Morgunblaðið - 16.12.2007, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 16.12.2007, Qupperneq 54
54 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN PRÓFESSOR Baldur Þórhalls- son ritar „Álit“ í 24 stundir á Ambrosíusmessu síðastliðinni. Þar fjallar hann um trúboð og skólastarf og rekur áhrif upplýsingarstefn- unnar í þessu sambandi til þeirrar niðurstöðu, að kirkjan hafi að mestu dregið sig út úr skólastarfi. Að áliti prófessorsins linnti þá „bábiljum“ kirkju- legrar innrætingar í skólum og „áróðri gegn skapandi og gagnrýnni hugsun“. „Farið var í vaxandi mæli að greina á milli veraldlegs og andlegs valds“, segir þar. Prófessor í stjórn- málafræði hefði vel mátt geta þess í svona yfirliti, að aðskilnaður andlegs og veraldlegs valds, er ein helzta krafa og ávöxtur Lúthersku siðbót- arinnar og að upplýsingarstefnan á þangað sjálf rætur að rekja. Hitt er þó alvarlegra, að hann getur þess alls ekki í greininni, að það voru einmitt prestar kirkjunnar, sem nær einir sinntu allri uppfræðslu hjerlendis um aldir. Þeir bjuggu pilta undir skóla og á 19. og um framanverða 20. öld sinntu þeir barna- og unglingafræðslunni um land allt. Þeir kenndu á heimilum sínum og stofnuðu sjálfir og ráku skóla. Helztu frumkvöðlar að allri alþýðumenntun og almennings- skólum voru einmitt þeir hinir sömu þjónar Þjóðkirkjunnar, sem í grein prófessorsins fá þá einkunn, að vera „engan veginn best til þess fallnir að kenna trúarbragðafræði og túlka þar með önnur trúarbrögð á sínum forsendum“. Ætli prófessor Sigurbjörn Ein- arsson hafi ekki einna fyrstur kynnt Íslendingum önnur trúarbrögð, þegar hann tók saman rit sitt um helztu trúarbrögð heimsins. Engan hefi eg heyrt halda því fram, að þar hafi hann hallað á önnur trúar- brögð, þrátt fyrir það að vera vígð- ur Þjóðkirkjunnar þjónn. Á sama hátt hygg eg það vera nýmæli, þeg- ar því er nú haldið fram, að alþýðu- uppfræðsla prestanna og forganga um alþýðumenntun hafi ekki verið annað en bábiljuinnræting og áróð- ur gegn skapandi og gagnrýnni hugsun. Prófessor Baldur fullyrðir að ekki sje langt síðan að „mikið þurfti til að yfirmenn kirkjunnar féllust á að konur stæðu körlum jafnfætis innan kirkj- unnar og í samfélag- inu“. Ekki kannast eg við nein veruleg átök um það, að konur tækju vígslu til prests- embættisins í Þjóð- kirkjunni. Það gjörðist raunar áður en eg varð sjálfur kirkjunnar þjónn, held eg, en varla hefðu slík átök farið fram hjá mjer, hefðu þau orðið. Konur hafa mjög lengi setið í sóknarnefndum, oft sem oddvitar þeirra. Oft hafa þær líka verið þar í meirihluta. Aldrei hefi eg heyrt um átök í þessu sambandi. Aldrei hefi eg heyrt klerk tala gegn þátttöku kvenna á opinberum vettvangi. Öðru nær. Mjer er því öldungis hul- ið, hvað prófessorinn á við með til- vitnaðri fullyrðingu. Loks ritar prófessor Baldur; „Einnig hafa nokkrir forvígismenn kirkjunnar, með biskupinn í broddi fylkingar, ráðist með skömmum og fyrirlitningu á samkynhneigða og fjölskyldur þeirra“. Alveg hefur þetta farið fram hjá mjer. Hefi eg þó reynt að fylgjast með þessari umræðu. Um hitt er mjer kunnugt, að Þjóðkirkjan var skömmuð fyrir það af hálfu ýmissa sjertrúarhópa að leggja þessa kynhneigð að jöfnu á við gagnkynhneigð, þegar Synod- an samþykkti það í Borgarnesi á 9. áratug