Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Leikhúsin í landinu www.mbl.is/leikhus U Uppselt Ö Örfá sæti laus F Farandsýning Þjóðleikhúsið 551 1200 | midasala@leikhusid.is Ívanov (Stóra sviðið) Mið 26/12 frums. kl. 20:00 U Fim 27/12 2. sýn. kl. 20:00 U Fös 28/12 3. sýn. kl. 20:00 U Fös 4/1 4. sýn. kl. 20:00 Ö Lau 5/1 5. sýn. kl. 20:00 Ö Fös 11/1 6. sýn. kl. 20:00 Ö Lau 12/1 7. sýn. kl. 20:00 U Fös 18/1 8. sýn. kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 20:00 Fös 1/2 kl. 20:00 Lau 2/2 kl. 20:00 Vígaguðinn (Smíðaverkstæðið) Lau 19/1 frums. kl. 20:00 Sun 20/1 kl. 20:00 Fim 24/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 20:00 Fim 31/1 kl. 20:00 Óhapp! (Kassinn) Sun 30/12 aukas. kl. 20:00 Allra síðasta sýning Leitin að jólunum (Leikhúsloftið) Lau 22/12 aukas. kl. 11:00 U Lau 22/12 kl. 13:00 U Lau 22/12 kl. 14:30 U Sun 23/12 kl. 13:00 U Sun 23/12 kl. 14:30 U Athugið aukasýn. 22.12 Gott kvöld (Kúlan - barnaleikhús) Sun 30/12 kl. 13:30 Ö Sun 30/12 kl. 15:00 Sun 13/1 kl. 13:30 U Sun 13/1 kl. 15:00 Ö Sun 20/1 kl. 13:30 Sun 20/1 kl. 15:00 Sun 27/1 kl. 13:30 Sun 27/1 kl. 15:00 Sýningart. um 40 mínútur Konan áður (Smíðaverkstæðið) Lau 29/12 kl. 20:00 Lau 5/1 kl. 20:00 Lau 12/1 kl. 20:00 Sun 13/1 kl. 20:00 Skilaboðaskjóðan (Stóra sviðið) Lau 29/12 kl. 14:00 U Lau 29/12 kl. 17:00 U Sun 30/12 kl. 14:00 U Sun 30/12 kl. 17:00 U Sun 6/1 kl. 14:00 U Sun 6/1 aukas. kl. 17:00 Sun 13/1 kl. 14:00 U Sun 13/1 kl. 17:00 Ö Sun 20/1 kl. 14:00 Ö Sun 20/1 kl. 17:00 Ö Sun 27/1 kl. 14:00 Ö Sun 27/1 kl. 17:00 Ö Sun 3/2 kl. 14:00 Sun 10/2 kl. 14:00 Sun 17/2 kl. 14:00 Sólarferð (Stóra sviðið) Fös 15/2 frums. kl. 20:00 Lau 16/2 2. sýn. kl. 20:00 Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl.12:30-18:00, aðra daga vikunnar frá kl. 12:30 til 20, og alltaf klukkustund fyrir sýningu ef um breyttan sýningartíma er að ræða. Íslenska óperan 511 4200 | midasala@opera.is Öðruvísi Vínartónleikar: Söngvar jarðar eftir Gustav Mahler Sun 30/12 kl. 20:00 La traviata Fös 8/2 frums. kl. 20:00 Ö Sun 10/2 kl. 20:00 Fös 15/2 kl. 20:00 Sun 17/2 kl. 20:00 Iðnó 562 9700 | idno@xnet.is Ævintýri í Iðnó (Iðnó) Sun 13/1 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00 Fös 1/2 kl. 20:00 Sun 10/2 kl. 20:00 Fös 15/2 kl. 20:00 Jólatónleikar Fim 20/12 kl. 21:00 Revíusöngvar Fös 11/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 14:00 Fös 25/1 kl. 20:00 Ópera Skagafjarðar ¯ La Traviata Sun 20/1 kl. 20:00 Kómedíuleikhúsið 8917025 | komedia@komedia.is Jólasveinar Grýlusynir(Tjöruhúsið Ísafirði) Lau 22/12 kl. 14:00 Fim 27/12 kl. 17:00 Borgarleikhúsið 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is ÁST (Nýja Sviðið) Sun 30/12 kl. 20:00 U Mið 2/1 kl. 20:00 Ö Fös 11/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 20:00 Í samstarfi við Vesturport BELGÍSKAKONGÓ (Nýja Sviðið) Lau 29/12 kl. 20:00 U Fim 3/1 kl. 20:00 Mið 9/1 kl. 20:00 Mið 16/1 kl. 20:00 Mið 23/1 kl. 20:00 Síðustu sýningar DAGUR VONAR (Nýja Sviðið) Fös 28/12 kl. 20:00 Lau 5/1 kl. 20:00 Fim 10/1 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 20:00 Gosi (Stóra svið) Lau 29/12 