Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 59
NÚ þegar jólagjafavertíðinni er um
það bil að ljúka má ætla að þeir séu
einir eftir á jólagjafalistanum sem
manni þykir síst vænt um. Hér að
neðan eru nokkrar tillögur að jóla-
gjöfum fyrir þá sem þú kallar
„óvini“ þína:
1. Hlutabréf í FL-Group.
2. Ársmiðar á landsleiki íslenska
karlaliðsins í knattspyrnu.
3. Listaverk eftir Þórarin Jónsson
sprengjulistamann.
4. Kynningarnámskeið hjá Vís-
indakirkjunni.
5. Skýrsla um REI-málið frá upp-
hafi til enda og frá öllum hlið-
um.
6. Bókin Hvernig gerirðu konuna
þína hamingjusama? eftir Þor-
grím Þráinsson – mjög villandi
skilaboð.
7. Súkkulaðigosbrunnur Vöru-
torgsins – fótanuddstæki hvað!
9. Pókerspilasett – vís leið til að
gera menn gjaldþrota.
10. Ný plata Luxor – gagnrýnendur
eru á einu máli.
Morgunblaðið/Ómar
OR Grundvallarspurningin sem
hver og einn þarf að spyrja sig er
hlutverk hins opinb ... zzzz zzzz
Morgunblaðið/ÞÖK
Ársmiði á tap-
leiki Enn eitt
tapið hjá þess-
sum helv ...
þjálfara!?
Hókus-Póker Eins og ólsen ólsen,
bara miklu, miklu verra.
Sniðugt Hvað
ætli það taki
langan tíma að
þrífa gosbrunn
eins og þennan.
Fallvalta líf Á hinn bóginn segja
sumir að eina leiðin sem sé fær liggi
uppávið.
Sprengjulistamaður Allar líkur eru á því að listaverkið komi þér í steininn.
Myrkraverk? Á hinn bóginn virðist enginn hlusta á þessa blessuðu gagn-
rýnendur þegar sveitin er annars vegar.
Jólagjafir
handa óvin-
um þínum
BRESKI tónlist-
armaðurinn Tim Ten
Yen kemur fram á
fyrstu jólatónleikum
Two Little Dogs sem
fram fara á Organ í
kvöld. Tim Ten Yen er
sagður nýstirni á
hraðri uppleið í breska
tónlistarheiminum en
hann er helst hylltur
fyrir einstaka hæfi-
leika sína til að fram-
reiða grípandi laglínur.
Tim kemur fram á tón-
leikunum vopnaður
einungis hljómborði og
reykvél en þá fylgir
honum við hvert fótmál
„Kaldrifjaði kötturinn“
(The Sinister Cat) sem er einskonar
tuskubrúða sem slær taktinn með
skottinu. Ýmislegt þyk-
ir benda til þess að það
sé í raun kötturinn sem
er við stjórn og Tim sé
bara hjálparkokkur
hans.
Í tilefni af jólahátíð-
inni verður svokallað
„eggnog“ í boði á meðan
birgðir endast, handa
þeim gestum sem mæta
fyrstir á staðinn, en þó
ekki lengur en til kl. 22.
Hljómsveitirnar
Hellvar og Sexy Jazz
hita upp, en sú síð-
arnefnda sam-
anstendur m.a. af með-
limum Bertel! og
Sometime. Tónleikarn-
ir hefjast stundvíslega kl. 22. Að-
gangseyrir er 1.000 kr.
Tim Ten Yen ásamt ketti
Snyrtilegur Tim Ten
Yen er mikið snyrti-
menni eins og sjá má.
BRAD Pitt er síð-
asti leikarinn til
þess að skrifa
undir að vera
með í næstu
mynd snillingsins
sérvitra, Terence
Malick.
Myndin heitir
Tree of Life og
kemur Pitt að því
er virðist í stað Heaths Ledger, sem
er þessa dagana við tökur á mynd
Terry Gilliam, The Imaginarium of
Doctor Parnassus, en það er þó
varla ástæðan þar sem tökur á Lífs-
trénu hefjast ekki fyrr en í vor.
Gamla brýnið Sean Penn er einnig í
myndinni og líkur eru á að töluvert
fleiri stjörnur muni taka þátt.
Brad Pitt í
Lífstrénu
Brad Pitt
Jólagjöfin í ár
til þeirra sem þér er annt um
Gleðilega hátíð!
Starfsmenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins