Morgunblaðið - 20.12.2007, Qupperneq 30
ferðalög
30 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Þegar sjúk börn í Bostonþurfa að leggjast inn áChildrens hospital þar íborg er ekki víst að ferð-
in verði þeim að öllu leyti erfið,
alla vega ekki á aðventunni. Á
leiðinni þangað, á áberandi stað
við Arborway stendur nefnilega
hús eitt eða öllu heldur kastali
sem svo sannarlega ætti að lýsa
upp skammdegið hjá litlu kríl-
unum sem eiga leið fram hjá. Í
húsinu býr maður að Dominic Lu-
berto sem hefur gert það að
metnaðarmáli sínu að skreyta
húsið sitt með ævintýralegum
hætti fyrir jólin. Í ár hefur honum
tekist að slá nýtt persónulegt met
með því að koma fyrir hálfri
milljón ljósapera við höllina sína
og eru þær helmingi fleiri en í
fyrra.
„Þetta er svona skrýtinn
náungi, tónlistarprófessor að ég
held, og hann er örugglega í fjór-
ar vikur að skreyta húsið fyrir
jólin. Svo er hann alltaf að bæta
við lýsinguna,“ segir Einar Örn
Sigurdórsson sem var á ferð í
Boston fyrr í mánuðinum ásamt
konu sinni. Jólahúsið fína fór ekki
fram hjá þeim enda rétt hjá heim-
ili mágkonu hans þar sem þau
bjuggu.
„Húsið sést langar leiðir því
það er svo bjart í kringum það,“
heldur Einar áfram. „Það er við
hálfgerða umferðaræð svo þarna
er mikið umferðaröngþveiti á
kvöldin sem veldur mikilli ar-
mæðu og pirringi hjá nágrönn-
unum í kring. Einhverjir þeirra
eru búnir að kæra Dominic til
skipulagsyfirvalda út af ljósakór-
ónunni á húsinu. Hún var víst
kornið sem fyllti mælinn hjá
þeim.“
Bók til styrktar spítalanum
Um er að ræða eitt af dýrari
hverfum Boston sem Einar segir
geta útskýrt hvers vegna ljósa-
dýrðin er svo mikill þyrnir í aug-
um nágranna Lubertos. „Ein-
hvern veginn virðist það skipta
ríkt fólk meira máli en aðra
hvernig gatan þeirra lítur út,“
segir hann. „Mér finnst þetta hins
vegar fallegt og þá fyrst og
fremst út af hugsuninni sem er á
bak við þetta hjá kallinum. Dom-
inic gerir þetta nefnilega til að
gleðja misjafnlega heilbrigð börn
sem eru á leiðinni á Childrens Ho-
spital en kastalinn hans stendur á
áberandi stað á leiðinni þangað.
Hann er líka búinn að gefa út bók
um skrýtinn kall sem býr í kast-
ala og skreytir hann alltaf fyrir
jólin. Ágóðinn af henni rennur
svo til Childrens Hospital.“
Luberto er ekki af baki dottinn
því hann stefnir á að bæta um
betur fyrir næsta ár. Markmiðið
fyrir jólin 2008 er að setja upp
eina milljón ljósapera.
Jólakveðja Velþekktir góðkunn-
ingjar barnanna heilsa frá höllinni.
Ljósadýrð til að létta lund
Ævintýralegur kastali gleður misjafnlega
heilbrigð börn á öllum aldri í Boston
Upplýst Hálf milljón ljósapera skreyta hús sérvitringsins Dominic Luberto við Arborway í Boston á aðventunni.
Vika á Spáni
13.200 kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar.
Huyndai Getz eða sambærilegur
522 44 00 • www.hertz.is
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
frá
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
E
R
3
69
19
0
4/
07
Fáðu úrslitin
send í símann þinn