Morgunblaðið - 20.12.2007, Side 34

Morgunblaðið - 20.12.2007, Side 34
Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að sekta Hf. Eimskipafélag Íslands um eftirlitið að félagið hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína, annars vega markaðnum og hins vegar með gerð einkakaupasamninga við viðskiptavi keppnislaga. Eftirlitið telur brot Eimskips alvarleg og til þess fallin að va 34 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. FRJÁLSLYNDI FLOKKURINN MÁ EKKI GLEYMAST Það er af einhverjum ástæðumótrúlega auðvelt að gleymaFrjálslynda flokknum á Al- þingi. Það varð Morgunblaðinu á í umfjöllun um lækkun veiðigjalds og eru þingmenn Frjálslynda flokksins hér með beðnir velvirðingar á því. Þingmenn Frjálslynda flokksins greiddu allir sem einn atkvæði gegn tímabundinni niðurfellingu og lækk- un veiðigjalds og ber að fagna því. Hins vegar er það staðreynd, að áhugi Frjálslynda flokksins á veiði- gjaldi er nýtilkominn. Frá stofnun flokksins og til þessa dags hefur Frjálslyndi flokkurinn lagt áherzlu á aðra þætti í fiskveiðistjórnarkerfi okkar og að sjálfsögðu ekkert við því að segja. En vonandi er atkvæða- greiðslan í þinginu nú til marks um að þingmenn Frjálslynda flokksins sýni auðlindagjaldinu meiri áhuga. Auðlindagjald var eitt af helztu baráttumálum Alþýðuflokksins snemma á tíunda áratug síðustu ald- ar. Í því ljósi er áhugaleysi Samfylk- ingarinnar um málið athyglisvert en ástæðan er væntanlega sú, að það er búið að ýta gömlum Alþýðuflokks- mönnum til hliðar í Samfylkingunni og nú hefur Samfylkingin aðrar áherzlur. Hins vegar vekur það óneitanlega meiri athygli, að ýmsir af helztu stuðningsmönnum auðlindagjalds á miðju stjórnmálanna, sem höfðu sig mjög í frammi í þessum umræðum fyrir áratug, láta nú ekkert til sín heyra og sýnast vera sáttir við að sér- hagsmunasamtökin LÍÚ beiti hvern þingmanninn á fætur öðrum þrýst- ingi til þess að tryggja að lögum landsins verði ekki framfylgt. Sjálf- sagt er skýringin sú, að formaður Samfylkingarinnar heimsótti aðal- fund sérhagsmunasamtakanna og baðaði sig í lófataki útgerðarmanna. Það þarf oft lítið til að breyta afstöðu ístöðulausra stjórnmálamanna! Í ljósi þess að útgerðarmenn eru svo illa staddir með rekstur sinn vegna niðurskurðar á þorskveiðum, að yfirgnæfandi meirihluti alþingis- manna telur nauðsynlegt að koma þeim til hjálpar er tímabært að gera rannsókn á því, hvað útgerðarfyrir- tæki landsmanna hafa lagt mikla fjár- muni í kvótakaup frá því að slík við- skipti voru leyfð. Það er nauðsynlegt að draga þær upplýsingar fram í dagsljósið til þess að landsmenn fái yfirsýn yfir stöðu undirstöðuatvinnuvegar þjóðarinnar. Þingmenn Frjálslynda flokksins eiga auðvelt með að fá þær upplýs- ingar með því að bera fram fyrir- spurn til sjávarútvegsráðherra á Al- þingi. Það mun áreiðanlega ekki standa á honum að leggja slíkar upp- lýsingar fyrir þingið. Þá kemur í ljós hvað þeir hafa haft bolmagn til að kaupa mikinn kvóta á síðasta einum og hálfum áratug og staða þeirra nú þá skýrari. VANDI SUÐUR-AFRÍKU Valdaskipti hafa orðið í Afrískaþjóðarráðinu. Jacob Zuma sigr- aði Thabo Mbeki, forseta Suður-Afr- íku, með afgerandi hætti í leiðtoga- kjöri flokksins. Zuma hefur nú öll völd í þjóðarráðinu því að fylgismenn hans sitja eftir leiðtogakjörið í öllum helstu valdastöðum flokksins. Telja margir að þetta sé slíkt áfall fyrir Mbeki að hann neyðist til að segja af sér áður en kjörtímabili hans lýkur árið 2009. Afríska þjóðarráðið er langstærsti flokkur Suður-Afríku, en flokkurinn nýtur þó ekki sömu virðingar nú og hann gerði þegar