Morgunblaðið - 20.12.2007, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 20.12.2007, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT AÐ minnsta kosti 50 biðu bana og allt að 100 slösuðust þegar farþega- lest fór út af sporinu á braut á milli Karachi og Lahore í Pakistan. Nokkrir lestarvagnanna lentu ofan í vatni en lestirnar voru yfirfullar, enda fjöldi fólks á leið til sinna heimkynna til að eyða Eid-al-Adha- trúarhátíðinni með fjölskyldum sín- um. Slysið átti sér stað um miðja nótt að pakistönskum tíma, í fyrra- kvöld að íslenskum tíma en björg- unarstarf gekk seint og illa og mörgum klukkustundum eftir slys- ið mátti enn heyra fólk hrópa á hjálp. Lestarslys eru algeng í Pak- istan og er skýringin m.a. slæmt ásigkomulag brautarteina. AP Tugir fórust í Pakistan SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRAR aðildarríkja Evrópusambandsins náðu í gærmorgun samkomulagi um kvóta á fiskveiðar aðildarlandanna á næsta ári eftir langar og strangar viðræður í Brussel. Veiðidögum verður fækkað um 9 til 18% á miðum við vestanvert Skotland en þó ekki Norðursjó þar sem 11% aukning á þorskveiðum hafði áður verið ákveð- in með samningi við Noreg vegna betri stöðu stofnanna. Lýst var stuðningi við tillögur um að beita skyndilokunum á svæðum þar sem vísbendingar væru um mikla ofveiði. Richard Lochhead, ráðherra landsbyggðar- og umhverf- ismála í Skotlandi, segir að með nýrri áætlun ESB sé verið að verð- launa „þá ábyrgu forystu sem sjáv- arútvegsfyrirtæki okkar hafa sýnt með því að grípa til hugvitssamlegra aðferða við að draga úr brottkasti og vernda smáfisk“. Niðurskurður við Skotland er minni en þau 25% sem fiskveiðinefnd ESB hafði sóst eftir í ljósi viðvarana frá sérfræðingum um hættuna sem steðjar að stofnunum. Sjómönnum sem taka þátt í sérstökum aðgerðum vísindamanna til að vernda veiði- stofna verður bætt upp tapið með fleiri veiðidögum, að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC. Vegna niður- skurðar er svo komið að skoskir sjó- menn geta nú aðeins stundað veiðar tvo og hálfan dag í hverri viku. Ráðherra sjávarútvegsmála á Norður-Írlandi, Michelle Gildernew, fagnaði einnig samkomulaginu og sagði að um væri að ræða „bestu hugsanlegu lausnina“. Sóknardögum á Írlandshafi var fækkað en hætt við mikinn niðurskurð á veiðikvótum sem rætt hafði verið um. Samið um fiskveiðar ESB fækkar veiðidögum við Skotland ERFIÐLEGA gengur hjá fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins að ljúka gerð umdeildra tillagna um auðveldari aðgang sjúklinga að heil- brigðisþjónustu í öðrum aðildarlönd- um en heimalandinu. Að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC, hefur birtingu tillagnanna enn verið frestað og var því nú borið við að stjórnin þyrfti ráðrúm til að fjalla um nýjar reglur um losun koldíoxíðs frá bílum. Ljóst er að náist samkomulag á áðurgreindum nótum um sjúklinga- málið verður mun auðveldara fyrir fólk að losna við að lenda í biðröð eft- ir aðgerð. Í drögunum er sett það markmið að ríkisborgarar ESB- landanna skuli hafa rétt til að leita sér meðferðar í öðru aðildarríki ef umrædd meðferð er leyfð í þeirra eigin landi. Skuli þá heimalandið borga allan aukakostnað sjúklings- ins af slíku úrræði utan landsins. Dómstóll ESB tók í fyrra fyrir mál 75 ára gamallar konu í Bretlandi, Yvonne Watts, sem greiddi 5.450 evrur, um 490 þúsund krónur, fyrir mjaðmarliðaraðgerð í Frakklandi þar sem hún vildi ekki bíða í heilt ár eftir aðgerð í Bretlandi. Niðurstaða dómstólsins var sú að sjúklingar sem þyrftu að bíða óeðlilega lengi eftir aðstoð, að mati lækna, ættu að hafa rétt á að sækja sér sams konar með- ferð í öðru ESB-landi á kostnað stjórnvalda í heimalandinu. Óttast um breska kerfið Nokkur aðildarríki eru sögð vera á móti tillögunum, ekki síst Bretland, en einnig er líklegt að Spánverjar og Þjóðverjar muni setja sig upp á móti sumum atriðum hugmyndanna. Sumir af þingmönnum stjórnar- flokksins í Bretlandi, Verkamanna- flokksins, óttast að tillögurnar muni hafa í för með sér að til verði frjáls, innri markaður í sambandinu fyrir heilbrigðisþjónustu. Niðurstaðan gæti orðið að ríkisrekna heilbrigð- isþjónustan, NHS, yrði á endanum lögð niður