Morgunblaðið - 20.12.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 347. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
SPÁÐU’ Í ÞAÐ
MUNU GREININGARDEILDIRNAR
HÆTTA AÐ SPÁ? >> VIÐSKIPTI
Í HNOTSKURN
»Samkeppniseftirlitið gerðihúsleit hjá Eimskip 4. sept-
ember 2002.
»Er töfin m.a. skýrð þannig aðágreiningur hafi verið um
alla meginþætti málsins, s.s. skil-
greiningu á markaðshlutdeild.
»Meðal annars krafðist Eim-skip að ekki yrði litið á Sam-
skip sem aðila málsins. Hæsti-
réttur skar úr um ágreiningefnið
og tafðist málsmeðferðin til nóv-
ember 2003.
»Á miðju ári 2004 krafðistEimskip að samkeppnisyfir-
völd tækju saman andmælaskjal
þar sem lýst yrði í hverju brotin
fælust.
»Var því mikið um viðbótar-gagnaöflun sem stóð fram á
árið 2005.
Eftir Andra Karl og Örlyg Stein Sigurjónsson
LÖGÐ hefur verið á Hf. Eimskipafélag Íslands 310 millj-
óna króna stjórnvaldssekt vegna alvarlegra brota á sam-
keppnislögum sem áttu sér stað á árunum 2001 og 2002.
Að sögn Ásbjörns Gíslasonar, forstjóra Samskipa, hefur
Eimskip misnotað markaðsráðandi stöðu sína gróflega.
„Þegar rýnt er í úrskurð Samkeppniseftirlitsins, kemur
skýrt fram að Eimskip hafi staðið að aðgerðum sem mið-
uðu markvisst að því að koma Samskipum út af mark-
aðnum,“ segir hann.
Ásbjörn segir Samskip ætla að gefa sér tíma til að fara
yfir málið í heild og segir félagið íhuga málsókn á grund-
velli þeirra niðurstaðna sem Samkeppniseftirlitið kemst
að.
„Það kemur á óvart hversu skipulögð og umfangsmikil
aðför var gerð að Samskipum og um leið að frjálsri sam-
keppni í landinu. Markmiðið var klárlega að koma Sam-
skipum hreinlega út af markaðnum,“ segir Ásbjörn.
Eimskip ætlar að áfrýja
Í yfirlýsingu Eimskips segist félagið hinsvegar undrast
þann langa tíma sem Samkeppniseftirlitið tók í rannsókn
málsins, eða rúm 5 ár frá því að húsleit var framkvæmd.
„Ákvörðunin vekur furðu og verður áfrýjað. Óvíst er því
hvenær lokaniðurstaða málsins mun liggja fyrir.“
Eimskip segir að dráttur málsins verði að teljast mjög
óeðlilegur og réttilega hefði átt að taka tillit til þess við
ákvörðun sektar.
„Því fer fjarri að Eimskip eigi að gjalda fyrir þann langa
og óeðlilega drátt sem orðið hefur á málinu af völdum Sam-
keppniseftirlits.“
Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Eim-
skip hefði, í skjóli markaðsráðandi stöðu sinnar, með
skipulögðum aðgerðum reynt að koma aðalkeppinaut sín-
um, Samskipum, út af markaðnum. Aðgerðirnar nefndust
„markaðsatlaga“ og fólust í að reyna ná sem mestu af við-
skiptum Samskipa yfir til Eimskips. Búnir voru til listar
með viðskiptavinum Samskipa og sókn skipulögð. Í minn-
isblaði til yfirstjórnar Eimskipa, sent 1. apríl 2002, var það
orðað á þessa leið: „Setja Samskip „á hælana“ með því að
herja á þeirra viðskiptamenn úr mörgum áttum.“
Í byrjun maí hafði Eimskip náð viðskiptum fyrir um 200
milljónir kr. og horfur voru á viðskiptum fyrir 400 milljónir
kr. til viðbótar.
Eimskip gerðist jafnframt brotlegt við samkeppnislög
með því að gera ólögmæta samninga við viðskiptamenn
sína, en þeir fólu í sér einkakaup – viðskiptamenn voru
skuldbundnir til að kaupa eingöngu þjónustu af Eimskip –
og samkeppnishamlandi afslætti.
