Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 37
MIKIL umræða hefur verið í
samfélaginu að undanförnu um eina
tegund þvingunarúrræða refsi-
vörslukerfisins, farbann. Í þeirri
umræðu hefur gætt misskilnings og
á tíðum vafsamrar túlkunar þeirra
laga og reglna sem úrræðið byggir á.
Forgrunnur umræðunnar hefur ver-
ið sá að ítrekað hafi meintir brota-
menn komist undan réttvísinni með
því að yfirgefa landið þrátt fyrir að
vera í farbanni á meðan mál þeirra
hafa verið til rannsóknar eða í með-
förum dómstóla. Þannig hafa fimm
einstaklingar komist úr landi á
þessu ári þrátt fyrir að dómstólar
hafi úrskurðað þá í farbann.
Í lögum um meðferð opinberra
mála (oml.) nr. 19, 1991 er kveðið á
um farbann í 110. grein. Þar segir „Í
stað gæsluvarðhalds, svo og endra-
nær ef nauðsyn ber til, getur dóm-
ari, hvort sem trygging er sett eða
ekki, lagt fyrir sakborning að halda
sig á ákveðnu svæði, bannað honum
brottför af landinu eða mælt fyrir
um vistun hans á sjúkrahúsi eða við-
eigandi stofnun.“ Þannig er í lög-
unum mælt fyrir um léttbærari
þvingunarúrræði sem samkvæmt
þeim er ætlað að koma í stað gæslu-
varðhalds skv. 103. grein laganna.
Almennt er litið svo á, og sú er oftast
raunin, að dómari geti að eigin frum-
kvæði beitt þessum léttari úrræðum
þó gæsluvarðhalds hafi verið krafist.
Þá geta einnig lögreglustjórar eða
forstöðumenn rannsóknardeilda lög-
reglu svo og ríkissaksóknari krafist
þess að úrræðum 110. greinar verði
beitt.
Samkvæmt dómi Hæstaréttar frá
2. júlí 1991 geta lögreglustjórar
ákveðið hver tilhögun farbanns skuli
vera, hvort einstaklingur skuli til-
kynna sig reglulega hjá lögreglu eða
halda sig innan ákveðins sveitarfé-
lags osv.frv. Reynsla lögreglu hefur
sýnt að tilkynningaskylda aðila í far-
banni og það að taka af honum vega-
bréf hefur litla sem enga þýðingu
hafi brotamaðurinn ákveðið að flýja
réttvísina.
Rétt er að benda á þá staðreynd
að lög um meðferð opinberra mála
tóku gildi 1. júlí 1992, en Ísland
gerðist aðili að Schengen-samn-
ingnum þann 25. mars 2001, eða
tæpum níu árum eftir að lög um
meðferð opinberra mála tóku gildi.
Í sakamálum þar sem meintur
brotamaður er erlendur með lítil eða
engin tengsl við landið hafa lög-
reglustjórar yfirleitt krafist gæslu-
varðhalds yfir þeim á grundvelli b.
liðar 1. mgr. 103. greinar oml., en
þar segir að sakborningur verði því
aðeins úrskurðaður í gæsluvarðhald
„að ætla megi að hann muni reyna
að komast úr landi eða leynast eða
koma sér með öðrum hætti undan
málsókn eða fullnustu refsingar“.
Dómarar geta í stað þess að fallast á
kröfu um gæsluvarðhald beitt væg-
ara úrræði, svo sem farbanni skv.
110. grein laganna.
Með aðild að Schengen-samn-
ingnum 2001 var persónueftirlit á
innri landamærum Schengen-
svæðisins lagt af. Þannig er lögreglu
óheimilt, lögum samkvæmt, að við-
hafa skipulagt eftirlit á landmærum
með einstaklingum sem eru að koma
frá, eða fara til annars ríkis innan
Schengen-svæðisins. Í ljósi þess
raunveruleika hefur embætti lög-
reglustjórans á Suðurnesjum margí-
trekað bent á það við fyrirtökur
gæsluvarðhaldskrafna fyrir dóm-
stólum að farbann sé ekki tækt úr-
ræði þar sem ómögulegt sé að
tryggja það að meintur brotamaður
fari ekki úr landi og sleppi þannig
undan réttvísinni.