aðskilnaðarstefnan leið undir lok og hvíti minnihlutinn fór frá völdum. Að mörgu leyti hefur ástandið versnað í landinu síðan þá. Um 40% vinnufærra manna eru at- vinnulaus. Undir stjórn Mbekis hefur verið hagvöxtur í landinu, en hann hefur ekki skilað sér í aukinni at- vinnu. Árið 2005 höfðu 4,2 milljónir íbúa í Suður-Afríku minna en einn dollara á dag sér til lífsviðurværis. Árið 1996 var sú tala 1,9 milljónir manna og hefur því rúmlega tvöfald- ast á áratug. Alda glæpa gengur yfir landið og víða er fólk hrætt við að vera á almannafæri eftir myrkur. 50 morð eru framin í landinu á dag. Vandræði Suður-Afríku má rekja til þess hvernig var gefið þegar hvíti minnihlutinn fór frá völdum. Samn- ingarnir um valdaskiptin snerust um tvennt, pólitísk réttindi og efnahags- mál. Afríska þjóðarráðið fékk nánast öllum sínum pólitískum kröfum fram- gengt, en samningamenn þess voru ekki jafnvel á verði í viðræðunum um efnahagsmálin. Þeir féllust á ríflegar lífeyrisgreiðslur til embættismanna aðskilnaðarstjórnarinnar. Þeir létu einnig undan kröfum um að greiða af lánum, sem stjórn hvíta minnihlutans hafði stofnað til, en hefðu getað sagt að þeim bæri ekki skylda til þess af því að þau væru veitt á ógeðfelldum forsendum og hefðu átt þátt í að við- halda stjórnarfari, sem byggt var á mismunun og kúgun. Vegna þessara skuldbindinga var lítið svigrúm fyrir ný stjórnvöld til að rétta hlut fátæk- ustu íbúa landsins, hjálpa þeim að komast úr hreysunum og tryggja þeim loks mannsæmandi lífskjör. Nú heyrast raddir um að leiðtogarnir lifi í höllum, en kjósendur þeirra í hreys- um og enn eitt óligarkaveldið sé sprottið upp í Afríku. Á þingi Afríska þjóðarráðsins heyrðust nú ásakanir um að Mbeki hefði mistekist að halda uppi arfleifð Nelsons Mandela, frelsishetju lands- ins. Zuma er sagður baráttumaður þeirra, sem minnst mega sín. Yfir honum hvílir ský spillingar, sem hon- um hefur ekki tekist að hreinsa sig af og gætu leitt til málaferla. Líklegt er þó að hann verði næsti forseti lands- ins. Hans bíður það erfiða verkefni að sameina flokk sinn og síðan að glíma við þau djúpstæðu vandamál, sem eru að ríða suður-afrísku þjóðfélagi á slig, sem verður enn erfiðara. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eftir Andra Karl andri@mbl.is Íákvörðun Samkeppniseftirlitsins erutekin dæmi um fjölmarga samningasem Eimskip gerði við viðskiptavini sínaog fólu í sér einkakaup. Slíkir samn- ingar eru ólögmætir ef um er að ræða fyr- irtæki með markaðsráðandi stöðu. Alls eru þrjátíu samningar reifaðir sem eiga það sam- eiginlegt að innihalda ákvæði um einkakaup og tryggðarákvæði, s.s. eftirágreidd og fyrirfram- greidd afsláttarkjör. Þá er jafnframt birt tafla yfir aðra sextíu samninga sem Eimskip gerði við viðskiptavini, sem eingöngu fólu í sér ákvæði um einkakaup. Hér á eftir verður gerð grein fyrir samn- ingum Eimskips við þrjá viðskiptavini. Hekla skuldbatt sig til að skipta eingöngu við Eimskip Í erindi Samskipa til Samkeppniseftirlitsins var meðal annars vísað í ákvæði flutninga- samnings milli Eimskips og Heklu. Bent var á að Hekla fengi mun betri viðskiptakjör en t.a.m. P. Samúelsson auk þess sem Eimskip hefði greitt fyrir „aðlaganir á tölvukerfum“ hjá Heklu. Samningurinn var gerður 10. maí 2001 og samdi Hekla skilmála og hafði forræði við gerð samningsins. Í honum sagði að gert væri ráð fyrir að Eimskip annaðist alla flutninga, þ.e. innflutning, útflutning og framhaldsflutning á vörum innanlands. Svo sagði: „Hekla skuld- bindur sig til að skipta eingöngu við Eimskip um þessa flutninga en þó séu undanþegnir flutningar á stærri aflvélum í virkjanir og þeim vörum sem Hekla stýrir ekki flutningum á.