síðustu aldar, „að skora á alla menn jafnt samkynhneigða sem gagnkynhneigða að sýna ábyrgð í kynlífi“. Hvatinn að samþykktinni var eyðnin, sem þá var einkum talin ógna samkynhneigðum. Með sam- þykktinni var kirkjan talin veita „öðruvísi“ kynlífi viðurkenningu. Eg talaði fyrir þessari samþykkt á sín- um tíma og man ekki til þess að hart væri talað gegn henni annars staðar en hjá sumum sjer- trúarhópum, sem voru einir um framangreinda túlkun. Eg fagnaði líka þeirri rjettarbót, sem felst í lög- unum um staðfesta samvist og var ekki einn presta um það. Engan man eg, er í móti mælti. Engan prest hefi eg heyrt veitast að heim- ilum og fjölskyldum samkyn- hneigðra, allra sízt biskupinn. Hitt kannast eg við , að vörn okkar fyrir sjerstakri stöðu hjúskapar karls og konu sje afflutt. Það virðist mjer prófessorinn gjöra hjer, hafi hann yfirhöfuð eitthvað fyrir sjer í ofan- greindri fullyrðingu annað en and- úðina gegn kirkjunni, sem hvar- vetna lýsir af málflutningi hans. Hún kemur ljóst fram í því að kalla það trúboð í skólum, þegar kirkjan tók upp vinaleiðina, til að koma ung- mennum til liðs í skólunum og vinna gegn einsemd, einelti, freistingum skaðnautna og öðru því, sem íþyngir og skaðar fólk á viðkvæmu þroska- skeiði. Málflutningur prófessors Baldurs Þórhallssonar í grein sinni um trú- boð og skólastarf er ósæmilegur þeirri akademiu, sem hann þjónar. Sjálfum er hann honum til minnk- unar. Loks er hann allri alþýðu manna til áminningar um að bera ekki ljúgvitni gegn náunganum. Reykholti á Maríumessu á Að- ventu 2007. Sitt sýnist hverjum Geir Waage gerir athugasemd við grein Baldurs Þórhalls- sonar sem birtist í 24 stundum. »Málflutningur pró-fessors Baldurs Þór- hallssonar í grein sinni um trúboð og skólastarf er ósæmilegur þeirri akademiu, sem hann þjónar. Sjálfum er hann honum til minnkunar. Geir Waage Höfundur er sóknarprestur. SÚ kredda að fylling Hálslóns valdi jarðhræringum, sem endi með eldgosi, er orðin átrúnaðarspá líkt og heimsendaspá bókstafstrúaðra. Kennifaðir spádóms- ins er Páll Einarsson. Virtasti og lærðasti jarðeðlisfræðingur landsins segja áhang- endur kreddunnar. Páll birti þjóðinni spádóm sinn í sjón- varpsviðtali í haust. Nokkru fyrir spá- dóm Páls í sjónvarp- inu heyrði ég viðtal Sigurðar Tómassonar við hann á útvarpi Sögu. Þá sagði Páll að upptök jarðskjálft- anna væru á 20–30 km. dýpi í 20 km. fjar- lægð frá Hálslóni. Hann sagði að ef jarð- hræringar yrðu vegna fargs í Hálslóni ættu þær að eiga upptök í jarðflekanum, sem væri 6–8 km. þykkur á þessu svæði. Að lokum upplýsti hann að engin vís- indaleg þekking styddi þá tilgátu að farg í Hálslóni ylli jarðhræringum á 20–30 km. dýpi og síst í 20 km. fjarlægð. Hann fullyrti þó að fylgni væri þarna á milli! En nefndi ekki að það var líka fylgni við gengi krón- unnar. Einn og hálfur millimetri Þessar kílómetratöl- ur verða skiljanlegri ef þær eru settar í hlutfallakvarða, og svo vel vill til að vinstri síða Morgunblaðsins er tilvalin fyrir þann hlutfallakvarða. Efst á vinstri síð- unni er blaðsíðutal, vikudagur og mán- uður. Þar undir er lína þvert yfir síðuna. Þá línu má hafa sem yfirborðslínu jarðar og nota þann kvarða að einn senti- metri jafngildi einum kílómetra. Við byrjum á að teikna Hálslónið. Það gerum við með því