Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 67 SYSTIR söngkonunnar Britney Spears er ólétt. Sú heitir Jamie Lynn Spears og er aðeins sextán ára. Jamie Lynn og verðandi barns- faðir hennar, Casey Aldridge, eru sögð hafa hist í kirkju en Aldridge mun vera úr verkamannafjölskyldu í Tennessee. Eftir að fréttin um þungunina barst eins og eldur í sinu um heim- inn í gær sendi Jamie Lynn frá sér tilkynningu þar sem hún ráðleggur ungum aðdáendum sínum að fresta því að stunda kynlíf þar til þeir hafa gengið í hjónaband. „Mér finnst fólk alls ekki eiga að stunda kynlíf fyrir hjónaband,“ segir hún. „Það er betra að bíða. Ég get hins vegar ekki dæmt neinn vegna þeirrar aðstöðu sem ég hef komið sjálfri mér í,“ segir hún. Jamie Lynn segir að hún og Ald- ridge hafi fengið áfall þegar þau komust að því að þau ættu von á barni. „Það var okkur báðum áfall. Það kom algerlega á óvart,“ segir hún í viðtali við bandaríska tíma- ritið OK! Jamie Lynn, sem hefur farið með hlutverk í sjónvarpsþættinum Zoey 101, segist vera komin tólf vikur á leið. „Það liðu tvær vikur áður en ég sagði nokkrum frá þessu. Það vissi það enginn nema einn vinur minn, enda þurfti ég að gera það upp við sjálfa mig hvað mér þætti rétt að gera áður en ég léti skoð- anir annarra hafa áhrif á mig. Eft- ir það sagði ég foreldrum mínum og vinum frá þessu. Ég var hrædd, en ég varð að gera það sem mér fannst rétt. Mömmu var mjög brugðið þar sem þetta var alls ekk- ert sem hún átti von á. Hún þurfti viku til að jafna sig og síðan hefur hún sýnt mér mikinn stuðning.“ Lynne, móðir Spear-systra, hef- ur í kjölfar fréttanna hætt við út- gáfu bókar sem hún hefur skrifað um uppeldi Jamie Lynn, en hún skrifaði samsvarandi bók er Brit- ney var unglingur. „Ég trúði þessu ekki þar sem Jamie Lynn hefur alltaf verið svo samviskusöm,“ seg- ir hún. Eldri dóttir Lynne, Britney, missti nýlega forræði yfir tveimur ungum sonum sínum vegna gruns um drykkju og lyfjaneyslu. Ekki stunda kynlíf fyrir hjónaband Ólétt Jamie Lynn Spears er komin 12 vikur á leið. EGILL Ólafsson er afskaplega fjöl- hæfur maður og svei mér þá, oft hef- ur undirrituðum þótt hann heldur vanmetinn. Egill er listamaður fram í fing- urgóma og býr yfir snilligáfu, en um það efast varla nokkur sem hefur séð hann að störfum. Oftlega er honum brigslað um að vera helst til hátimbraður, tilgerðarlegur jafn- vel, og það er svosum skiljanlegt. Egill er þó margslungnari en svo en eitt er víst, hann er dæmdur til að þjóna listinni, er í raun heltekinn sköpunarþrótti og náðargáfu á því sviðinu, hvort sem honum líkar bet- ur eða verr. Hymnalög, sálmaplata sem hann vinnur með píanistanum Jónasi Þóri, ber þessu fagurt vitni. Platan er eig- inlega falleg að forminu til, efnivið- urinn það kræsilegur að það hefði eitthvað mikið þurft að koma til, svo að mál myndu klúðrast. Umslagið segir t.a.m. mikið um innihaldið. Uppistaðan er einföld, söngur og píanóleikur, og þessi tilhögun gefur plötunni styrk sinn og kraft. Hún er lágstemmd og innileg og sálmarnir eru fluttir af natni og virðuleik. Til- gerð og látalæti er ekki að finna. Agli hefur tekist að knýja lögin úr sálmunum, laglínan, hrein og tær, er þjónustuð af þeim félögum af auð- mýkt og er eins og þeir standi nokk- urn veginn bakatil í flutningnum. Egill er þá sérstaklega innblásinn í sálminum kunna, „Ó Jesú bróðir besti“, gullfallegt alveg hreint og „Með gleðiraust og helgum hljóm“ er glæsilegt, en þar fær orgelið að njóta sín. Sérstaklega ber að hrósa upptökumanni, Finni Hákonarsyni, sem hefur náð að búa þannig um hnútana að það er eins og Egill standi inni í stofu hjá manni. Ekki slæmt það! Hér er vel að verki staðið og plata þessi glæsileg viðbót í ferilsskrá meistarans. Í bljúgri bæn TÓNLIST Geisladiskur Egill Ólafsson og Jónas Þórir – Hymnalög bbbbn Arnar Eggert Thoroddsen mbl.is smáauglýsingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.