Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 60

Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 60
60 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Í HERSTÖÐINNI í Hvalfirði eru sögulegar minjar frá stríðsárunum, og eru þær til sölu fyrir slikk, og nið- urrifs. Þarna er um að ræða eina braggahverfið sem enn er til í land- inu. Saga þessara hverfa var lengi feimnismál í Reykjavík, og þó er sú saga öll hin merkilegasta, og þó sumum finnist undarlegt, þá mega Reykvíkingar minnast hennar með stolti. Í braggana flutti fólk, sem átti ekki í annan stað að venda. Harð- duglegt fólk, sem átti sér draum um betra líf í betra umhverfi, og það lét ekki á sér standa við að gera þennan draum að veruleika. Smám saman fóru þessi hverfi að minnka, og að lokum hverfa alveg, þegar íbúarnir fluttu sig um set, undir nýtt þak, sem þeir höfðu byggt yfir höfuðið. Þetta voru fátækrahverfi, rétt eins og í svo mörgum borgum er- lendis, sem eru í örum vexti. En ólíkt því sem gerist alls staðar erlendis, þá voru þessi hverfi ekki til orðin til að vera. Í dag heyra þessi svæði sög- unni til, stoltri sögu um fólk sem hvorki trúði, að það ætti eftir, né vildi búa þar með sér og sínum. Þar sýndu Reykvíkingar að Reykjavík er ekki eins og aðarar borgir í heim- inum, og mega vera stoltir af. Ég var með mörgum krökkum úr Camp Knox, Tripoli Camp, og hvað þeir hétu nú allir, sem engin merki sjást um lengur. Ég þekkti mörg þeirra vel, og kom oft heim til þeirra, og aldrei kynntist ég uppgjöf eða skorti á sjálfsvirðingu hjá þeim. Stundum, þegar ég hugsa til baka, þá gæti ég ímyndað mér, að þau hafi öfundað okkur sem ekki ólumst upp í bröggum, en hitt veit ég, að ég get öfundað þau af þeim krafti og dugn- aði sem þau hafa sýnt gegn um árin, og hafið upp sögu Reykjavíkur. Ég skora hér með á landsmenn alla að friða braggahverfið í Hval- firði, svo það geti ávallt minnt okkur á hvað býr í þessari þjóð. KRISTJÁN HALL, fyrrum og ávallt Vesturbæingur, Langholtsvegi 160, Reykjavík. Eyðing sögulegra minja í Hvalfirði Frá Kristjáni Hall HVASSALEITI M/AUKAÍBÚÐ Í LEIGU GLÆSILEGT PARHÚS - LAUST STRAX SÍMI 5 900 800 Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali. M b l 9 49 81 3 Til sölu þetta reisulega 336 fm parhús á þessum eftirsótta stað. Um er að ræða tvílyft hús með tvær jafnstórar hæðir ásamt jarðhæð/kjallara með sér fullbúinni 3ja herb. íbúð með sérinngangi/einnig innangengt. Er í útleigu með mjög góðum leigutekjum. Vandaðar innréttingar, gólfefni og tæki. Stór herbergi og stofur. Suðursvalir og suðurgarður með sólpöllum og skjólgirðingum. Hiti í hellulögðu bílaplani. Stutt í alla þjónustu. Húsið er til afhendingar strax. Uppl. Ólafur B Blöndal í 6-900-811. Fallegt og vel skipulagt 162 fm. einbýlishús ásamt tvöföldum 49,6 fm bílskúr. Húsið stendur í rólegri botnlangagötu neðst í flötunum á þessum eftirsótta stað. Lóðin er um 1160 fm og mjög gróin og falleg. Húsið stendur á 1152 fm lóð og skv. nýju deiliskipulagi má byggja allt að 200 fm við húsið. Verð 67 millj. Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali. Bakkaflöt - Garðabæ Mb l 95 00 23 Til útleigu um 1.850 fm í húsi sem er mjög vel staðsett og þekkt. Um er að ræða hluta jarðhæðar sem er mjög gott verslunarrými, 6. og 8. hæð hússins. Á 5.. hæð eru skrifstofur, fundarsalir, snyrtingar og eldhús. Á 8. hæð er stór matsalur, vinnusalir, fundarsalur o.fl. Hæðin gæti einnig hentað sem skrifstofur. Mjög stórar svalir eru á 8. hæðinni en á 5.hæð eru einnig góðar svalir. Á jarðhæð er gott verslunarrými. Fjöldi bíla- stæða er við húsið, m.a. í bílageymslu. Húsnæðið verður laust um næstu áramót. Allar nánari upplýsingar gefa Þorleifur St. Guðmunds- son og Hákon Jónsson, löggiltir fasteignasalar á Eignamiðlun. Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali. Holtasmári 1 - til útleigu - vandað skrifstofu og verslunarhúsnæði Mb l 95 01 10 UNDANFARIÐ hefur talsvert verið fjallað um stjórnunarvanda Landspítalans þar sem yfirstjórn- in er sökuð um að ráða fólk í ábyrgðarstöður án auglýsingar og hæfnismats. Um þetta hefur einn- ig verið rætt í ljósvakamiðlunum. Á spítalanum starfa nálægt 5.000 manns þar sem sennilega vel flest- ir hafa sína skoðun á þessum þætti í stjórnun spítalans. Þar er ég engin und- antekning. Ég ætla hinsvegar ekki að hætta mér út á þenn- an ís. Ég er upptek- inn af öðrum þáttum. Samtímis þessari umræðu berast þær upplýsingar frá læknaráði spítalans að starfsemin sé um það bil að komast í fjárhagslegt þrot. Allt hafi verið gert sem hægt er til að hagræða. Á fjárlögum yfirstand- andi árs voru spítalanum ætlaðar rúmlega 32.100 milljónir í rekst- urinn en samt vantar 1.800 millj- ónir til að endar nái saman í lok ársins. Fjáraukalögum ársins 2007 er ætlað að dekka þennan kostn- aðarauka. Í fjárlögum næsta árs er gert ráð fyrir aukningu upp á 882 millj. miðað við yfirstandandi ár. Þetta segir okkur að heildarfjárveiting til spítalans á næsta ári muni verða nálægt 33.000 milljónir. Eftir standa 1.000 milljónir sé miðað við þá upp- hæð sem spítalinn kemur til með að eyða á árinu 2007. Með öðrum orðum þá er kostnaður við rekst- urinn á árinu 2007 34.000 milljónir en fyrir árið 2008 er honum ætlaðar 33.000 milljónir. Þarna vantar því 1.000 milljónir bara til að hafa jafn mikið fé í reksturinn á næsta ári og hann hefur kostað á yf- irstandandi ári. Ekki lái ég nein- um sem finnst þetta háar tölur. Ég er sjálfur í þeim hópi. En það sem ég hef kannski fram yfir það fólk sem stendur fyrir utan að ég er einn af þeim sem vinna á spít- alanum og hef þar af leiðandi kannski betri möguleika á að gera mér grein fyrir í hvað allir þessir peningar fara. Það er þessi þáttur sem mig langar að draga fram í dagsljósið. Háskammtalyfjameðferð með stofnfrumustuðningi Vorið 2003 ákvað þáverandi heilbrigðisráðherra Jón Krist- jánsson að bæta við tveimur nýj- um meðferðarúrræðum á Land- spítalanum. Annað var nýrnaflutningur á milli skyldra einstaklinga þar sem nýra var tek- ið úr heilbrigðum gjafa og flutt í sjúkling sem er með ónýt nýru. Hitt var háskammtalyfja- meðferð með stofnfrumustuðningi. Mig langar að fræða þig, lesandi góður, aðeins nánar um seinni þáttinn. Um er að ræða verkefni sem unnið er af blóðlækningadeild