„Markmiðið að koma Sam-
skipum út af markaðnum“
Samkeppniseftirlitið lagði 310 milljóna sekt á Eimskip vegna áranna 2001-2002
Eimskip | 6 og miðopna
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
MINNKANDI framboð á matvælum
í heiminum og sögulega hátt mat-
vöruverð á sér engin fordæmi. Um-
skiptin voru ófyrirséð, segir Jacques
Diouf, forstjóri Matvæla- og landbún-
aðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna,
FAO. Ástandið skapar hættu á hung-
ursneyð verði ekkert að gert, sér-
staklega meðal íbúa fátækari landa
heimsins. Matvælaverð hefur hækk-
að að meðaltali um ríflega 40% á
árinu, skv. vísitölu FAO. Á sama tíma
hafa birgðir heimsins af hveiti minnk-
að um 11% og ekki verið minni frá því
árið 1980. Mjólkurverð hefur hækkað
um 15% í Evrópu, kornvörur um
50%, mjólkurduft um 70% og kakó
um 60% svo dæmi séu tekin. Hér á
landi hefur hveiti og mjöl hækkað um
5,4%, þrátt fyrir 7% skattalækkun og
á eftir að hækka enn meira á komandi
mánuðum.
Framboð og eftirspurn
Uppskerubrestur á mikilvægum
ræktunarsvæðum vegna loftslags-
breytinga og sú staðreynd að naut-
gripabændur og framleiðendur líf-
ræns eldsneytis (biodiesel) slást um
akrana hafa valdið minna framboði á
korni til manneldis. „Kjötneysla í
heiminum hefur tvöfaldast á einum
áratug,“ nefnir Marteinn Magnússon,
markaðsstjóri heildsölunnar Eggerts
Kristjánssonar hf., sem dæmi, en til
að framleiða eitt tonn af kjöti þarf að
meðaltali um 5 tonn af korni.
Þá fer olíuverð stighækkandi og
þar af leiðandi flutningskostnaður.
Samverkandi áhrif allra þessara
þátta valda verðhækkunum.
Ólíklegt er að þessari þróun verði
snúið við, að mati forstjóra FAO.
Nú í vikunni hvatti stofnunin al-
þjóðasamfélagið til að bregðast við
vanda fátækari ríkja sem verða verst
úti af þessum sökum. Er m.a. mælst
til þess að aðstoðin felist í uppbygg-
ingu landbúnaðar á viðkomandi
svæðum. Dæmin sanna að slíkt ber
árangur, t.d. hefur maísuppskeran í
Afríkuríkinu Malaví aukist verulega
sl. tvö ár.
Reuters
Lífrænt eldsneyti Kapphlaupið um
kornið í heiminum er hafið.
Slegist
um korn-
akrana
Eitt tonn af kjöti úr
fimm tonnum af korni
SANNKALLAÐUR jólaandi sveif yfir vötnum á jóla-
söngfundi sem haldinn var í leikskólanum Ásum í
Garðabæ í gær. Þessa kærkomnu stemningu er líkleg-
ast víða að finna á litlu jólunum sem eru haldin út um
borg og bý þessa dagana. Á Ásum var gengið í kringum
fagurskreytt jólatré, auk þess sem hefð er fyrir því að
bjóða upp á tónlist er börnin ganga inn á jólafundinn.
Það voru Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Kristinn
Árnason gítarleikari sem spiluðu að þessu sinni fyrir
börnin sem launuðu þeim með því að syngja dátt með.
Morgunblaðið/Frikki
Svífandi jólaandi á Ásum í Garðabæ
Forskot tekið á sæluna með litlu jólunum
Adam er búinn
koma öllum
jólakortunum
í póst, en í dag
er síðasti öruggi
skiladagur fyrir
jólakort
innanlands
www.postur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
0
7
-
1
5
3
5
Hann
klappaði
saman
lófunum
Leikhúsin í landinu
Ævintýrin eru
handan hornsins >> 60