Morgunblaðið - 20.12.2007, Page 26
|fimmtudagur|20. 12. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Hollt mataræði og hreyfing
skiptir ekki minna máli fyrir
heilsufar gæludýranna en okkar
mannfólksins. »28
gæludýr
Þeir sem vilja upplifa hvít jól
þetta árið gætu þurft að leggja
land undir fót og þá er gott að
vita hvert skal halda. »31
ferðalög
Verðmunurinn á jólasteikinni og
grænu baununum getur reynst
umtalsverður eins og fram
kemur í verðkönnun ASÍ. »32
verðkönnun
Það er ekki hægt að segja ann-
að en að hús Dominic Luberto í
Boston sé ævintýralegt ásýnd-
ar um jólin. »30
aðventan
Fjöldi matreiðslubóka kom út
fyrir jólin og gefa þær bestu að
mati Árna Matthíassonar inn-
sýn í annan heim. »29
matur
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Lítill afrískur drengur ávon á glaðningi í dag.Blase, sem býr í SOS-þorpi í Afríkuríkinu Búr-
úndí, er búinn að missa báða for-
eldra sína en krakkarnir á leik-
skólanum Síðuseli á Akureyri hafa
nýverið gerst styrktaraðilar hans.
Það fjármagna þeir með því að
safna saman peningum í bauk sem
alla jafna liggur í fataherbergjum
leikskólans. Peningarnir sem í
hann koma eiga að duga fyrir
styrknum og í dag ætla krakkarnir
á Síðuseli að rölta með baukinn í
bankann með leikskólakennar-
anum sínum Guðrúnu Hafdísi Óð-
insdóttur og borga fyrsta gíróseð-
ilinn.
Blase litli er þó ekki sá eini sem
fær að njóta góðs af verkum, sem
tengjast Síðuseli því í gær fengu
Hetjurnar, félag aðstandenda
langveikra barna á Norðurlandi,
afhenta peningagjöf að upphæð tvö
hundruð þúsund krónur. Upp-
hæðin er afrakstur sölu kennslu-
efnisins „Lífsleikni í leikskóla“
sem leikskólakennarar við leik-
skólana Síðusel, Krógaból og
Sunnuból á Akureyri hafa unnið og
gefið út.
Gáfu efnið út sjálfar
Árið 2001 byrjuðu þessir þrír
leikskólar í Síðuhverfi að vinna að
þriggja ára þróunarverkefni í leik-
skólunum sem lauk vorið 2004.
Haustið 2006 leit svo dagsins ljós
afrakstur þessarar vinnu í formi
kennsluefnis sem síðan hefur átt
miklum vinsældum að fagna.
Leikskólar víða um land hafa
falast eftir þessu nýja kennsluefni
til kaups auk þess sem Guðrún
Hafdís, sem er aðstoðarleik-
skólastjóri og verkefnisstjóri í
Síðuseli, hefur fylgt efninu eftir
með því að halda námskeið í inn-
leiðingu kennsluefnisins. „Stað-
reyndin er sú að þrátt fyrir að
leikskólinn hafi verið skilgreindur
sem fyrsta skólastigið hér á landi
síðan árið 1994 er engin stofnun í
landinu sem hefur skyldum að
gegna við útgáfu kennsluefnis fyrir
leikskóla,“ segir hún. „Við rákum
okkur fljótt á að annaðhvort yrði
efnið ekki gefið út eða við gerðum
það sjálfar þó að upphaflega hug-
myndin hefði verið að eiga höfund-
arréttinn en selja útgáfuréttinn.“
Hún segir að aðallega hafi ríku-
legur styrk frá Kristnihátíðarsjóði
gert þessa útgáfu mögulega. „Nú,
eftir að hafa selt kennsluefni og
námskeið, eigum við í handrað-
anum fjárhæð, sem við viljum
gjarnan láta renna til þeirra sem á
þurfa að halda. Við höfum valið
Hetjurnar til að veita gjöfinni við-
töku enda höfum við heyrt af
gróskumiklu starfi þessa fé-
lagsskapar og efumst ekki um að
þessi gjöf muni nýtast vel.“
Leikskólakennararnir, sem unnu
að verkefninu, höfðu í upphafi
einkum hug á að kanna hvort
skipuleg siðferðisumræða með
leikskólabörnum hefði áhrif á aga í
leikskólastarfi. Þóttu hugmyndir
þeirra falla einkar vel að lífsleikni í
aðalnámskrá leikskóla frá árinu
1999.
Efla siðferðisvitund
Markmiðið með efninu er að efla
siðferðisvitund barna og fullorð-
inna í gegnum vinnu með dygðir í
þeim tilgangi að verða bæði góð og
fróð manneskja. Unnið hefur verið
með tólf dygðir sem eru vinsemd,
virðing, hófsemi, glaðværð, hug-
rekki, hjálpsemi, þolinmæði,
sköpunargleði, kurteisi, áreið-
anleiki, samkennd og ábyrgð. Önn-
ur markmið eru að auka virðingu
fullorðinna fyrir tilfinningum
barna, efla samkennd barna og
kenna muninn á réttu og röngu og
samhengisins milli orsaka og af-
leiðinga.
Að sögn Guðrúnar Hafdísar er
mikilvægt að verkefnið sé samstarf
heimilis og leikskóla því þannig
megi ná betri árangri við að móta
viðhorf, hegðun og siðferðisþroska
barnanna. Foreldrar fá senda svo-
kallaða dygðavísa, sem þeir geta
notfært sér heima með börnunum.
„Lífsleikninám fer ekki bara fram
milli klukkan átta og fjögur á dag-
inn heldur á það að vera viðvar-
andi nám allan sólarhringinn,“ seg-
ir Guðrún Hafdís. Að lokum bætir
hún við að töluverð tengsl séu nú á
milli leikskólabarnanna og ellilíf-
eyrisþega á dvalarheimilinu Hlíf
sem bralli margt saman.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Styrktarbörn Guðrún Hafdís Óðinsdóttir leikskólakennari á Síðuskóli og verkefnisstjóri lífsleikniverkefnisins er
hér umvafin leikskólabörnum sem í dag halda í bankann til að styrkja afríska drenginn Blase.
Dansað við
dygðirnar tólf
Með kubbana Ísak Logi, 3 ára, á Síðuseli stoltur með kubbaspjaldið sitt.
Íbygginn Birgir Bragi, 3 ára , virðir
ljósmyndarann fyrir sér.
Lífsleikni í leikskóla Lífsleikniverkefni þriggja leikskóla á Akureyri fær-
ir Hetjunum 200.000 kr. að gjöf. F.v. leikskólastjórarnir Arna R. Árnadótt-
ir Krógabóli, Kristín Sigurðardóttir Sunnubóli og Snjólaug Pálsdóttir,
Síðuseli, Guðrún Hafdís Óðinsdóttir verkefnisstjóri, Sveina Pálsdóttir, for-
maður Hetjanna og Lovísa Jónsdóttir frá Hetjunum.
Lífsleikninám fer ekki
bara fram milli klukkan
átta og fjögur á daginn
heldur á það að vera
viðvarandi nám allan
sólarhringinn.