Lög og reglur eru samfélagslegt
fyrirbæri sem endurspegla verða
það samfélag sem þeim er ætlað að
vernda og gilda í. Í umræðu und-
anfarinna daga hefur verið látið að
því liggja að kröfur lögreglustjóra er
varða þvingunarúrræði gagnvart
meintum brotamönnum séu ekki
nægjanlega skýrar eða rétt fram-
settar. Þessu verð ég að vísa til föð-
urhúsanna, kröfur lög-
reglustjóra eru skýrar
og í þeim yfirleitt gerð-
ar ítrustu kröfur sem
lög leyfa, þ.e. að brota-
mönnum sem líklegt er
að reyni að flýja rétt-
vísina verði gert að
sæta gæsluvarðhaldi
eins lengi og þörf kref-
ur. Ráða þar bæði rétt-
arfarslegar ástæður
ásamt almannahags-
munum og vernd
mannréttinda hins al-
menna borgara. Farbann er ekki
tækt í málum af því tagi þó að
Hæstiréttur Íslands
telji rétt að setja í far-
bann dæmdan brota-
mann sem kom til
landsins nýverið, þrátt
fyrir að vera í 10 ára
endurkomubanni, hafði
brotið það end-
urkomubann, verið
staðinn eftir komu sína
að brotum á ávana- og
fíkniefnalöggjöf og
hafði rofið skilorð
vegna þess dóms er
upphaflega leiddi til
endurkomubannsins! Maður sem
lögum samkvæmt var í ólöglegri
dvöl á Íslandi var með þeim úrskurði
skyndilega orðinn „löglegur“ inni í
landinu.
Dvöl dómstóla og sumra lög-
manna í fílabeinsturni fræðanna
breyta ekki þeim raunveruleika að
sum landamæri sem voru háð landa-
mæraeftirliti við gildistöku laga um
meðferð opinberra mála eru nú opin
og eftirlit á þeim ólögmætt. Meðan
svo er verða lögreglustjórar að sýna
hörku við beitingu þvingunarúrræða
laganna svo lengi sem þeim er ekki
breytt. Þá hefur fjöldi útlendinga á
Íslandi og þróun afbrota komið mál-
um af þessu tagi í þá stöðu að vegna
vaxandi fjölda farbannsúrskurða
hefur vandamálið orðið sýnilegt og
aðkallandi. Lögregla, dómstólar og
stjórnmálamenn verða að láta sig
málið varða. Ummæli dóms-
málaráðherra undanfarið gefa
ástæðu til þess að vera bjartsýnn á
að breytingar séu væntanlegar.
Harðir lögreglustjórar – linir dómstólar?
Jóhann R. Benediktsson skrifar
um farbannsútskurði » Þessu verð égað vísa til föð-
urhúsanna...
Jóhann R. Benediktsson
Höfundur er lögreglustjóri
á Suðurnesjum
Fyrir veiðimanninn
í fjölskyldunni þinni
Krókhálsi 5 - Sími 517 8050
- Sportbudin.is -
Síðumúla 8 - Sími 568 8410
- Veidihornid.is -
Hafnarstræti 5 - Sími 551 6760
- Veidimadurinn.is -
Munið vinsælu gjafabréfin okkar
Whitewater skotveiðigalli.
Buxur og jakki.
100% Vatnsheldur galli með góðri útöndun.
Verð aðeins 19.900.
ProLogic Thermo
skotveiðihanskar.
Vatnsheldir og hlýir. Verð aðeins 2.995.
Einnig úr neopren. Verð aðeins 2.295.
Cass Creek
æfingatæki.
Lærðu að flauta á
grágæs, heiðagæs
og önd með Cass Creek.