og Blóðbankanum. Flest vitum við að illkynja krabbamein eru meðhöndluð með frumudrepandi lyfjum og/eða geislum. Þar eru oft þræddir þröngir stígar, stigin eins konar línudans. Gefa þarf sjúklingi með- ferð sem nægir til að eyða mein- inu en ekki svo mikla að aðrar hraðvaxandi frumur verði fyrir of miklum skakkaföllum. Í mörgum tegundum krabbameina gengur þetta vel og sjúklingur fær var- anlegan bata. En því miður geng- ur dæmið ekki upp í öllum til- fellum. M.ö.o. þá hefur ekki tekist að eyða öllum illkynja frumum og meinið tekur sig upp að nýju. Það er á þessu stigi sem gripið er til svonefndrar há- skammtalyfjameðferðar með stofnfrumustuðningi. Það skal tekið fram að ekki er hægt að beita þessu á allar tegundir krabbameina. Aðallega er þessu beitt gegn eitlakrabbameini, mergfrumuæxli og í einstaka til- fellum gegn hvítblæði. Meðferðin felur það í sér að stofnfrumur fyrir blóðmyndandi vef eru ein- angraðar úr blóði sjúklings í sjúkdómshléi, þær frystar og geymdar í fljótandi köfnunarefni. Ég segi stundum við sjúklingana. Ég passa fræin þín eins og sjá- aldur auga míns. Síðan þegar læknir sjúklingsins ákveður fær hann stærri skammt af lyfjum og/eða geislum en nokkru sinni í þeim tilgangi að eyða öllum þeim illkynja frumum sem kunna að vera eftir. Sam- tímis krabbameinsfrumunum eyðist blóðmyndandi vefur. Að þessari meðferð lokinni fær sjúk- lingurinn sínar stofnfrumur til baka. Þeim er ætlað að hjálpa sjúklingnum yfir þann þröskuld sem meðferðin bjó til og koma ónæmiskerfinu í gang að nýju. Hér er um að ræða meðferð- arform sem er erfitt, langt og flókið bæði fyrir fyrir sjúkling- inn og okkur sem vinnum verk- in. Þetta hefur verið í gangi í rétt fjögur ár. Reynslan sýnir að árangurinn er mjög góður og fyllilega sambærilegur við það sem best gerist í löndunum í kringum okkur. Upphaflega var gert ráð fyrir þessari meðferð yrði beitt á sex til átta sjúklinga á ári. Raunin hefur hinsvegar orðið allt önnur. Fyrsta árið voru þeir 14 og í ár verða sjúk- lingarnir 25 sem hefja meðferð. Mín vinna felst í því að kanna hvort frumurnar sem safnað er rísi undir nafni og þannig leiða að því líkur, hvort þær muni verða hæfar til að sinna því hlutverki sem þeim er ætlað eft- ir stofnfrumuígræðsluna. En hvað skyldi þetta kosta? Ekki veit ég það nákvæmlega en það eru ábyggilega einhverjar millj- ónir fyrir hverja meðferð. Og vera svo hissa á því að spítalinn fari fram úr fjárheimildum þeg- ar þróunin er þessi. Sennilega er þetta ekkert einsdæmi. Þú sem kannt að lesa þessar línur og ert vonandi svo lánsamur að hafa kannski aldrei þurft á þjónustu spítalans að halda, hugsaðu aðeins málið. Það er hollt fyrir okkur öll að velta þessum þáttum í samneyslunni fyrir okkur. Kostnaður við rekstur Landspítalans, hvert viljum við stefna? Þróun og notkun nýrra lyfja eykur bata en kosta peninga segir Leifur Þorsteinsson » Það er hollt fyrirokkur öll að velta því fyrir okkur hvað býr að baki þeim verkum sem unnin eru á Landspít- alanum. Leifur Þorsteinsson Höfundur er líffræðingur og starfar í Blóðbankanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.