Morgunblaðið - 16.12.2007, Síða 79

Morgunblaðið - 16.12.2007, Síða 79
Ragnar kaus frekar að höggva af sér höndina en að opna jólakortin með tengdafjölskyldunni … 81 » reykjavíkreykjavík Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is EINS OG komið hefur fram hér í blaðinu gefa 12 Tónar minna út af tónlist fyrir þessi jól en á síðasta ári, en það segir þó ekki nema hálfa söguna því fyrirtækið hefur staðið í ströngu við að gefa út íslenska tónlist erlendis. Þannig hafa 12 Tónar gefið út að segja allar sína plötur á hinum Norðurlöndunum á undanförnum árum, og á þessu ári komu út fimmtán titlar í Þýskalandi og fleiri Evrópulöndum. Lárus Jóhannesson hjá 12 Tónum segir að fyrirtækið hafi komið sér upp útibúi í Danmörku vorið 2006 til að auðvelda sókn inn á Norðurlandamarkað. Tuttugu milljón manna markaður Alla jafna beina menn sjónum helst til Bretlands og Bandaríkjanna þegar þeir leita hófanna með útgáfu, en Lár- us bendir á að eftir ýmsu sé að slægjast á Norðurlanda- markaði – tuttugu milljón manna markaði. „Þetta hefur gengið að óskum hjá okkur og við erum búnir að gefa út alla titla 12 Tóna á hinum Norðurlöndunum. Fyrir vikið höf- um við gefið meira út á þessu ári en nokkru sinni,“ segir hann og bætir við að þeim hafi þótt þetta spennandi og eðli- legt skref. „Okkur fannst þetta rökrétt leið til að vaxa og ná fyrir vikið að vinna betur fyrir okkar listamenn. Víst er þetta stór markaður á íslenskan mælikvarða, en þetta er ekki stórt skref menningarlega og viðtökur í fjölmiðlum í ná- grannalöndum okkar sýna að við höfum valið rétta leið, enda eru 12 Tónar orðið vel þekkt nafn sem plötuútgáfa. Við höfum nú í auknum mæli farið út í samstarf við sterka aðila í hverju landi, eins og til dæmis Border í Svíþjóð.“ Ekki bara á Norðurlöndunum 12 Tónar eru þó ekki bara að gefa út plötur á Norð- urlöndunum heldur hefur fyrirtækið líka tekið til við útgáfu í Þýskalandi og víðar í Evrópu. Að sögn Lárusar lá beint við að sækja fyrst inn á þýskan markað, því þar væri mikill áhugi og almenn þekking á Íslandi, en einnig hyggist þeir 12 Tónamenn hasla sér völl í Frakklandi og Benelux- löndunum. „Við erum mjög ánægðir með okkar samstarfsmenn í þessum löndum og má nefna að þrjú fyrirtæki kepptu um samstarfið í Benelux-löndunum (Belgíu, Hollandi og Lúx- emborg). Markmiðið er síðan að þétta vefinn þannig að út- gáfur okkar fáist um alla Evrópu innan skamms. Við erum búnir að gefa út 15 titla í Þýskalandi og ýmsum öðrum Evr- ópulöndum en Norðurlöndunum, en við vinnum útgáfuna í samvinnu við Cargo dreifingarfyrirtækið. Ef allt gengur eft- ir verða titlarnir orðnir um 50 í lok næsta árs,“ segir Lárus. „Útgáfan hefur fengið góðar viðtökur og við erum þegar farnir að sjá tekjur af útgáfunni, en það er umtalsverð vinna eftir. Fyrirtækin sem við veljum til samstarfs í hverju landi veita aðeins grunnþjónustu í sambandi við dreifingu og kynningu og síðan er það okkar að taka næstu skref, ákveða hvernig við kynnum viðkomandi plötu frekar, koma á tónleikum listamannanna og svo má lengi telja. Við erum með í bígerð tónleikaferð nokkurra af okkar listamönnum á næsta ári sem við skipuleggjum í samvinnu við Cargo.“ Enn að læra Lárus segir að 12 Tónar séu ungt fyrirtæki og þar á bæ séu menn enn að læra hvernig best sé að fara að í útgáfu- málum og að mörgu sé að hyggja áður en hver plata komi út. „Það skiptir mestu að sníða sér stakk eftir vexti, en við erum með ýmsa listamenn á okkar snærum sem við erum sannfærðir um að eigi eftir að ná árangri ytra, til að mynda Jakobínurínu sem menn eru spenntir fyrir í Þýskalandi og eins má nefna Pétur Ben, Gavin Portland, Rökkurró, Ólöfu Arnalds og fleiri listamenn. Við höfum metnað fyrir okkar tónlistarmenn og ætlum að finna fólkið sem kann að meta það sem þeir eru að gera.“ HÖFUM METNAÐ FYRIR OKKAR TÓNLISTARMENN Morgunblaðið/Golli Hrafnavakt Lárus Jóhannesson og Jóhannes Ágústsson í búð 12 Tóna, ásamt hrafni sem vakir yfir tónlistinni með félaga sínum sem svífur á veggspjaldi efst á myndinni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.