kl. 14:00 U Sun 30/12 kl. 14:00 U Sun 30/12 aukas. kl. 17:00 U Lau 5/1 kl. 14:00 U Sun 6/1 kl. 14:00 Ö Lau 12/1 kl. 14:00 Sun 13/1 kl. 14:00 Lau 19/1 kl. 14:00 Sun 20/1 kl. 14:00 Lau 26/1 kl. 14:00 Sun 27/1 kl. 14:00 Hér og nú! (Litla svið) Lau 29/12 5. sýn. kl. 20:00 Fös 11/1 kl. 20:00 Sun 13/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00 Sun 20/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 20:00 Í samstarfi við Sokkabandið Jesus Christ Superstar (Stóra svið) Fim 27/12 fors. kl. 20:00 U Fös 28/12 frums. kl. 20:00 U Lau 29/12 2. sýn. kl. 20:00 U Fös 4/1 3. sýn. kl. 20:00 U Lau 5/1 4. sýn. kl. 20:00 U Fim 10/1 5. sýn. kl. 20:00 Ö Lau 12/1 6. sýn. kl. 20:00 Ö Fim 17/1 kl. 20:00 Ö Fös 18/1 kl. 20:00 U Fim 24/1 kl. 20:00 Ö Lau 26/1 kl. 20:00 Ö Fös 1/2 kl. 20:00 Ö Lau 2/2 kl. 20:00 Ö LADDI 6-TUGUR (Stóra svið) Sun 20/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00 Fim 31/1 kl. 20:00 Lík í óskilum (Litla svið) Fim 10/1 kl. 20:00 Lau 12/1 kl. 20:00 Fim 17/1 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00 Fim 24/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 20:00 Ræðismannsskrifstofan (Nýja svið) Sun 6/1 kl. 20:00 Sun 13/1 kl. 20:00 Sun 20/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00 Stranglega bönnuð börnum yngri en 12 ára Viltu finna milljón (Stóra svið) Fös 11/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 20:00 Allra síðustu sýningar Íslenski dansflokkurinn 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Febrúarsýning (Stóra sviðið) Fös 22/2 frumsýn kl. 20:00 Sun 24/2 kl. 20:00 Sun 2/3 kl. 20:00 Sun 9/3 kl. 20:00 Fös 14/3 kl. 20:00 Sun 16/3 kl. 20:00 STOPP-leikhópurinn 8987205 | eggert@centrum.is Jólin hennar Jóru (Ferðasýning) Fim 20/12 kl. 14:00 F Fös 21/12 kl. 15:00 F Óráðni maðurinn (Ferðasýning) Mán 14/1 kl. 10:00 F Þri 15/1 kl. 10:00 F Þri 15/1 kl. 13:00 F Þrymskviða og Iðunnareplin (Ferðasýning) Mán 21/1 kl. 10:00 F Þri 29/1 kl. 10:00 F Leikfélag Akureyrar 460 0200 | midasala@leikfelag.is Óvitar (LA - Samkomuhúsið ) Fös 21/12 kl. 19:00 U Fim 27/12 kl. 19:00 U Fös 28/12 kl. 15:00 U Fös 28/12 ný aukas kl. 18:00 Lau 29/12 kl. 15:00 U Sun 30/12 kl. 15:00 U Ath. Síðustu sýningar! Óvitar víkja fyrir Fló á skinni Ökutímar (LA - Rýmið) Lau 29/12 kl. 19:00 U Lau 29/12 kl. 22:00 Ö ný aukas Sun 30/12 kl. 19:00 U Sun 6/1 kl. 20:00 Ö Sun 13/1 kl. 20:00 Ath! Ekki við hæfi barna. Þú ert nú meiri jólasveinninn!(LA - Rýmið) Lau 22/12 kl. 13:00 Ö Lau 22/12 kl. 14:30 U Lau 29/12 kl. 14:30 Ath! Sýningartími: 1 klst. Landnámssetrið í Borgarnesi 437 1600 | landnamssetur@landnam.is BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið) Lau 5/1 kl. 20:00 hátíðarsýn. Sun 6/1 frums. kl. 16:00 Fös 11/1 2. sýn. kl. 20:00 Lau 12/1 3. sýn. kl. 20:00 Sun 13/1 4. sýn. kl. 16:00 Fös 18/1 5. sýn. kl. 20:00 Lau 19/1 6. sýn. kl. 20:00 Sun 20/1 7. sýn. kl. 16:00 Fös 25/1 8. sýn. kl. 20:00 Lau 26/1 9. sýn. kl. 20:00 Sun 27/1 10. sýn. kl. 16:00 Möguleikhúsið 5622669/8971813 | ml@islandia.is Hvar er Stekkjarstaur? (Möguleikhúsið/ferðasýning) Fim 20/12 kl. 11:00 F Fös 21/12 kl. 09:00 F Fös 21/12 kl. 14:00 