Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 74
74 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ÞARF
HJÁLP
ÞÚ ERT
LATUR
ÉG ÞARF HJÁLP VIÐ ÞAÐ AÐ FINNA
LANGT PRIK TIL AÐ BERJA JÓN Í
HAUSINN ÁN ÞESS AÐ STANDA UPP
HEYRÐIR
ÞÚ UM
NÝJA
VEGINN?
ÞAÐ KEMUR NÚ EKKI
Á ÓVART...
ÞEIR ÆTLA AÐ LEGGJA HANN
BEINT Í GEGNUM HÚSIÐ
HANS SNOOPY
MENN HAFA ALLTAF FARIÐ
ILLA MEÐ HUNDA
ÉG ER MEÐ GÓÐAR FRÉTTIR!
ÞÚ MÁTT VERA Í
LEYNIFÉLAGINU
MÍNU FRÁBÆRT
ÞAÐ VERÐUR ÆÐISLEGT! VIÐ
FINNUM UPP LEYNINÖFN
HANDA OKKUR OG LEYNIMÁL
FYRIR ÖLL SKILABOÐIN SEM
VIÐ SENDUM HVORUM
ÖÐRUM. VIÐ ÞURFUM
LEYNILEGT HANDTAK!
VIÐ VERÐUM MEÐ LEYNIHÚS
OG LEYNIBANK OG GERUM
FÓLK FYLGIST
MEIRA MEÐ ÞVÍ SEM
ER LEYNILEGT
ALLS
KONAR
LEYNILEGA
HLUTI
AF HVERJU
ÞESSI LEYND
EF ÉG LIFI ÞETTA EKKI
AF ÞÁ MÁTTU EIGA
FIÐRILDASAFNIÐ MITT
ELSKAN, ÞAÐ ER
ÚTSALA Í „DAUTT
OG GRAFIГ UM
HELGINA
ER EITTHVAÐ
AÐ, RAJIV?
JÁ, ÉG OG LÁRA
HÆTTUM SAMAN Í
GÆRKVÖLDI
KONAN SEM ÞÚ HEFUR
VERIÐ AÐ HITTA SÍÐUSTU
ÞRJÁ MÁNUÐINA? ÉG HÉLT
AÐ ÞIÐ VÆRUÐ ÁSTFANGIN
UPP FYRIR HAUS! HVAÐ GERÐIST?
VIÐ KYNNTUMST HVORU
ÖÐRU BETUR
Ó, JÁ...
ÞAÐ RUGL
ÉG FER Í TÖKUR MEÐ
NÖRNU LEMARR UPPI Á
HÁHÝSI Í DAG
OG ÉG VERÐ EKKI
LANGT UNDAN...
ÞVÍ MIG GRUNAR AÐ
NARNA LEMARR HAFI
STAÐIÐ FYRIR „SLYSINU“
dagbók|velvakandi
Hafa dætur og synir Íslands
jöfn tækifæri?
Jafnréttismálaráðherrann frú Jó-
hanna Sigurðardóttir fer mikinn í því
að jafna aðstöðumun karla og kvenna
um þessar mundir. Ráðherrann
hengir verðlaunapeninga á þann ráð-
herrann sem fremstur fer í því að
jafna stöðu dætra og sona Íslands í
skólum Íslands. Þar ber þó skökku
við því stefnubundið ójafnræðið er
hvergi grimmara en hjá háttvirtum
menntamálaráðherra Íslands. Næst-
ur í röðinni fyrir grimmt ójafnræði
dætra og sona Íslands er að finna hjá
háttvirtum utanríkisráðherra Íslands
en þar er ástandið slæmt og fer
versnandi. Það má rekja þessa stefnu
um kerfisbundið misræmi um ójafna
stöðu karla og kvenna hjá ríkisstjórn
Íslands til fyrsta embættis-
mannaverks jafnréttismálaráðherr-
ans í skipan í Jafnréttisráð, þar sem
sitja 9 einstaklingar. Jóhanna ráð-
herra fer þá leið að skipa 6 dætur og 3
syni í Jafnréttisráð. Út á þetta emb-
ættismannaverk verður Jafnréttisráð
með öllu ómarktækt þar sem 6 dætur
kúga skoðanir og atkvæði 3 sona. All-
ar úrlausnir ráðsins verða því inn-
antóm markleysa. Þetta nýja Jafn-
réttisráð Jóhönnu ráðherra á mikið
og erfitt verk fyrir höndum í því að
jafna stöðu dætra og sona Íslands í
ráðuneytum ríkisstjórnar Íslands.
