Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Jólaskákmót Taflfélagsins Hellis, sem er best sótta barna- og ung- lingaskákmót hvers árs, verð- ur haldið nk. laugardag, en gera má ráð fyrir um 150 þátttakendum. Mótið hefst í Ráð- húsi Reykjavíkur kl. 13 og tekur um þrjár klukkustundir. Þátttaka er ókeypis fyrir börn og foreldra. Keppt er í fjórum aldursflokkum. Jólapakkar eru í verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki, auk þess er happdrætti um þrjá pakka í hverjum aldursflokki fyrir sig. Glæsilegt happdrætti er svo í lokin auk þess sem allir keppendur fá nammipoka. Jólapakkamót HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur dæmt karlmann á þrítugsaldri í 40 þúsund króna sekt fyrir brot gegn dýraverndarlögum en mað- urinn sleppti tveimur köttum, sem voru í hans umsjá, lausum og skildi þá eftir við hesthús á Hólmsheiði í Reykjavík. Þar fundust kettirnir í mars sl. Fram kemur í dómnum, að mað- urinn hafi með því að sleppa kött- unum í lok febrúar eða byrjun mars vanrækt að sjá tveimur köttum í sinni eigu fyrir viðunandi vist- arverum og fullnægjandi fóðri, drykk og umhirðu. Sekt vegna meðferðar á köttum FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ hefur gefið út leiðbeiningarit um upplýs- ingalög í þágu almennings. Upplýsingarlögin tóku gildi þann 1. janúar 1997 og hafa þau eytt óvissu um heimild stjórnvalda til þess að veita almenningi aðgang upplýsingum úr stjórnkerfinu. Með upplýsingalögunum var stofnuð sérstök úrskurðarnefnd um upplýs- ingamál og er henni ætlað að leysa úr ágreiningsmálum sem snerta að- gang almennings að upplýsingum hjá hinu opinbera. Með leiðbeiningaritinu er ætlun- in að skýra upplýsingalögin, hvaða takmarkanir gilda um aðgang al- mennings að upplýsingum hjá hinu opinbera og kæruleiðir fyrir úr- skurðarnefnd upplýsingamála. Upplýsingarit FORSTJÓRAR Landhelgisgæslu Ís- lands og Landmælinga Íslands hafa undirritað samstarfssamning um landupplýsingar. Markmið samn- ingsins er að auka samstarf stofn- ananna á sviði kortagerðar, land- fræðilegra upplýsingakerfa, landmælinga og til að samnýta sér- þekkingu og gögn. Stofnanirnar munu koma sér saman um sameig- inlega verkefnaskrá er varðar þessi atriði. Einnig munu þær sameig- inlega vekja athygli á gildi land- upplýsinga á Íslandi. Gengið var frá verkefnaskrá fyrir komandi starfsár sem innifelur meðal annars þarfagreiningu vegna söfnunar gagna til kortagerðar af Breiða- firði og frumvinnu vegna sameig- inlegrar skilgreiningar á strand- línu Íslands. Samstarf um upplýsingar STUTT ÍSFÉLAG Vestmannaeyja hf. og Kristinn ehf. tilkynntu til kauphallar í gær að kaupréttur yrði ekki nýttur á eignarhlut Stillu og tengdra félaga bræðranna Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona í Vinnslustöðinni, VSV. Um er að ræða 32% hlut en kaupréttarsamningur var gerður 24. nóvember sl. með ákveðnum skilyrð- um sem átti að uppfylla fyrir 19. des. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Ísfélagsins, segir að meginástæða þess að kaupréttur- inn á bréfum Stillu hafi ekki verið nýttur sé sú að ekki hafi tekist að uppfylla meginskilyrði Ísfélagsins og Kristins ehf. um að auka hlutinn í Vinnslustöðinni í 35%, ekki aðeins að kaupa 32% hlut Stillu. „Við gerðum tilboð í hlut Lífeyris- sjóðs Vestmannaeyja, sem við höfð- um góðar vonir um að fá keyptan, en lífeyrissjóðurinn tilkynnti okkur um að hann myndi ekki selja. Í gær- kvöldi [fyrrakvöld] varð ljóst að við myndum því ekki ná þessu 35% marki, sem var algjört skilyrði af okkar hálfu. Því ákváðum við ekki að fara lengra með málið,“ segir Gunn- laugur Sævar, en afstaða lífeyris- sjóðsins kom honum mjög á óvart. „Þetta eru kaldar kveðjur til Ís- félagsins. Mér finnst þetta fólk ekki hugsa vel um hagsmuni eigenda sjóðsins, þeirra sem munu njóta líf- eyris í framtíðinni,“ segir Gunnlaug- ur Sævar og bendir á að Ísfélagið hafi boðið hátt verð fyrir hlutinn, eða 7,90. Lífeyrissjóðurinn hafi fyrir um ári selt í VSV á genginu 5,0. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri VSV, segist hafa átt ágætis viðræður við Ísfélagið. Það hafi viljað fara í 35% en enginn viljað selja þeim bréf, þ.á m. Vinnslustöðin. „Við viljum reka fyr- irtækið áfram jafnt fyrir alla aðila og hugsum um hag allra hluthafa. Inn- an fyrirtækisins hefur verið eining um reksturinn en hins vegar hafa verið átök um eignarhaldið. Við verðum að skilja þar á milli,“ segir Sigurgeir Brynjar. Ekki náðist í Guðmund Kristjáns- son í gær en miðað við stöðuna núna virðast Stilla og tengd félög föst inni með þriðjungshluti sína í VSV. „Kaldar kveðjur til Ísfélagsins“ Morgunblaðið/ÞÖK Vinnslustöðin Ekkert verður af kaupum Ísfélagsins og Kristins ehf. á hlut Stillu og tengdra félaga í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. Ísfélagið nýtir ekki kauprétt á bréfum Stillu í VSV HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt 27 ára gamlan karl- mann, Guðmund Frey Magnússon, í 3½ árs fangelsi fyrir brennu og til- raun til ráns ásamt fleiri brotum. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða eigendum parhúss í Þorláks- höfn, sem hann kveikti í, samtals 1,4 milljónir króna í skaðabætur. Maðurinn var fundinn sekur um að hafa farið inn í parhús í Þorláks- höfn og stolið þaðan ýmsum munum. Þetta gerðist í janúar á þessu ári. Síðar sömu nótt sótti hann sér bens- ínbrúsa og fór með hann inn í íbúð- ina, hellti úr honum á nokkrum stöð- um og kveikti í. Sagðist Guðmundur Freyr hafa gert þetta til þess að eyða fingraför- um sem hann kynni að hafa skilið eft- ir sig við þjófnaðinn. Hann sagðist ekki hafa gert sér grein fyrir því að um parhús var að ræða. Kolbrann íbúðin öll að innan og allt sem inn- anstokks var. Þá lagði reyk yfir í næstu íbúð, þar sem kona svaf og tvö börn. Nágranni konunnar vakti fólk- ið sem forðaði sér út. Í þessari íbúð urðu skemmdir af reyknum og varð fólkið að flytja þaðan um tíma. Maðurinn var einnig fundinn sek- ur um að hafa farið í september á síð- asta ári inn í söluturn í Reykjavík, vopnaður hnífi, krafið afgreiðslu- manninn um peninga úr búðarkass- anum og ógnað honum jafnframt með hnífinum. Afgreiðslumaðurinn forðaði sér á hlaupum út um bakdyr en Guðmundur Freyr stökk yfir af- greiðsluborðið og veitti honum eft- irför með hnífinn á lofti. Af mynd- bandsupptöku úr búðinni má sjá hvar Guðmundur Freyr hleypur á hæla afgreiðslumanninum út úr búð- inni með hnífinn brugðinn fyrir framan sig. Segir dómurinn að ránstilraun Guðmundar Freys og brennubrot hafi verið hættuleg og harðsvíruð. Hann var einnig fundinn sekur um akstur undir áhrifum fíkniefna og fleiri brot og sviptur ökuréttindum ævilangt. Í dómnum kemur fram að hann eigi að baki nokkurn sakaferil allt frá árinu 1996 og sjö sinnum ver- ið dæmdur til fangelsisvistar, síðast í 16 mánaða fangelsi nú í febrúar. Málið dæmdi Pétur Guðgeirsson héraðsómari. Verjandi ákærða var Sigurður Sigurjónsson hæstaréttar- lögmaður. Sækjandi var Hulda Elsa Björgvinsdóttir, fulltrúi ríkissak- sóknara. Dæmdur fyrir íkveikju  Sagðist hafa verið að eyða fingraförum  Reyndi líka rán í söluturni vopnaður hnífi og hlaut þriggja og hálfs árs fangelsiTVEIR strákar á táningsaldri frömdu vopnað rán í verslun 10-11 í Grímsbæ í Reykjavík í gærkvöld. Komu þeir inn í verslunina með grímur fyrir andliti og vopnaðir kylfum að sögn lögreglunnar. Þeim tókst að hafa á brott með sér lítil- ræði af peningum. Lögreglan fékk nægilega góða lýsingu á ræningj- unum til að grunur félli á tvo til- tekna pilta og var því farið heim til annars þeirra til að athuga hvort sá grunur væri réttur. Þar voru báðir piltarnir og í fórum þeirra fannst ránsfengurinn. Þeir voru færðir á lögreglustöð til skýrslutöku. Tiltölulega stutt er síðan vopnað rán var framið í verslun en það var í Sunnubúðinni í Hlíðahverfi síðla nóvember en þar voru að verki þrír unglingar með þann fjórða til að- stoðar á flóttabíl. Teknir fyrir vopnað rán í 10-11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.