Verð aðeins 3.995.
Ameristep rúllubaggi.
Vinsælasta felubirgið á markaðnum.
Hvergi betra verð. Aðeins 16.880.
Beretta
skotveiðibakpoki með
byssufestingu. Góður
poki í alla skotveiði. Stillanlegar
mittis, brjóst og axlarólar. Góð
og aðgengileg hólf. Vatnsheld
veðurhlíf fylgir.
Frábært verð. Aðeins 13.495.
Vandað hreinsisett
fyrir haglabyssur.
Burstar, stöng, olía og fleira í góðum kassa.
Verð aðeins 4.880.
Ron Thompson
Aquasafe vöðlupakki.
Góðar öndunarvöðlur og skór.
Fullt verð 28.990. Jólatilboð aðeins 19.995
Dakota útivistarúr.
Frábært úrval vatnsheldra
útivistarúra með áttavita,
hitamæli og fleira.
Verð aðeins frá 4.995.
Dakota Angler II (á mynd)
aðeins 10.990.
Ron Thompson veiðijakki.
Vatnsheldur með útöndun.
Fullt verð 12.900.
Jólatilboð aðeins 9.995.
Nýtt – NRS flotveiðivesti.
Sérhönnuð flotvesti fyrir veiðimenn.
Örugg vesti í alla veiði.
Verð aðeins 12.980.
Sage fluguveiðipakki. Fli
og Launch 4ra hluta stöng í
hólk. Gott LA hjól og RIO flugulína.
Lífstíðarábyrgð frá framleiðanda
á stöng. Frábært verð á alvöru
fluguveiðipakka. Aðeins frá 34.900.
Veiðiflugur Íslands.
Biblía fluguhnýtarans. Bók sem allir
áhugamenn um fluguveiði verða að
eiga. Verð aðeins 3.995.
Wish. Íslenska fluguveiði-
hjólið. Falleg hönnun og vönduð
íslensk smíði. Verð aðeins frá 39.900.
Scierra Explorer veiðitaska.
Afar vönduð og sterk veiðitaska undir
allan veiðibúnaðinn. Vatnsheldur botn.
Verð aðeins 6.995.
Gerviandasett.
12 stokkendur; sofandi, vakandi og kafandi.
Góður bakpoki, bönd og blýsökkur fylgja.
Frábært verð. Aðeins 8.995 fyrir allt þetta.
Lærðu að hnýta silunga-
flugur og Lærðu að
hnýta laxaflugur. Fluguhnýt-
inganámskeið á íslensku á tveim DVD
diskum. Aðeins 2.995 hvor diskur.
Ron Thompson reykofn.
3 stærðir. Gott verð eða aðeins frá
5.995.- Einnig reyksag á 695.
Simms L2 vöðlupakki.
Langbesta verð landsins á
Gore-Tex vöðlum. Simms L2
vöðlur og Simms skór.
Fullt verð kr. 44.800.
Jólatilboð aðeins 34.900.
Rjúpnaveiðivesti.
Nauðsynleg í rjúpnaveiðina. Margir vasar fyrir
veiðina, GPS, GSM, veiðikortið, nestið og fleira.
Fullt verð 7.990. Jólatilboð aðeins 6.490.-
Beretta PacLite skotveiðigalli og
ókeypis Garmin Etrex GPS tæki.
Algjörlega vatnsheldur, þunnur Gore-Tex galli,
frábær á rjúpu, hreindýr eða heiðagæsina.
Garmin Etrex GPS tæki fylgir ókeypis.
Fullt verð 61.800. Tilboð til jóla aðeins 39.900.
Scierra hjólatöskur
í þrem stærðum.
Fyrir 5 til 10 hjól.
Verð aðeins frá 2.995.
Lureflash
fluguhnýtingasett.
Úrval af efni og handverkfærum ásamt
öngulheldu og DVD hnýtingakennslu í
góðri tösku. Minna sett aðeins 5.595.
Stærra sett aðeins 7.995.