Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 75

Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 75
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 75  GUÐLAUG Þórsdóttir læknir varði doktorsritgerð sína frá lækna- deild Háskóla Íslands föstudaginn 23. nóvember sl. Ritgerðin ber heitið „Cerúló- plasmín og súper- oxíð dismútasi í hrörnunar- sjúkdómum í miðtaugakerfi“. Leiðbeinandi var Magnús Jó- hannsson pró- fessor. Þeirri tilgátu hefur verið varpað fram að veiklaðar oxavarnir séu sameiginlegur þáttur í meingerð margra hæggengra hrörn- unarsjúkdóma í miðtaugakerfi. Um þátt oxavarna í meingerð með- fæddra þroskafrávika er hins vegar minna vitað. Cerúlóplasmín (CP) og súperoxíð dismútasi (SOD1) eru mikilvæg oxavarnaensím bæði í blóði og í miðtaugakerfi. Gerðar voru paraðar rannsóknir þar sem blóðstyrkur, virkni og sérvirkni CP í sermi og virkni SOD1 í rauðum blóð- kornum var mælt í sjúklingum með Parkinson sjúkdóm (PS), hreyfi- taugungahrörnun (ALS) og ein- staklingum með Downs-heilkenni (DH). Einnig í einhverfum og heil- brigðum einstaklingum með arf- blendni fyrir Wilson-sjúkdóm. Að lokum voru mælingar á CP og SOD1 endurteknar í sjúklingunum með PS fimm árum seinna. Sömu mælingar voru framkvæmdar í viðmið- unarhópi af sama kyni og aldri og sjúklingarnir. Niðurstöður rann- sóknanna sýna að í PS og öldruðum einstaklingum með DH eru breyt- ingar með tilliti til CP og SOD1 sam- eiginlegar, þrátt fyrir ólík klínísk einkenni. Engar breytingar greind- ust með tilliti til CP og/eða SOD1 í ALS, einhverfu eða í einstaklingum með arfblendni fyrir Wilson- sjúkdóm. Niðurstöður rannsóknanna hafa verið birtar í ritrýndum vísinda- tímaritum. Meðhöfundar eru: Grét- ar Guðmundsson læknir, Jakob Kristinsson dósent, Jón Snædal læknir, Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir læknir, Stefán Hreiðarsson læknir og dr. Þorkell Jóhannesson læknir og prófessor emerítus. Í dokt- orsnefnd sátu dr. Ingunn Þorsteins- dóttir læknir, Jón Snædal læknir, prófessor Magnús Jóhannsson læknir, Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir læknir og dr. Þorkell Jóhannesson læknir og prófessor emerítus. Guðlaug er fædd árið 1959. Hún lauk stúdentsprófi árið 1979 frá Menntaskólanum við Sund. Kandí- datsprófi við Háskóla Íslands lauk hún 1987 og stundaði síðan sér- fræðinám í lyf- og öldrunarlækn- ingum við Háskólasjúkrahúsið í Lin- köping í Svíþjóð og lauk því námið árið 1996. Sama ár hóf Guðlaug störf við öldrunarsvið LSH sem og við heimahlynningu og líknardeild LSH í Kópavogi. Frá árinu 2003 hefur Guðlaug starfað hjá Rannsókn- arstofu í lyfja- og eiturefnafræði. Guðlaug er dóttir Þórs Halldórs- sonar læknis og Auðar Ingólfs- dóttur húsmóður. Eiginmaður Guð- laugar er Ingólfur Kjartansson, börn þeirra eru Auður og Kristján. Doktor í læknisfræði Guðlaug Þórsdóttir FRÉTTIR GÓÐI hirðirinn, nytjamarkaður Sorpu og líknarfélaga, veitti á föstudag fjórum aðilum styrki. „Samstarf almennings, endur- vinnslustöðva og Góða hirðisins gefur af sér enn eina ferðina,“ seg- ir í tilkynningu frá Góða hirðinum. Við styrkveitinguna var lagt upp með að styrkja fólk til sjálfshjálp- ar. Að þessu sinni var heildarupp- hæðin 7 milljónir króna og skiptist hún á eftirtalda aðila: Átak, Systk- inasmiðjan, Félag einstæðra for- eldra vegna starfsmenntasjóðs og Bandalag kvenna vegna starfs- menntasjóðs. Styrkveitingin fór fram í verslun Góða hirðisins að Fellsmúla 28 að viðstöddum að- standendum félaganna og starfs- mönnum SORPU og Góða hirðis- ins. Stuðlað að endurnotkun „Markmið Góða hirðisins er að stuðla að endurnotkun, minnka só- un og láta gott af sér leiða, því ágóði af sölu í