Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„NIÐURSTAÐA Samkeppnis-
eftirlitsins er afdráttarlaus,“
segir Ásbjörn Gíslason for-
stjóri Samskipa. „Eimskip hef-
ur misnotað markaðsráðandi
stöðu sína gróflega. Þegar rýnt
er í úrskurð Samkeppniseftir-
litsins, kemur skýrt fram að
Eimskip hafi staðið að aðgerð-
um sem miðuðu markvisst að
því að koma Samskipum út af
markaðnum.
Ásbjörn segir Samskip ætla að gefa sér tíma til
að fara yfir málið í heild og segir félagið íhuga mál-
sókn á grundvelli þeirra niðurstaðna sem Sam-
keppniseftirlitið kemst að.
Umfangið kemur á óvart
„Það kemur á óvart hversu skipulögð og um-
fangsmikil aðför var gerð að Samskipum og um
leið að frjálsri samkeppni í landinu. Markmiðið var
klárlega að koma Samskipum hreinlega út af
markaðnum.
Þetta voru sterkar aðgerðir sem við fundum
fyrir og höfum illa þolað að markaðsráðandi aðili
sé að misbeita aðstöðu sinni.“
Ásbjörn segir að Eimskip hafi einsett sér að
hrifsa til sín viðskipti frá keppinaut sínum með
miklum undirboðum. Þessu til viðbótar hafi Eim-
skip stórlega mismunað sínum eigin viðskiptavin-
um. „Það gerðist í miklum mæli að sambærilegir
viðskiptavinir að stærð, hjá Eimskipafélaginu,
voru á miklu lakari kjörum en þeir sem félagið
hrifsaði til sín,“ segir Ásbjörn. „Félagið stundaði
það sem í úrskurðinum er kallað einkakaupasamn-
ingar, og stundar sjálfsagt enn. Félagið er með
stærsta þjónustunetið og ef viðskiptavinir hafa
stundað viðskipti á veikum þjónustusvæðum Sam-
skipa og þeir ekki haft annan kost en að versla við
Eimskip, þá hefur félagið skuldbundið þá til að
gera einkakaupasamninga.“ Bendir Ásbjörn á að
einkakaupasamningar séu ólöglegir þegar mark-
aðsráðandi fyrirtæki eigi í hlut.
Í fréttatilkynningu frá Samskipum sem félagið
sendi frá sér í gær kemur fram að samkeppnis-
yfirvöld hafi með rannsókn sinni rækt skyldur sín-
ar með ágætum og komið þeim skýru skilaboðum
á framfæri að fyrirtæki með markaðsráðandi
stöðu bera mikla ábyrgð og verða að standa undir
henni.
Segir markvisst hafa verið
reynt að ýta Samskipum út
Samskip íhuga málssókn á grundvelli niðurstaðna Samkeppniseftirlitsins
Ásbjörn Gíslason
Í HNOTSKURN
»Samskip var stofnað 1990 og tók þá viðrekstri sjóflutningafyrirtækis sem haldið
hafði uppi millilandasiglingum í hálfa öld.
»Samskip hafa 36 gámaskip í föstum áætl-unarsiglingum. 15 skip eru í öðrum verk-
efnum þ.á m. frystiflutningum, auk fjölda
leiguskipa í tímabundnum verkefnum. 4 skip
eru í föstum áætlunarsiglingum milli Íslands
og Evrópu.
ÞAÐ hefur verið heldur rysjótt tíð á landinu að und-
anförnu. Þessu hafa útigangshross fengið að kynnast,
sérstaklega þó á Suður- og Vesturlandi. Í gær var
þokkalegasta veður og þessir hestar á Snæfellsnesi
virtust hafa það þokkalegt. Þeir virtust hins vegar allt
eins eiga von á að ljósmyndarinn færði þeim hey.
Samkvæmt reglugerð ber hesteigendum að sjá til
þess að hestar hafi ávallt aðgang að skjóli fyrir veðr-
um. Þá þarf að tryggja þeim nægt fóður og fylgjast
með holdafari þeirra. Sérstaklega þarf að fylgjast með
ástandi á folöldum og hryssum. Ef vel er hugsað um
hrossin og þau hafa skjól líður þeim vel úti.
Ljósmynd/Ævar Guðmundsson
Huga þarf að útigangshrossum
Útigangshross hafa mátt þola vond veður í vetur
AÐ MATI Samkeppniseftirlitsins
voru lögð drög að skipulögðum að-
gerðum gegn Samskipum í tölvu-
bréfi Guðmundar Þorbjörnssonar,
framkvæmdastjóra sölu- og mark-
aðssviðs Eimskips, þann 23. mars
2002 sem bar heitið „sölustefna“.
