Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 21
www.oryggi.is
Hringdu í 570 2400 og fáðu öryggi í áskrift!
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
Þrír mánuðir ókeypis. Prófaðu núna!
• Heimaöryggi felur í sér innbrotsvörn, næturgæslu, brunaviðvörun og vatnsviðvörun
• Engin krafa er gerð um framhaldsviðskipti, gríptu því tækifærið núna!
• Tilboðið gildir til 24. desember
• Í boði á þeim þéttbýlisstöðum landsins þar sem Öryggismiðstöðin hefur þjónustuaðila
og sinnir útkallsþjónustu
Þú vilt ekki
hvaða jólasvein
sem er
inn um gluggann
hjá þér!
JÓLATILBOÐ
á Heimaöryggi
Hver vakta
r
þitt heimil
i?
HÉR verður fjallað um annan
tveggja diska þar sem klassískar
söngkonur ganga til liðs við djass-
menn. Slíkt er þó engin nýlunda og á
árum áður sungu þeir Kristinn
Hallsson og Guðmundur Jónsson
stundum með tríói Guðmundar Ing-
ólfssonar, svo íslensk dæmi séu
nefnd.
Sólrún Bragadóttir og Sigurður
Flosason gengu í sama skóla ung að
árum í Bandaríkjunum. Það var þó
löngu seinna að til tals kom að þau
rugluðu saman reytum í tónlistinni;
dívan og djasssaxinn. Úr varð hin
skemmtilegasta blanda þar sem Sól-
rún slær hvergi af í hefðbundinni
túlkun á íslenskum söngperlum, en
Sigurður skreytir með spunnum
saxófónblæstri. Lögin eru sextán;
allt frá þjóðvísum til klassískra
sönglaga og nýrri verka. Auk þess
spinna þau saman sjö drauma og er
þar oft að finna skemmtilegustu
spretti skífunnar – í það minnsta
fyrir forfallinn djassgeggjara. Sig-
urður blæs í tenórsaxófón, sem er sú
saxófóntegund þar sem hann hefur
hrjúfastan tóninn. Kannski er
ástæðan að titurlítill og kaldur ten-
órtónn hans er andstæða heitrar
titrandi sópranraddarinar. Kalda-
lóns er tíðindalítill hjá þeim en í
þjóðvísunum tveimur: „Ó mín flask-
an fríða“ og „Hani, krummi, hundur,
svín“ bregður Sigurður fyrir sig
hermilistinni og galdrar fram brosið.
Síðasti dansinn eftir Kalla Run. er
sérdeilis flott fluttur og í Kossavís-
um Páls Ísólfssonar eru kossaeffekt-
ar Sigurðar við hæfi. Sigurði tekst
vel að magna dramað í Sjá dagar
koma eftir Sigurð Þórðarson en í
Draumalandi Sigfúsar Einarssonar
er engu bætt við. Það er lítið að
marka að heyra lag og lag af þessari
skífu í útvarpi. Hennar þarf að njóta
í heild í næði. Hún brýtur múra.
Sópranar ganga í djassbjörgin
TÓNLIST
Geisladiskur
Dimma 2007
Sólrún Bragadóttir og Sigurður Flosason:
Dívan og jazzmaðurinn bbbmn
Vernharður Linnet
Morgunblaðið/Þorvaldur Örn
Díva og jazzmaður Sólrún Bragadóttir og Sigurður Flosason.
ÁRIÐ 2004 samdi tónskáldið og
píanóleikarinn Snorri Sigfús Birgis-
son tónverkið Stúlkuna í turninum,
við samnefnt ævintýri eftir Jónas
Hallgrímsson, að beiðni Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands sem flutti
verkið í grunnskólum nyrðra vet-
urinn 2005-2006. Nú hefur verkið
verið hljóðritað og gefið út á geisla-
diski svo fleiri geti notið þess. Flytj-
endurnir eru þrettán talsins;
strengjakvartett, blásarar, píanó og
slagverk. Snorra tekst að skapa lit-
ríka og skemmtilega umgjörð um
söguna. Tónlistin er viðburðarík eins
og sagan og þó nokkuð krefjandi í
hlustun, svo ljóst er að tónskáldið
vanmetur ekki unga áheyrendur,
sem er mjög jákvætt. Flutningur
tónlistarinnar er góður, sveitin hefur
greinilega tileinkað sér efnið vel og
er prýðilega samstillt í tónum, takti
og dýnamík.
Það er mjög vandasamt verk að
samhæfa lestur og tóna í eina frá-
sögn. Snorri er í grunninn ágætis
sögumaður en þó er eins og hann sé
á köflum fjötraður af tónsköpuninni í
lestri sínum, þ.e. eins og sum orð eða
orðasambönd séu óþarflega bundin
augnablikum í tónlistinni í tíma,
þannig að setningarnar verða hægar
og sundurslitnar og lúta ekki lög-
málum talaðs máls. Þetta veldur því
að stundum er erfitt að halda þræði í
frásögninni án þess að hafa textann
til hliðsjónar (en hann má finna í
bæklingnum, ásamt myndum). Þar
sem sagan teygir sig á þennan hátt
yfir tónlistina eru fá hlé á lestrinum,
og þar með tækifæri til að lifa sig inn
í söguna eins og tónlistin segir hana.
Ekki bætir úr skák að stundum er
lesturinn allveikur í mixinu. Á móti
kemur að með endurtekinni hlustun
ættu bæði sagan og tónlistin að
verða hlustandanum kunnugleg og
þá ættu þessi tvö líku en um leið
ólíku öfl, orðin og tónlistin, að stríða
minna um athyglina og vinna betur
saman.
Efnið er í grunninn mjög vandað,
sagan skemmtileg, tónlistin frábær
og myndskreytingarnar fallegar og
því má öruggt teljast að þessi hljóm-
diskur bjóði upp á upplifun sem
dýpkar með tímanum. Hver veit svo
nema unga kynslóðin, sem elst upp
við meira og flóknara áreiti, eigi ekki
í neinum vandræðum með að gleypa
þetta allt saman í einum bita?
Ólöf Helga Einarsdóttir
Glímt við
frásagnar-
listina
TÓNLIST
Geisladiskur
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flytur
tónverkið Stúlkuna í turninum eftir
Snorra Sigfús Birgisson, við samnefnt
ævintýri Jónasar Hallgrímssonar. Sögu-
maður: Snorri Sigfús Birgisson. Stjórn-
andi: Guðmundur Óli Gunnarsson. Hljóð-
ritun: Sveinn Kjartansson. Eftirvinnsla:
Sveinn Kjartansson, Þorbjörg Daphne
Hall, Snorri Sigfús Birgisson. Myndir:
Veronica Nahmias. Steinabær gefur út og
Íslensk tónverkamiðstöð dreifir.
Snorri Sigfús Birgisson – Stúlkan í turn-
inum – Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
bbmnn