í sinni núverandi mynd. Fulltrúar heilbrigðisráðuneytisins í London hafa þegar sagt skýrum orð- um að hægt verði að breyta tillög- unum í samningaviðræðunum milli aðildarríkjanna. „Við álítum það afar mikilvægt að lagasetningin tryggi að NHS geti áfram ákveðið hvaða með- ferð stofnunin muni kosta þegar um er að ræða þarfir einstakra sjúk- linga,“ sagði talsmaður ráðuneytis- ins. BBC segir að búist sé við að fram- kvæmdastjórn ESB muni leggja til þann milliveg að hvert aðildarríki fái fyrirfram að ákveða hvort það muni greiða fyrir heilbrigðisúrræði í öðru ríki sambandsins. En sett yrði það skilyrði að umrætt ríki legði fram sannanir fyrir því að fjöldi þeirra sem vildu fá meðferð í öðru ríki væri svo mikill að þessi tilhögun myndi hafa áhrif á skipulagningu sjúkra- húsa í heimalandinu. Gert er ráð fyrir að í tillögunum verði einnig ákvæði um aðstoð við sjúklinga sem verða fyrir skaða af einhverju tagi vegna meðferðar utan heimalandsins. Markos Kyprianou, sem fer með heilbrigðismál í fram- kvæmdastjórn ESB, nefndi snemma á þessu ári dæmi um sjúkling sem krafðist skaðabóta er námu 100.000 evrum, liðlega níu milljónum ísl. króna. Fjárhæðin nam helmingnum af andvirði umrædds sjúkrahúss, að sögn Kyprianou. Frjálst flæði læknaþjónustu? Morgunblaðið/ÞÖK Í röðina Margir sætta sig ekki leng- ur við langar biðraðir eftir aðgerð. kt. 490902-2520, hefur birt lýsingar vegna skráningar skuldabréfa á OMX Nordic Exchange Iceland (OMX ICE) og gert þær aðgengilegar almenningi frá og með 20. desember 2007. Eftirfarandi skuldabréfaflokkar hafa verið gefnir út: • Skuldabréfaflokkur að fjárhæð ISK 5.000.000.000 sem var gefinn út þann 16. mars sl. og er auðkenni flokksins á OMX ICE SAMS 07 1. Bréfin verða tekin til viðskipta á OMX ICE þann 20. desember 2007. Skuldabréfin eru í ISK 10.000.000 nafnverðseiningum. Skuldabréfin eru óverðtryggð og skulu bera 16,25% fasta vexti. Höfuðstóll skuldabréfanna og áfallnir vextir greiðist með einni afborgun þann 18. mars 2008. • Skuldabréfaflokkur að fjárhæð ISK 3.500.000.000 sem var gefinn út þann 4. apríl sl. og er auðkenni flokksins á OMX ICE SAMS 07 3. Bréfin verða tekin til viðskipta á OMX ICE þann 20. desember 2007. Skuldabréfin eru í ISK 10.000.000 nafnverðseiningum. Skuldabréfin eru óverðtryggð og skulu bera 3 mánaða REIBOR vexti að viðbættu 220bp álagi. Höfuðstóll skuldabréfanna greiðist með einni afborgun þann 6. október 2008. • Skuldabréfaflokkur að heildarfjárhæð ISK 4.000.000.000 sem var gefinn út þann 14. september sl. Bréf að fjárhæð 2.000.000.000 verða tekin til viðskipta á OMX ICE þann 20. desember 2007. Auðkenni flokksins á OMX ICE er SAMS 07 4. Skuldabréfin eru í ISK 10.000.000 nafnverðseiningum. Skuldabréfin eru verðtryggð og skulu bera 8% fasta vexti. Höfuðstóll skuldabréfanna greiðist með einni afborgun þann 14. september 2012. • Skuldabréfaflokkur að fjárhæð ISK 6.000.000.000 sem var gefinn út þann 14. september sl. Bréf að fjárhæð 3.000.000.000 verða tekin til viðskipta á OMX ICE þann 20. desember 2007. Auðkenni flokksins á OMX ICE er SAMS 07 5. Skuldabréfin eru í ISK 10.000.000 nafnverðseiningum. Skuldabréfin eru óverðtryggð og skulu bera 3 mánaða REIBOR vexti að viðbættu 220bp álagi. Höfuðstóll skuldabréfanna greiðist með einni afborgun þann 14. september 2009. • Skuldabréfaflokkur að fjárhæð ISK 4.000.000.000 sem var gefinn út þann 23. október sl. og er auðkenni flokksins á OMX ICE SAMS 07 6. Bréfin verða tekin til viðskipta á OMX ICE þann 20. desember 2007. Skuldabréfin eru í ISK 10.000.000 nafnverðseiningum. Skuldabréfin eru óverðtryggð og skulu bera 6 mánaða REIBOR vexti að viðbættu 220bp álagi. Höfuðstóll skuldabréfanna greiðist með einni afborgun þann 23. október 2010. Lýsingarnar er hægt að nálgast hjá útgefanda, Samson eignarhaldsfélag ehf., Sigtúni 42, 105 Reykjavík, eða á vefsetri útgefanda www.samson.is fram til lokadags skuldabréfaflokkanna. Umsjónaraðili skráningarinnar á OMX ICE er Landsbanki Íslands. 20. desember 2007 ÍS L E N S K A /S IA .I S /L B I 40 30 4 12 /0 7 ÍS L E N S K A /S IA .I S /L B I 40 30 4 12 /0 7 Samson eignarhaldsfélag ehf. Skráning skuldabréfa
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.