Viðtakendur voru forstöðumaður
stórflutninga- og umboðsþjónustu,
forstöðumaður viðskiptaþjónustu,
forstöðumaður bíla- og tækjaþjón-
ustu, forstöðumaður sjávarútvegs-
þjónustu og forstöðumaður mark-
aðsdeildar. Þar segir að Samskip
hafi stungið sér inn í flutninga Eim-
skips af auknum krafti og það þýði
annað af tvennu: „Að við missum
flutninga eða bregðumst við.“
Í bréfinu segir m.a.: „Frá áramót-
um höfum við unnið að þeim mark-
miðum að ná inn hækkunum á
samningum, ekki síst í gegnum hlið-
arþjónustu, grettistak, akstur etc.
Sú stefna hefur að hluta gengið
ágætlega eftir, og höfum við náð inn
breytingum og umbótum á mörgum
samningum. [...] Nú er ljóst að
helsti samkeppnisaðili hefur ákveð-
ið að nýta sér okkar aðgerðir til að
stinga sér inn í flutninga Eimskips
af auknum krafti. [...] Þetta þýðir
annað af tvennu: Að við missum
flutninga eða bregðumst við. Við
ætlum að bregðast við.“
Einnig segir að fyrirtækið verði
að fara markvisst í að valda við-
skiptavini Samskipa og bjóða kjör
sem duga til að ná viðskiptunum, ef
þau eru á annað borð föl. Ljóst var
að Eimskipsmenn ætluðu ekki að
tapa viðskiptavinum. „Gagnvart
endurnýjun samninga við núverandi
viðskiptavini þarf að meta í hverju
tilviki fyrir sig hvernig best er að
nálgast nýja samninga. Auðvitað
reynum við áfram að ná umbótum
þar sem við teljum það hægt, en jafn-
framt er ljóst að ef okkar samkeppn-
isaðilar búa til slag um okkar kúnna
ætlum við ekki að missa viðskiptin.“
Setja skal Samskip á hælana
Síðar, eða 1. apríl 2002, sendi Guð-
mundur minnisblað til yfirstjórnar
Eimskips þar sem fram komu skýrar
vísbendingar um fyrirhugaðar að-
gerðir Eimskips gagnvart keppinaut-
um sínum. Bréfið er birt í heild í
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins.
Þar er m.a. komið inn á sam-
keppnistefnu Eimskips næstu mán-
uði eftir að minnisblaðið var sent.
„Ef Eimskip ætlar að taka slaginn er
næsta spurning á hvaða nótum. Í
vörn eða sókn? Eins og fyrr er getið
hefur félagið yfirleitt verið að verja
sitt. Máttur Eimskips hefur sjaldan
verið nýttur í öflugri sókn. Nú má
telja að tími sé til þess kominn.
Gera má ráð fyrir hörðum slag
næstu mánuði og munu einhverjir
verða sárir. Eimskip getur í stöð-
unni unnið sóknarbaráttu en ekki
varnarbaráttu.“
Höldum okkar striki
Nokkrir þættir voru síðar nefndir
sem urðu að koma til hjá Eimskip ef
sóknarleiðin yrði fyrir valinu. Einn
af þeim var að „setja Samskip „á
hælana“ með því að herja á þeirra
viðskiptamenn úr mörgum áttum“.
Daginn eftir sendi Guðmundur
tölvupóst til forstöðumanna sem
undir hann heyrðu. Þar segir:
„Samkeppnismálin voru rædd í
dag á framkvæmdastjórahópum.
Mat manna á stöðunni er vel í takt
við okkar umræðu að undanförnu,
og höldum við ákveðið okkar
striki.