að teikna v-myndað hak undir línuna neðan við R-ið í mánaðarheitinu desember. Hakið má bara ná 1,5 millimetra niður. Það samsvarar 150 metra dýpi. Næst merkjum við upptök skjálftanna (20–30 km. dýpi) með því að teikna depil við kjölinn á blaðinu rúma dálkbreidd neðan við miðja síðu. Páll upplýsti að skjálftar af fargi í Hálslóni ættu að eiga upptök í jarðskorpunni, sem væri um 6–8 km. þykk á þessum stað. Því teikn- um við þykkt jarðskorpunnar. Það gerum við með því að draga línu þvert yfir blaðið rúma dálkbreidd neðan við yfirlínuna á síðunni, þá sjáum við þykkt jarðflekans í hlut- falli við lónið og upptök skjálft- anna. Þegar málið er þannig skoðað í réttum hlutföllum, þarf engan að undra þó Páll Einarsson segði að vísindin gætu ekki tengt saman vatnshæð í Hálslóni og jarðhrær- ingar minnst 12 km neðar en jarð- flekinn er við Upptyppinga. Stórir möskvar Síðar heyrði ég og sá Pál Ein- arsson í sjónvarpi þegar hann birti þau „vísindi“, að það væri greini- leg fylgni milli hækkunar í Háls- lóni og jarðhræringanna við Upp- typpinga, sem örugglega enduðu með eldgosi. Páll sleppti þá að segja sem áður, að engin vís- indaleg þekking styddi fylgni þar á milli. Ég efast ekki um prófgráður Páls Einarssonar, en þykir miður hvað vísindamaðurinn leyfir sér stóra möskva þegar hann velur ná- kvæmni fyrir vísindi sín. Hálslón, jarð- hræringar og eldgos Birgir Dýrfjörð skrifar um jarðhræringar við Hálslón »Ég efast ekkium próf- gráður Páls Einarssonar, en þykir miður hvað vísinda- maðurinn leyfir sér stóra möskva þegar hann velur ná- kvæmni fyrir vísindi sín. Birgir Dýrfjörð Höfundur er í flokksstjórn Samfylkingarinnar. FRÓÐENGI - MEÐ VERÖND Sérstaklega glæsileg, 4-5 herbergja íbúð á 1. hæð við Fróðengi 14. Íbúðin skiptist þannig: stofa, borðstofa, eldhús, baðherbergi, þrjú herbergi, þvottahús, geymsla og forstofa. Sérgeymsla fylgir í kjallara. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara. Bílskúr fylgir íbúðinni (24 fm). Sólpallur út frá stofu fylgir íbúðinni. 7237 ÁRMÚLI - TIL LEIGU 2. HÆÐIN Um er að ræða glæsilegt, 455 fm skrifstofuhúsnæði sem skiptist í 20 skrifstofur, eitt fundaherbergi, tölvuherbergi, eldhús, starfsmannaaðstöðu, snyrtingar og móttöku. Húsnæðið er innréttað með léttum innréttingum og auðvelt er að breyta skipulagi. Stigi er upp á hæðina sem er björt og eru gluggar á allar hliðar. Næg bílastæði eru við húsið. Nánari upplýsingar veitir Hákon Jónsson lögg. fasteignasali. 7233 BÚSTAÐAVEGUR 4ra herb. falleg og björt, 95,2 fm íbúð á 2. hæð. Íbúðin skiptist í tvær samliggjandi stofur, 2 herbergi, eldhús og bað auk geymslna Yfir íbúðinni er manngengt ris sem möguleiki er á að lyfta og stækka íbúðina verulega. Þessi íbúð býður því upp á mikla möguleika. V. 27,0 m. 7240 VÍÐIMELUR - RÉTT VIÐ HÁSKÓLAN Falleg ca 50 fm, 2ja herberja íbúð í þríbýli. Íbúðin er í kjallara og hefur verið mikið endurnýjuð og skiptist í anddyri, stofu, eldhús, baðherbergi og svefnherbergi. 7238 HAGAMELUR - SÉRHÆÐ 5 herbergja, vel skipulögð, 117,2 fm, neðri sérhæð í fallegu húsi sem nýlega er búið að standsetja. Hæðin skiptist í forstofu, forstofuherbergi, hol, tvær samliggjandi stofur, eldhús, barnaherbergi, hjónaherbergi og baðherbergi. Tilboð 7241
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.