Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 23 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is STÆRSTA hesthúsahverfi landsins og eina reiðhöllin með löglegan keppnisvöll mun í náinni framtíð rísa við Kjóavelli, á mörkum Garða- bæjar og Kópavogs. Gustarar gera ráð fyrir að hefja flutninga á svæðið um áramótin 2008 þegar þeir þurfa að rýma núverandi svæði sitt á Glaðheimum. „Þetta er að fara af stað núna og við förum að sjá fyrir endann á þessu öllu saman,“ segir Bjarnleifur Bjarnleifsson, formaður hesta- mannafélagsins Gusts. „Gustur mun flytja þarna upp eftir af gamla staðnum og væntanlega mun flutn- ingnum verða lokið um önnur ára- mót,“ segir hann. Reiðmennsku á Íslandi mjög til framdráttar Hesthúsabyggingar sem rísa munu í fyrsta áfanga verða þá til- búnar en reiknað er með að lokið verði við stóru mannvirkin 2009- 2010. „Samhliða annarri uppbygg- ingu munu stóru húsin rísa. Þarna verða vellir og stærsta reiðhöll á Ís- landi, sem rúmar löglegan keppn- isvöll innanhúss,“ segir Bjarnleifur. Aðrar reiðhallir á landinu segir hann ekki löglegar til keppni og þetta verði reiðmennsku á Íslandi mjög til framdráttar. „Áætlað er að þarna verði sæti fyrir 2.000 manns, sem þekkist ekki, og ef allt tekst vel verður þarna einfaldlega flottasta aðstaða fyrir hestamenn á Íslandi og þó víðar væri leitað, satt best að segja.“ Á Kjóavöllum verða hesthús fyrir 4.000-4.500 hesta, að sögn Bjarn- leifs. „Við í Gusti erum að fara þarna með liðlega 1.200 hesta. Hestamannafélagið á svæðinu, And- vari, er með um 1.000 hesta,“ segir hann. Bjarnleifur segir verkefnið gríð- arstórt og mikið. „Vonandi náum við að úthluta lóðum fljótlega, það er verið að vinna að þessu hörðum höndum. Þetta er bara stórt og mik- ið mál en vonandi er bara léttari hjallinn eftir,“ segir Bjarnleifur og er bjartsýnn. Býst við sameiningu hesta- mannafélaganna í kjölfarið Kjóavellir eru við Heimsenda og í kring er íbúðarbyggð á tvo vegu. Sunnan við vellina er Heiðmörk og því örstutt í þær reiðleiðir sem þar eru. „Fyrir okkur hestamenn er þetta auðvitað spurning um stað- setningu því byggðin þenst alltaf út. Stóra málið fyrir okkur er að tryggja þær reiðleiðir sem við þurf- um á að halda til að komast út í óbyggðirnar, að þær verði með þeim hætti að þó að það sé byggt í kring trufli það ekki,“ segir Bjarnleifur. Hann segir að nú sé unnið að því að þetta tvennt geti farið saman. Bjarnleifur segir eftirspurnina eftir lóðum í nýja hesthúsahverfinu hafa verið mjög mikla. „Við eigum eftir að vinna úr umsóknunum og það er bara úthlutunarnefnd í því,“ segir hann. „Það er líka mikil eft- irvænting eftir því að byrja á þessu og ég held að þarna geti orðið rosa- lega gott svæði,“ segir hann og bæt- ir því við að hann búist við að í fram- haldinu muni hestamannafélögin á svæðinu sameinast. „Þannig að það verði tvö sveitarfélög sem koma að verkefninu. Ég segi í það minnsta í dag: það er ekki spurning um hvort heldur hvenær.“ Bjarnleifur segist vona að fram- kvæmdir hefjist fljótlega upp úr áramótum. Stærsta hest- húsahverfið og keppnishöllin Morgunblaðið/Golli Áður sveit – nú borg Byggðin þenst út og nú er hesthúsasvæði Gusts í Kópavogi í miðri íbúðarbyggð.   !      "# $% &%'( '()   *+)%,,  -% ,  .,      ! " # "        $%# " # &  " # Mikil uppbygging við Kjóavelli Einar Falur Ingólfsson. Kjartan Þorbjörnsson. Komin er út bókin Í fyrsta kasti eftir ljósmyndarana og stangveiðimennina Einar Fal Ingólfsson og Kjartan Þorbjörnsson. Jólagjöf stangveiðimannsins Í þessari glæsilegu bók er að finna fjölda skemmti- legra veiðisagna frá tugum viðmælenda þeirra félaga ásamt óviðjafnanlegum ljósmyndum frá mörgum helstu veiðisvæðunum hringinn í kringum Ísland. Áskrifendum Morgunblaðsins býðst að fá þessa stórglæsilegu bók á sérstöku verði með 25% afslætti. Fullt verð er 4.990 krónur en verð til áskrifenda er 3.750 krónur. Bókina geta áskrifendur fengið í afgreiðslu Morgunblaðsins að Hádegismóum 2, 110 Reykjavík eða pantað hana á mbl.is. M bl 94 06 02 „Feiknamerkileg bók, stútfull af spennandi upplýsingum um veiðiár- og vötn.“ Bjarni Brynjólfsson, Veiðimaðurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.