F Mið 26/12 kl. 14:00 F Höll ævintýranna (Möguleikhúsið/ferðasýning) Fös 11/1 kl. 09:00 F Íslensku jólasveinarnir í Þjóðminjasafninu (Þjóðminjasafnið) Fim 20/12 kl. 11:00 Fös 21/12 kl. 11:00 Lau 22/12 kl. 11:00 Sun 23/12 kl. 11:00 Mán24/12 kl. 11:00 Aðgangur að jólasveinadagskrá er ókeypis meðan húsrúm leyfir! Landið vifra (Möguleikhúsði/ferðasýning) Sun 20/1 kl. 14:00 U Sun 27/1 kl. 14:00 F Draumasmiðjan 8242525 | elsa@draumasmidjan.is Óþelló, Desdemóna og Jagó (Litla svið Borgarleikhússins) Sun 27/1 kl. 17:00 Ö Samstarfsverkefni Draumasmiðjunnar, LR og ÍD Kraðak 849-3966 | kradak@kradak.is Lápur, Skrápur og jólaskapið (Skemmtihúsið Laufásvegi 22) Fim 20/12 kl. 18:00 Fös 21/12 kl. 18:00 Lau 22/12 kl. 14:00 Lau 22/12 kl. 16:00 Lau 22/12 kl. 18:00 Sun 23/12 kl. 14:00 Sun 23/12 kl. 16:00 Sun 23/12 kl. 18:00 Mið 26/12 kl. 14:00 Mið 26/12 kl. 16:00 Mið 26/12 kl. 18:00 Fim 27/12 kl. 16:00 Fim 27/12 kl. 18:00 Fös 28/12 kl. 18:00 U www.kradak.is Frostrósir eru orðnar hluti af jól- unum og aðdáendurnir skipta hundruðum, ef ekki þúsundum og fer fjölgandi með hverju ári. Dív- urnar sem tóku þátt í Frostrósa- tónleikum síðasta árs voru ekki af verri endanum. Fremst í því föru- neyti var hin norska Sissel Kyrkj- ebø en fast á hæla hennar fylgdu Ragnhildur Gísladóttir og færeyska undrabarnið Eivør Pálsdóttir. Frá Grikklandi mætti svo Eleftheria Arvanitaki og fimmta dívan var messósópraninn Patricia Bardon, sem á rætur að rekja til Írlands. Herrann í hópnum var Jóhann Friðgeir, sem stendur sig vel í þessum upptökum, en gesta- söngkonan Petula Clark veldur vonbrigðum. Karl O. Olgeirsson sér um flest- ar útsetningar laga sem og val tón- listar. Honum fer það vel úr hendi, en auk þess á hann lag og texta við einkennislag tónleikanna. Fyrir mitt leyti hefði mátt sleppa því enda er það ekki jólalegt, en syk- ursætt og ögn tilgerðarlegt. Hins vegar er laglínan sterk, kaflaskipt- ingarnar góðar og útsetningin gef- ur öllum þessum frábæru söng- konum tækifæri til að syngja saman og sýna snilli sína. Sissel er með ótrúlega rödd og getur sungið allt sem henni er rétt, og hið sama má segja um hina rís- andi stjörnu sem Eivör er, en hún skarar fram úr þegar að sviðs- framkomu kemur. Ragga sýnir líka hversu hæfileikarík og sérstæð söngkona hún er og stelur senunni með túlkun sinni á „Jólakvæði“, sem er svo sannarlega hápunktur tónleikanna. Þessar þrjár söng- konur, saman eða hver í sínu lagi, ná að lyfta Frostrósum upp úr allri meðalmennsku, það er engin spurning – að vísu með dyggri hjálp Drengjakórs Reykjavíkur, en ég er ekki frá því að hann einn og sér gæti haldið árlega tónleika og gefið út disk í kjölfarið, hér er á ferðinni vannýtt auðlind. Það hefði verið mér að skapi að heyra fleiri íslensk jólalög flutt á móðurmálinu, en hinn alþjóðlegi stimpill sem tónleikarnir fengu kom í veg fyrir það. Ég er þó viss um að fleiri fallegir, íslenskir jóla- sálmar hefðu svo sannarlega getað skerpt á þeirri sérstöðu sem fram- leiðendur leita sem mest að. Mynddiskurinn sem fylgir með er góður að mestu leyti og hljóm- umhverfið er með eindæmum gott en Terry Gunnell, sem