Góða hirðinum renn- ur til ýmissa góðgerðarmála. Gott samstarf starfsmanna endur- vinnslustöðva og Góða hirðisins við viðskiptavini okkar, sem bæði gefa notaða húsmuni til Góða hirðisins og versla í versluninni, gerir það að verkum að á hverju ári er hægt er að styrkja góð málefni. Á endurvinnslustöðvum SORPU eru sérstakir nytjagámar þar sem fólk getur losað sig við gamla hluti sem enn hafa óskert notagildi. Þannig má forða hlutum með reynslu og sögu, frá endanlegri förgun og finna þeim nýtt hlutverk í nýju umhverfi hjá nýjum eigend- um. Þessir hlutir fara svo í sölu hjá Góða hirðinum og stefnir í að árið 2007 fari rúmlega 800 tonn af mun- um í endurnotkun með þessum hætti. Í Góða hirðinum má finna allt milli himins og jarðar. T.d. sófa, stóla, borð, skápa, þvottavélar, ís- skápa og ýmis önnur raftæki. Einnig eru þar smærri hlutir á boðstólnum eins og bækur, plötur, leikföng, leirtau og ýmsir skraut- munir,“ segir í tilkynningu Góða hirðisins. Styrkir Góða hirðisins ALLT of algengt er að vörur í glugg- um verslana séu ekki verðmerktar, samkvæmt niðurstöðu könnunar Neytendasamtakanna um miðjan nóvember síðastliðinn. Þá voru kannaðar verðmerkingar í búðar- gluggum í Smáralind, Kringlunni, Laugavegi, Skólavörðustíg og í miðbæ Akureyrar. Best var ástandið á Skólavörðu- stíg, en þar voru vörur í meira en helmingi búðarglugga vel merktar. Ástandið reyndist vera verst í Kringlunni þar sem vörur í aðeins fjórðungi búðarglugga voru vel merktar. Miðbær Akureyrar kom næstverst út en þar höfðu einungis 36% verslana sinnt verðmerkingum í gluggum vel. Samkvæmt reglum um verðmerkingar skal verðmerkja vörur hvar sem þær eru til sýnis og eru búðargluggar engin undantekn- ing, að því er fram kemur í frétt Neytendasamtakanna. Síðast voru verðmerkingar í búð- argluggum kannaðar árið 2003 af Samkeppnisstofnun. Þá kom Kringl- an best út með vel merkta glugga í 72% tilfella. Engin könnun hefur verið gerð í Reykjavík í 4 ár eða síð- an Samkeppnisstofnun sá um þenn- an málaflokk. Illa verðmerkt í búðargluggum ÍSLENSKI meistarakokkur- inn Völundur Snær Völundar- son hefur verið valinn besti mat- reiðslumaður eyjunnar Grand Bahama sem er ein stærsta eyjan í Bahama- eyjaklasanum auk þess sem veitingastaður hans, Sabor, var valinn besti veitinga- staður eyjunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sölku-forlagi. Þar segir að verðlaunin séu mik- ill heiður fyrir Völund og ekki síst fyrir veitingastaðinn Sabor sem hefur einungis verið opinn síðan í mars. „Völundur á og rekur þessa stundina veitingastaðinn Sabor en í lok janúar verður opnaður næsti staður sem hlotið hefur nafnið Oceano. Er hann á ströndinni og verður bæði háklassa veitingastað- ur og strandklúbbur í senn. Ein- stök staðsetning býður upp á ótal möguleika auk þess sem húsnæðið hýsti áður einn sögufrægasta stað eyjunnar. Mun staðurinn taka yfir 300 manns í sæti og sólbekki. Verður staðurinn einn sá stærsti sem Íslendingur hefur opnað á er- lendri grund,“ segir í tilkynning- unni. Valinn besti matreiðslu- maður Grand Bahama Völundur Snær Völundarson JAFNRÉTTISSTOFA í samstarfi við ,,Evrópuár jafnra tækifæra“ og félagsmálaráðuneytið efnir til mál- þingsins um kynbundinn launamun og aðferðir til úrbóta. Málþingið fer fram mánudaginn 17. desember á Hótel KEA á Akureyri og stendur frá 12.00-13.15. Kristín Ástgeirsdóttir, fram- kvæmdastýra Jafnréttisstofu, setur málþingið. Að loknum erindum verður gerð samantekt á þeim og þá munu fara fram umræður. Léttar hádegisveitingar verða í boði. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis Málþing um kynbundinn launamun ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.