Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 61
HUGVEKJA
K
æru lesendur.
Skæð veira hefur
skotið sér niður í
samfélaginu. Hún
smitast með lofti og
snertingu og á ýmsan hátt annan
og breiðist nú óðfluga á milli fólks,
leitar einkum á hjartað og tung-
una, en getur þó einnig ráðist á
sálina. Þessi aðskotahlutur, sem
kallaður er „Veira aðventu og
jóla“, er af þeim sem gerst þekkja
til álitinn mikill vágestur sem sam-
félaginu stafar veruleg ógn af.
Gangi verstu spár eftir gæti hún
grafið undan stoðum mannlegs lífs
eins og við þekkjum það. Það er
því nauðsynlegt að ráða nið-
urlögum hennar hið allra fyrsta.
Til þess að svo megi verða þurfa
allir að taka höndum saman í bar-
áttunni.
Veiran hefur ekki síst látið á sér
kræla í opinberum stofnunum. Í
þessum töluðu orðum er verið að
setja leikskóla í sóttkví til verndar
yngstu kynslóðunum, enda er hún
talin þeim afar skeinuhætt, og
jafnframt er verið að rannsaka
aðrar stofnanir samfélagsins, m.a.
grunnskóla, því allur er jú varinn
góður. Sumstaðar er þegar búið að
hreinsa út, þar sem hún hafði náð
að stinga inn fæti.
Annað eins hefur ekki sést lengi
og kannski aldrei. Að vísu eru spor
hennar um Íslandssöguna þvera
og endilanga, en núna er hún víst
svæsnari og voðalegri ásýndum en
fram til þessa, alveg ægilega ljót,
að sögn áðurnefndra greinenda.
Því ríður á að uppræta hana, og
helst í eitt skipti fyrir öll, ef við
eigum að geta lifað sem heilbrigð
þjóð á komandi öldum. Raunar er
mesta furða – og eiginlega óskilj-
anlegt með öllu – að okkur skuli
hafa tekist að þreyja hingað til, en
einhverra hluta vegna er það svo,
og út af fyrir sig verðugt rann-
sóknarefni, og mun eflaust verða
skoðað, auðnist okkur að sleppa
undan þessum skaðræðisklóm,
hramminum sem yfir vofir.
Allir eru beðnir um að vera á
varðbergi fyrir einkennum téðrar
veiru. Kenni fólks sér einhvers
meins er það hvatt til að leita sér
undir eins hjálpar á viðeigandi
stofnunum.
Einkennin og fylgikvillarnir
geta verið eftirfarandi:
Von, gleði og kærleikur taka að
gera vart við sig, og almenn til-
hlökkun og eftirvænting.
Bros kviknar á vörum, jafnvel
hlátur í brjósti og eitthvað enn
verra eftir því sem á líður.
Almenn bjartsýni festir rætur
og tekur að blómstra og dafna.
Myrkrið er ekki lengur svart
eða neitt til að óttast.
Augljós geta er til að njóta líð-
andi stundar.
Fólk kann að fara að sjá tilgang
og markmið með lífinu.
Áhyggjur fara minnkandi (þetta
er mjög alvarlegt einkenni).
Alltumfaðmandi væntumþykja
brýst fram, eins og sól gegnum
skýin.
Vaxandi tilhneiging er til að
rétta öðrum hjálparhönd og láta
gott af sér leiða.
Dvínandi áhugi er á að dæma
fólk og hæðast að því. Hrokinn
og fyrirlitningin láta m.ö.o. und-
an síga og hverfa algjörlega að
lokum, sé ekkert að gert.
Fólk kann að finna fyrir
ánægjulegri þörf til að setja sig
í samband við annað fólk, jafn-
vel fólk sem það hefur ekki séð
lengi.
Fjölskyldutengsl kunna að
styrkjast.
Sú tilhneiging að setja aðra en
sjálfan sig í fyrirrúm kann að
aukast.
Fólk hættir að bölva og ragna,
gætir sín á því hvað það lætur
út úr sér.
Áhugi vaknar hjá ólíklegustu
einstaklingum á andlegum
verðmætum, og m.a. því að
sækja kirkju (þetta er samt
ekki algilt, en er ein af skemmd-
um eða meinvörpum hæsta
stigs veirunnar, einkum ef
menn fara jafnframt að raula
sálma og taka á annan hátt þátt
í guðsþjónustum eða öðru helgi-
haldi).
Félagsleg truflun er mikil. Að
sjá þetta allt, þ.e.a.s. breyting-
arnar, getur nefnilega auðveld-
lega smitað annað fólk.
Yfirþyrmandi einkenni þakk-
lætis. Sumir missa sig meira að
segja alveg og falla á kné í auð-
mýkt og lotningu fyrir almætt-
inu. Varla þarf að taka fram að
þá er fátt til bjargar.
Besta meðalið gegn þessum
ósköpum er að reyna að halda sig
eins fjarri Guði kristinna manna
og hægt er, sem og orði hans og
öllu því öðru sem hann tengist.
Annað ráð er að leggja einfaldlega
ekki inn á braut aðventunnar með
jákvæða, fallega og góða hugsun í
farteskinu, hvað þá meira, og að
forðast öll ljós, einkum ef þau
kunna að varpa frá sér trúarlegum
geislum, eins og t.a.m. Betlehem-
stjarnan. Annars mun illa fara.
Vinsamlegast komið þessum
skilaboðum áleiðis til sem allra
flestra.
Púff, maður!
Aðvörun
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Ekki er það gott, og
því rétt að láta vita af
þessu strax, enda er
heill íslensku þjóð-
arinnar í veði. Sig-
urður Ægisson aflaði
sér frétta um málið og
eftirfarandi er skýrsla
hans, unnin fyrir örfá-
um dögum.
Atvinnuhús ehf • Atli Vagnsson hdl., lögg. fasteignasali
Hverfisgata 4 • 101 Reykjavík • Sími: 561 4433 / 698 4611
atli@atvinnuhus.is
Mi›hraun 172 fm. og 177 fm.
Tveir samliggjandi eignarhlutar seljast hvor í sínu lagi, e›a saman.
1. I›na›arhúsnæ›i á götuhæ› 172,8 fm. nota› fyrir vörulager.
2. I›na›arhúsnæ›i á götuhæ› 177,6 fm. nota› fyrir vörulager.
Eignarhlutanum fylgir skrifstofuhúsnæ›i á 2. hæ› 112 fm.
Sundaborg 1.320 fm.
Til sölu I. flokks lager- verslunar- og skrifstofuhúsnæ›i. Um er a› ræ›a 6 eignarhluta,
sem má nota hvern í sínu lagi e›a alla saman, eins og gert er í dag.
Nor›lingabraut 3.100 fm.
N‡bygging á hönnunarstigi, sem selst fullbúin til afhendingar innan eins árs. Gert er rá›
fyrir a› u.fl.b. 2/3 hlutar hússins ver›i lagerr‡mi me› 8-10 metra lofthæ› og 1/3 hluti ver›i
fyrir skrifstofur og fljónustu, en flessum hlutföllum má breyta. Framhli› hússins ver›ur
bogadregin og ríkulega klædd gleri. Bílastæ›akjallari.