er þulur milli laga, truflar flæði tónleikanna. Það sama get ég sagt um Petulu Clark, sem lýkur dagskránni með flutningi sínum á hinu sígilda jóla- lagi „Silent Night“, áður en síðasta lagið með samsöng hefst. Hvorki flutningur né útsetning voru mér að skapi – hvorki heillandi né í sama klassa og það sem á undan kom. En þrátt fyrir þessa vankanta er þetta í heildina gott, hátíðlegt og metnaðarfullt. Jólaveisla TÓNLIST Geisladiskur og DVD The European Divas: Frostroses bbbbn Jóhann Ágúst Jóhannsson Fnykur um alla veröld  Stórsveit Samúels Jóns Sam- úelssonar hyggur á landvinninga á næsta ári. Hljómsveitin fer í tón- leikaferð til Hollands, Belg- íu og Þýska- lands í byrjun næsta sumars, en þar að auki er platan Fnyk- ur komin í dreifingu í Bandaríkjunum auk þess sem hún er seld í versluninni Dusty Grooves (dustygroove.com) sem er ein stærsta netverslun á sviði funk- tónlistar í heiminum. Sveitin er um þessar mundir að ljúka við- burðaríku starfsári sem hófst með upptökum á hljómplötunni Fnyk í mars. Platan kom svo út í maí og í kjölfarið hefur hljómsveitin, sem telur eina 18 meðlimi, leikið á tón- listarhátíðinni Vorblóti, opn- unarhátíð Edinborgarhússins á Ísa- firði, lokahátíð Akureyrarvöku, Menningarnótt Reykjavíkur ásamt Jimi Tenor og Antibalas, Jazz- klúbbnum Múlanum og farið í tón- leikaferð um Ísland með viðkomu á Grundarfirði, Akureyri, Seyð- isfirði, Höfn í Hornafirði og Eyr- arbakka. Eitthvað segir manni að Stórsveitin muni gera enn betur á næsta ári. Jólarokkveisla á Gauknum  Hinir árlegu góðgerðartón- leikar X-ins 97,7, „X-MAS“, fara fram í kvöld líkt og undanfarin ár. Allur ágóði af tónleikunum, sem haldnir eru á Gauki á Stöng, renna til Foreldrahjálpar Íslands og þær sveitir sem ætla að leggja sitt af mörkum eru Mugison, Sprengju- höllin, Hjaltalín, Jakobínarína, Sign, Hooker Swing, Seabear, Ultramegatechnobandið Stefán, Lada Sport, Dr. Spock, Strigaskór nr. 42 og Our Lives. Góð leið til að gera upp tónlistarárið með öllum þessum frábæru hljómsveitum. BHH og Hjaltalín  Í aðdraganda jólanna, og til að ítreka friðarboðskapinn, munu Benni Hemm Hemm og Hjaltalín taka höndum saman og flytja lög Benna í verslun 12 tóna í dag. Segja listamennirnir að samstarfið sé mjög í anda jólanna því sam- veran sé mikilvægust á hátíð ljóss og friðar, og allt það … jadíjadíja. Í fréttatilkynningu segir að ein- hverjar líkur séu á því að sam- starfið muni í framtíðinni leiða til nýrra lagasmíða, eða jafnvel út- gáfu, t.d. í netbúð Kimi Records. Tónleikarnir hefjast kl. 17 og að- gangseyrir er enginn. Jólaleg Dikta  Strákarnir í Diktu hafa nú tekið upp sína eigin útgáfu á jólalaginu „Nóttin var sú ágæt ein“. Upptökur hófust í byrjun mánaðarins en þeim til halds og trausts var Hrannar Ingimarsson sem einnig tók upp fyrstu og einu plötu Diktu, Hunting for Happiness. Hægt er að hlusta á lagið á myspace.com/dikta, en einnig er hægt að kaupa lagið fyrir aðeins 99 kr. í vefverslun Smekk- leysu, smekkleysa.net. Dikta kem- ur svo fram á jólatónleikum Smekkleysu á Organ á laugardag. TÓNLISTARMOLAR»
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.