Morgunblaðið - 20.12.2007, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Seoul. AP, AFP. | Fyrrverandi forstjóri stórfyrir-
tækisins Hyundai, Lee Myung-bak, sem hefur
verið kallaður „Jarðýtan“, malaði keppinauta sína
í forsetakosningum í Suður-Kóreu í gær.
Lee, sem er einnig fyrrverandi borgarstjóri
Seoul, sigraði þrátt fyrir ásakanir um að hann
væri viðriðinn ólöglegt hlutabréfabrask. Hann er
íhaldsmaður og með sigrinum batt hann enda á tíu
ára valdatíma frjálslyndra forseta. Fráfarandi for-
seti, Roh Moo-hyun, hefur átt undir högg að
sækja, einkum vegna ásakana um að hafa glutrað
niður örum hagvexti í landinu.
Lofar auknum hagvexti
Búist er við að Lee beiti sér fyrir nánara sam-
starfi við bandarísk stjórnvöld og taki harðari af-
stöðu til kommúnistastjórnarinnar í Norður-Kór-
eu en stjórn Roh sem hefur verið gagnrýnd fyrir
að hafa ekki sett nein skilyrði fyrir stórfelldri að-
stoð við Norður-Kóreu. Lee kveðst ætla að bjóða
Norður-Kóreumönnum mikla aðstoð en gegn
ströngum skilmálum um kjarnorkuafvopnun.
Lee fékk 48,7% atkvæðanna og helsti keppi-
nautur hans, Chung Dong-young, forsetaefni
frjálslynda stjórnarflokksins Sameinaða nýja lýð-
ræðisflokksins, fékk 26,7% fylgi. Er þetta mesti
munur í forsetakosningum í Suður-Kóreu og kjör-
sóknin var minni en nokkru sinni fyrr, um 63%.
Stjórnmálaskýrendur sögðu að svo virtist sem
kjósendurnir væru svo áfjáðir í breytingar að þeir
væru tilbúnir til að líta framhjá ásökunum um sið-
ferðilegar yfirsjónir Lee.
Skömmu fyrir kosningarnar samþykkti þingið
að óháðum lögmanni yrði falið að rannsaka meint
hlutabréfamisferli Lee. Rannsókninni á að ljúka
áður en forsetinn sver embættiseiðinn 25. febrúar.
Lee neitar því að hann sé viðriðinn misferli og
kveðst ætla að víkja verði hann fundinn sekur.
Lee hefur heitið því að auka hagvöxtinn í 7%,
tvöfalda þjóðartekjurnar á hvern landsmann og
gera Suður-Kóreu að einu af sjö stærstu hagkerf-
um heims.
Fyrrverandi viðskiptajöfur
kjörinn forseti S-Kóreu
AP
Sigurvegarinn Lee Myung-bak fagnar sigri með
eiginkonu sinni, Kim Soon-ok, í Seoul í gær.
Búist er við að hann setji strangari skilyrði fyrir aðstoð við Norður-Kóreu
HIÐ fegursta vetrarveður er nú víða í Evrópu, heið-
skírt og stillt og tilvalið til alls konar útivistar eins og
til dæmis hér í Svartaskógi í Suður-Þýskalandi. Er víða
spáð hvítum jólum og ástæðan er víðáttumikil, kyrr-
stæð hæð yfir Vestur-Evrópu. Önnur afleiðing þessarar
miklu hæðar er svo veðurfarið hér á Fróni en hæðin
beinir öllum lægðunum beint yfir landið með tilheyr-
andi stórviðrum og miklum vatnsgangi. Virðist ekki
mikil von um, að úr rætist alveg á næstunni, en þó er
ekki alveg loku fyrir það skotið, að hér geti gránað í
rót um það leyti sem jólahátíðin gengur í garð. Það
mun væntanlega skýrast á næstu dögum.
AP
Vetraryndi í Svartaskógi
SAMSKIPTI Rússa og Breta verða
æ stirðari vegna ýmissa deilumála,
ekki síst vegna eiturmorðsins á rúss-
neska andófsmanninum Alexander
Lítvínenkó í London í júlí. Margir
gruna flugumenn rússneskra ráða-
manna um verkið. Nýlega bönnuðu
Rússar menningarsamtökunum
British Council að starfa í landinu og
nú hafa þeir dregið til baka boð um
að senda fræg málverk á sýningu í
Konunglegu akademíunni.
Utanríkisráðherra Rússlands,
Sergei Lavrov, hefur viðurkennt að
bannið við starfsemi British Council
sé svar við því að Bretar ráku úr
landi fjóra diplómata Rússa vegna
Lítvínenkó-málsins.
Um er að ræða sýningu á rösklega
100 rússneskum og frönskum verk-
um sem átti að opna í lok janúar
2008, að sögn vefsíðu breska blaðsins
Guardian. Verkin eru nú á sýningu í
Þýskalandi en áttu að fara þaðan til
London. Yfirmaður Púskín-safnsins í
Moskvu, Írína Antonova, sagði að
verkin, sem eru frá fjórum rúss-
neskum söfnum, yrðu næst send
heimleiðis. Ástæðan væri ótti um að
þeim yrði ekki skilað aftur til Rúss-
lands vegna lagaþrætu um eign-
arhaldið.