Til að bæta í lista-safnið vil ég
nú biðja ykkur eins og við ræddum
fyrir páska að lista upp í ykkar
segmentum alla viðskiptavini
Samskipa sem þið getið komist á
snoðir um og eru miðlungsstórir
og stærri. [...] Með þessu ætlum
við að búa til mynd af 50-100
stærstu kúnnum Samskipa og
meta eftir hverju er að slægjast og
hvar. Ákveðum síðan hvernig við
ráðumst á þennan hóp. Finnum út
hver þekkir hvern og bestu leið til
að nálgast hvern viðskiptavin.“
Í úrskurði Samkeppniseftirlitsins er að finna tölvupósta þar sem stjórnendur Eimskips fjölluðu um
hvernig ráðast ætti í aðgerðir gegn Samskipum en Eimskip hafði þá verið að missa viðskipti
„Missum flutninga eða bregðumst við“
Í YFIRLÝSINGU Eimskips segist
félagið undrast þann langa tíma sem
Samkeppniseftirlitið tók í rannsókn
málsins, eða rúm 5 ár frá því að hús-
leit var framkvæmd. „Loks hefur
þeirri óvissu verið eytt að hluta sem
varað hefur allan þennan tíma,“ seg-
ir í yfirlýsingunni. „Ákvörðunin vek-
ur furðu og verður áfrýjað. Óvíst er
því hvenær lokaniðurstaða málsins
mun liggja fyrir.
Þegar rannsókn málsins hófst
beindist hún að Hf. Eimskipafélagi
Íslands hinu eldra. Nafni félagsins
var síðar breytt í Burðarás hf. Sjó-
rekstur félagsins var seldur og félag-
ið Eimskip ehf. stofnað um þann
rekstur. Burðarás hf. (áður Hf. Eim-
skipafélag Íslands) sem málið beind-
ist upphaflega að var síðar skipt upp
á milli Landsbanka Íslands og
Straums-Burðaráss. Þrátt fyrir að-
ilaskipti að sjóflutningastarfsemi og
að ný lögpersóna hafi tekið við
rekstrinum, þá kaus Samkeppniseft-
irlitið að beina málinu gegn hinu
nýja félagi. Eimskip telur því rang-
lega beint gegn núverandi Hf. Eim-
skipafélagi Íslands.
Samkeppniseftirlitið telur ekki
unnt að fallast á það sjónarmið Eim-
skips að beina beri sektarákvörðun-
um að þessum fjármálastofnunum.
Hf. Eimskipafélag Íslands hið yngra
hafi tekið við ábyrgð á brotum Hf.
Eimskipafélagi Íslands hinu eldra og
sé ákvörðuninni því beint að því fé-
lagi. Var m.a. horft til þess að Hf.
Eimskipafélag Íslands hið yngra
reki sömu sjóflutningastarfsemi og
rekin var í nafni Hf. Eimskipafélags
Íslands hins eldra.“
Óeðlilegur dráttur málsins
Eimskip segir að dráttur málsins
verði að teljast mjög óeðlilegur og
réttilega hefði átt að taka tillit til
þess við ákvörðun sektar.
„Því fer fjarri að Eimskip eigi að
gjalda fyrir þann langa og óeðlilega
drátt sem orðið hefur á málinu af
völdum Samkeppniseftirlits,“ segir í
yfirlýsingunni.
„Þann langa tíma sem málið hefur
verið í vinnslu hafa miklar breyting-
ar átt sér stað, ekki bara á eignar-
haldi félagsins heldur líka í umhverfi
þess og stjórnun. Þannig hafa allir
æðstu stjórnendur sem voru við
störf þegar málið kom upp horfið frá
störfum og aðrir komið að þ.m.t. for-
stjórar. Með vísan til ofangreinds má
telja að forvarnargildi ákvörðunar-
innar sé ekki með þeim hætti hefði
málið verið rekið á eðlilegum máls-
hraða.“
Segja málinu rang-
lega beint að sér
Yfirlýsing frá Eimskipi um úrskurðinn
STJÓRNVÖLD
eru reiðubúin að
ræða þær
áherslur sem Al-
þýðusamband Ís-
lands kynnti fyrir
ríkisstjórninni 12.
desember um
með hvaða hætti
stjórnvöld geta
beitt sér í kom-
andi kjaraviðræð-
um. ASÍ fékk svör þessa efnis í gær.
Ingibjörg Guðmundsdóttir, vara-
forseti ASÍ, segir að líklega muni
viðræðurnar hefjast eftir áramót. Þá
verði að öllum líkindum reynt að
finna sameiginlegar leiðir til að ná
markmiðum. Ríkisstjórnin hafi í yf-
irlýsingunni ekki brugðist beinlínis
við áherslunum sem ASÍ kynnti, að-
eins tilkynnt að hún væri reiðubúin
til funda um þær. „Við vorum satt
best að segja orðin heldur vondauf
og það var kominn töluverður óró-
leiki í hópinn,“ sagði Ingibjörg.
Tilbúin að
koma að
viðræðum
Ingibjörg R.
Guðmundsdóttir