Eins og áður sagði er ástandið verst í
menntamálaráðuneytinu en þar eru
dætur skráðar 50 en synir 27 á laun-
um hjá því ráðuneyti. Næst kemur
utanríkisráðuneytið en þar eru dætur
61 en synir 48. Svo er það jafnrétt-
ismálaráðuneytið með 24 dætur en
bara 14 syni. Hér á eftir kemur þver-
snið að jafnrétti dætra og sona hjá
ráðuneytum ríkisstjórnar Íslands,
sjálft framkvæmdavaldið. Hjá dóms-
málaráðuneyti eru dætur 27 en synir
bara 12. Hjá forsætisráðuneyti eru
dætur 17 en synir 14. Hjá Hagstofu
Íslands eru dætur 67 en synir 39 sem
framkallar slæma stöðu fyrir for-
sætisráðherrann því alls verða dætur
hér 84 en bara 53 synir. Hjá heil-
brigðis- og tryggingarmálaráðuneyti
eru dætur 37 en synir 22. Iðn-
aðarráðuneytið með 13 dætur en syn-
ir eru 8. Landbúnaðarráðuneytið hef-
ur 14 dætur en 12 syni.
Samgönguráðuneytið hefur 13 dætur
en 11 syni. Sjávarútvegsmálaráðu-
neytið hefur 12 dætur en 9 syni Um-
hverfisráðuneytið hefur 20 dætur en
11 syni. Viðskiptaráðuneytið síðan
með dætur 12 en bara 5 syni. Síðast
en ekki síst kemur svo fjármálaráðu-
neytið sem sker sig allverulega úr
þessum ójöfnuði enda fer ríkisstjórn
Íslands þá leið að skipa dýralækni
sem ráðherra í þessu dýra ríki en
hjörðin telur bara 28 dætur en 44 syni
og er þetta mjög slæmt. Þegar reikn-
ingsdæmið dætur og synir er gert
upp þá eru dætur alls 407 en synir
alls 276. Er þetta jöfn staða hjá kon-
um og körlum í þjónustu ríkisstjórnar
Íslands á vef stjr.is? Allt þetta lið er í
því alla daga með meiru að semja
lagatexta fyrir peðin í Alþingishús-
inu. Þegar til kastanna kemur eru
flestir með lagafrumvarpi, margir
sitja hjá en hinir mæta ekki í vinnuna.
Þetta lið Jóhönnu, þingmanns Sam-
fylkingarinnar og ríkisstjórnin öll, er
að leggja grunninn að því sem kalla
mætti embættismannalýðveldi Ís-
lands, sannkallað dætraríki. Hvað er
til ráða þið synir Íslands? Misrétti
kynjanna er mest í þeim ráðuneytum
þar sem konur eru ráðherrar með
einni undantekningu. Er það til-
viljun? Jóhanna Sigurðardóttir, hátt-
virtur félagsmálaráðherra, og rík-
isstjórn Íslands ætti að hefja
tiltektina í heimahaga áður en farið
er útfyrir og yfir í haga annarra og
byrja á fjármálaráðherranum og
dýralækninum.
Guðbrandur Jónsson,
Logafold 90, Reykjavík.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
EKKERT jafnast á við litadýrð sjálfrar náttúrunnar. Jafnvel í svartasta
skammdeginu getum við búist við náttúran skarti sínum fegurstu litum.
Senn líður að því að daginn fari að lengja.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sólarupprás yfir Bláfjöllum
Af hverju að bíða og bíða eftir stóra vinningnum þegar þú getur unnið
fyrir öllu sem þig langar að eignast? Það eina sem þú þarft að gera
er að bera út blöð í 1-3 tíma á dag.
Besta aukavinna sem þú getur fundið og góð hreyfing í þokkabót!
Hringdu núna og sæktu um í síma 569 1440 eða á mbl.is!
Sæktu um blaðberastarf
– alvörupeningar í boði!