getur hér á landi. Oftar en ekki er umræða um það byggð að mestu leyti af tilfinn- ingum – bæði góðum og slæmum – en ekki raunsæi eða rökhyggju. Um leið og við fáum fréttir af því að bátur eða kvóti hafi verið ,,seldur úr bænum“ eða fiskvinnslustöð lok- að verður allt vitlaust. Upp sprettur umræða um hið óréttláta kvótakerfi sem er að eyðileggja heilu bæj- arfélögin og fleira í þeim dúr. Alveg er látið liggja milli hluta hvert ,,kvót- inn fer“ og hvað það gerir fyrir það bæjarfélag sem ,,fær kvótann.“ En við skulum spyrja okkur; er fiskur í saltvatninu kringum landið meiri sameign þjóðarinnar en fisk- urinn í íslensku ferskvatni? Er fisk- urinn í sjónum meiri sameign þjóð- arinnar en sú þekking sem menn flytja úr landi daglega dýru verði? Er fisk- urinn í sjónum meiri sameign þjóðarinnar en jarðir og lönd sem ganga kaupum og söl- um? Hvað er það sem fær menn til að halda að ,,allir“ eigi fiskinn í sjónum? Hvar eru all- ar tilfinningarnar gagnvart öllum hinum auðlindunum? Það er eðlilegt að lögmál hins frjálsa markaðar fái að njóta sín í fiskveiðistjórnun. Þannig næst hag- kvæm nýting á auð- lindinni. Við þurfum að leggja tilfinning- arnar til hliðar. Sjáv- arútvegur er aðeins ein margra starfs- greina í landinu. Gall- inn er auðvitað sá að mörg sveitafélög hafa sett öll eggin í sömu körfu, ef svo má að orði komast, með því að treysta jafnvel á að- eins eitt fyrirtæki í bænum og þá gjarnan útvegsfyrirtæki. Þess vegna fer gjarnan mikið fyrir lokun slíkra fyrirtækja og skal ekki gert lítið úr því hér. Skiljanlega er það mikið áfall fyrir lítil þorp þegar fyrirtæki leggja niður starfsemi. Það er alltaf erfitt, hvort sem það er verslunin, dekkjaverkstæðið eða útgerðin sem hættir eða færir sig um set. Óréttlátt er að refsa útgerðinni í hvert sinn sem breytingar verða en telja allar aðrar breytingar eðlileg- ar. Óþarfi er að stjórnmálamenn haldi heilu ræðurnar í kjölfarið til að segjast ætla að endurskoða kerf- ið án þess að ætla sér það í raun. Aldrei heyrir maður stjórnmála- mann halda ræðu til að komast í fréttirnar þegar verslun eða öðru fyrirtæki er lokað. Þá koma engar raddir um að endurskoða atvinnu- starfsemina. Hins vegar þarf sjáv- arútvegurinn ávallt að fá að kenna á þessum skoðunum þegar ein- hverjar breytingar verða. Frelsi til breytinga og aðlögunar styrkir fyrirtækin sem starfa á markaði og eykur til muna öryggi starfsfólks og þeirra þorpa þar sem fyrirtækin starfa. Styðja á því við frelsi útgerðarfyrirtækja frekar en að reyna að setja því hömlur. Tilfinningar í sjávarútvegi Gísli Freyr Valdórsson skrifar um sjávarútvegsmál Gísli Freyr Valdórsson » Það er eðli-legt að lög- mál hins frjálsa markaðar fái að njóta sín í fisk- veiðistjórnun. Þannig næst hagkvæm nýt- ing á auðlind- inni. Höfundur situr í stjórn Félag ungs fólks í sjávarútvegi. FJALLALIND 141 - 201 KÓPAVOGUR Glæsilegt 235,1 fm. 7 herbergja einbýlishús með innbyggðum bílskúr á besta stað í Lindahverfinu í Kópavogi. Húsið er á tveimur hæðum og er allt hið vandaðasta. Möguleiki er á að nota hluta af neðrihæð sem aukaíbúð með sér- inngangi. Parket og flísar á gólfum, eikarinnréttingar frá Brúnás. Svalir útfrá stofu á efrihæð. Glæsilegt útsýni. Stutt í skóla, leikskóla svo og alla almenna þjónustu. Verð 74,9 millj Halldór Jensson Viðskiptastjóri halldor@domus.is s. 840 2100/440 6014 m bl .9 49 51 1 www.atvinnueignir.is 534 1020 Stærðir: 110 fm ti l 5.000 fm - Til leigu og sölu Til leigu. 175 fm fyrir léttan iðanað eða lager. Innkeyrsludyr. Snyrtilegt húsnæði. Til afhendingar strax. Uppl. gefa Helgi 663-2411 og Ólafur 824-6703 Helgi Bjarnason, viðskiptafræðingur, MBA, löggiltur leigumiðlari og löggiltur fasteignasali Ólafur Jóhannsson, rekstarfræðingur, löggiltur leigumiðlari og löggiltur fasteignasali Skútuvogur, 104 Rvk Erum með mörg iðnaðar- og lagerhúsnæði á skrá. Ræddu við okkur um hvaða þarfir þú hefur. Upplýsingar gefa Helgi 663-2411 og Ólafur 824-6703 Iðnaðar- / lagerhúsnæði mbl.is ókeypis smáauglýsingar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.