Mörg verkanna voru eitt sinn í
eigu Sergeis Sjúkíns, þekkts safnara
á keisaratímanum. Afkomendur
hans á Vesturlöndum hafa nokkrum
sinnum lagt fram árangurslausar
kröfur um að fá aftur málverkin en
kommúnistar lögðu hald á þau 1917.
Bretar segja algerlega öruggt að
þeim verði skilað en Antonova segir
þá ekki geta tryggt að svo verði.
Samskipti Rússa og Breta aftur í hnút
Hætta við að lána málverk
AP
Aflýst? Vegfarendur við auglýsingaspjald Konunglegu akademíunnar í
London þar sem minnt er á sýningu verkanna frá Rússlandi.
EKKI er annað að sjá en að Hillary
Clinton hafi endurheimt það forskot,
sem hún hafði á Barack Obama með-
al demókrata í New Hampshire en
fyrir aðeins nokkrum dögum virtust
þau standa þar jafnfætis.
Í nýrri CNN/WMUR-könnun fær
Clinton 38% en Obama 26%, mun-
urinn er 12 prósentustig. John Ed-
wards er þriðji með 14% en aðrir eru
með innan við 10%. Í könnun Wash-
ington Post kemur aftur fram, að
Obama hefur forystuna í Iowa, með
33% á móti 29% hjá Clinton.
Meðal repúblikana er Mitt Romn-
ey, fyrrverandi ríkisstjóri í
Massachusetts, með 34%, John
McCain með 22% og Rudy Giuliani,
fyrrverandi borgarstjóri í New
York, með 16%. Mike Huckabee er
fjórði með 10%.
Athygli vekur, að 74% repúblik-
ana og 65% demókrata í ríkinu hafa
ekki gert upp hug sinn enn og segj-
ast margir þeirra síðarnefndu ætla
að bíða eftir niðurstöðunum í Iowa
en þar verða fyrstu forkosningarnar
3. janúar. Í New Hampshire verða
þær 8. janúar.
Clinton
sækir í sig
veðrið
Hefur nú 12 stiga
forskot á Obama í
New Hampshire
Sameinuðu þjóðirnar. AFP. | Örygg-
isráði Sameinuðu þjóðanna tókst
ekki að leysa pattstöðuna í deilunni
um Kosovo í gær. Fulltrúar Banda-
ríkjanna og landa Evrópusam-
bandsins sögðu í gærkvöldi að frek-
ari viðræður milli leiðtoga Serbíu
og Kosovo-Albana væru tilgangs-
lausar.
Öryggisráðið kom saman fyrir
luktum dyrum til að ræða deiluna
um framtíð Kosovo og hlýða á ávörp
Vojislavs Kostunica, forsætisráð-
herra Serbíu, og Fatmirs Sejdiu,
forseta Kosovo. Þetta var fyrsti
fundur öryggisráðsins um málið frá
því að fjögurra mánaða viðræðum
leiðtoga albanska meirihlutans í
Kosovo og Serbíustjórnar lauk án
samkomulags 10. þessa mánaðar.
„Ósættanleg“ sjónarmið
Johan Verbeke, sendiherra Belg-
íu, sem talaði fyrir hönd vestrænu
ríkjanna í öryggisráðinu eftir fund-
inn í gær, sagði málflutning leiðtoga
Serbíu og Kosovo-Albana staðfesta
að sjónarmið þeirra væru „ósætt-
anleg“.
Sendiherra Rússlands kvaðst
vera ósammála því mati vestrænu
ríkjanna að ógjörningur væri að
leysa deiluna með frekari samn-
ingaviðræðum.
Búist er við að Kosovo-Albanar
lýsi yfir sjálfstæði en Serbar og
Rússar segja að það myndi vera
brot á ályktun öryggisráðsins.
Segja við-
ræður til
einskis
Vestræn ríki telja útséð
um sátt í Kosovo-deilunni
RANNSÓKNIR, sem fram hafa farið
í Kanada, sýna, að reykurinn af
kannbisefnum, hassi og maríjúana,
er miklu hættulegri heilsunni en tób-
aksreykurinn. Sem dæmi má nefna,
að í kannabis er 20 sinnum meira af
ammóníaki en í tóbaki en það getur
valdið krabbameini.
Frá rannsókninni er sagt í tíma-
ritinu New Scientist og þar kemur
meðal annars fram, að í kannabis er
fimm sinnum meira af blásýrusalti
og köfnunarefnisoxíðum en í tóbaki
en þessi efni eru mjög skaðleg hjarta
og lungum. Í tóbaki er aftur meira
af efnum, sem geta valdið ófrjósemi.
Dr. Richard Russel, sérfræðingur
við Windsor-brjóstmeinamiðstöðina,
segir, að í umræðum um kannabis-
efni gleymist oft hve hættuleg þau
er heilsunni.
Kannabis
hættulegt
♦♦♦