“ Gildistíminn var þrjú ár. Hvað varðar tölvukerfið þá sagði í samn- ingnum að í samskiptum sínum við Heklu myndi Eimskip auka verulega rafræna þjón- ustu, s.s. með því að samþætta upplýs- ingakerfi. Í athugasemdum Eimskips kom fram að þrátt fyrir að samningurinn hefði falið í sér sérstakt ákvæði um einkakaup teldi fyrirtækið að hann hefði verið fullkomlega lögmætur, hann hefði verið gerður í kjölfar verðkönnunar Heklu og í verkskilmálum kom fram að verk- taki tæki að sér að annast alla vöruflutninga. Samkeppniseftirlitið féllst ekki á þá máls- ástæðu Eimskips að samningurinn hefði verið lögmætur, en einkakaupasamningur markaðs- ráðandi fyrirtækis felur í sér misnotkun jafn- vel þó hann sé gerður að beiðni kaupandans. Telur eftirlitið að ákvæði í samningnum hafi verið til þess fallin að hindra keppinauta Eim- skips í því að eiga viðskipti við Heklu. Með því hafi Eimskip farið gegn 11. gr. samkeppn- islaga. Hvað varðar upplýsingakerfið þótti Sam- keppniseftirlitinu ekki nægjanleg rök fyrir að það ákvæði hafi brotið gegn 11. gr. laganna. Eimskip gerði í maí 2001 samninga við Sölu- félag garðyrkjumanna, Banana og Grænan markað. Samningarnir voru efnislega sam- hljóða og um var að ræða heildarsamning um flutningsþjónustu sem tók til allra flutninga viðskiptavinar og flutningstengdrar þjónustu. Gildistíminn var tvö ár en að loknum gildistíma skyldi samningurinn framlengjast ótímabund- ið, nema honum yrði sagt upp. Í samningnum var m.a. kveðið á um eft- irágreiddan afslátt af FOB sjóflutnings- gjöldum og uppskipun allra sendinga frá Evr- ópu og Ameríku. Í tölvupóstum sem skoðaðir voru við rannsókn málsins kom í ljós að í júlí árið 2001 hefðu eftirágreiddir afslættir við um- rædd fyrirtæki numið alls 11 milljónum kr. Í máli Eimskips kom m.a. fram að þar sem gildistíminn hefði aðeins verið tvö ár hefðu keppinautar ekki verið útilokaðir frá við- skiptum við Sölufélag garðyrkjumanna. Af- slættirnir hefðu þá ekki verið háðir því skilyrði að umræddir viðskiptavinir flyttu eingöngu með Eimskipi. Þar hefði verið um að ræða hefðbundna magnafslætti. Á þetta féllst Samkeppniseftirlitið ekki og taldi ótvírætt að með samningunum hefðu fyr- irtæki flutnin Eftirá þess f „[A]fs ast] lö við ein af þeim fram á aðarle Ekki e hér um segir m Heild Fleiri afslæt samni honum sentu gjöldu Evróp mánað Ein ingasa að sér ustu. S Fjölmargir einkaka Miklar breytingar á eignarhaldi UM MITT síðasta ár bentu forsvarsmenn Eimskips Samkeppniseftirlitinu á að þeim þætti óeðlilegt að ábyrgð á meintum brotum fyrirtækisins lægi hjá nú- verandi félagi en miklar breytingar höfðu orðið á eign arhaldinu síðan árið 2001-02, þegar brotin áttu sér stað. Þrátt fyrir þessar ábendingar var sekt Sam- keppniseftirlitsins beint að Hf. Eimskipafélagi Íslands hinu yngra og skýringar eftirlitsins þær að félagið haf tekið við ábyrgð á brotum Hf. Eimskipafélags Íslands hins eldra. Samkeppniseftirlitið rekur breytingarnar á eign- arhaldi Eimskips í úrskurði sínum. Þar segir: „Hf. Eim skipafélag Íslands stofnaði einkahlutafélagið Eimskip ehf. sem tók við flutningastarfsemi móðurfélags síns í ársbyrjun 2003. Á aðalfundi Hf. Eimskipafélags Íslands 19. mars 2004 var ákveðið að breyta heiti beggja félaganna. Va heiti móðurfélagsins, Hf. Eimskipafélags Íslands, breytt í Burðarás hf. og heiti dótturfélagsins, Eimskip ehf., breytt í Eimskipafélag Íslands ehf. Þann 24. júní 2005 urðu síðan eigendaskipti að Eim- skipafélagi Íslands ehf. þegar Burðarás seldi Avion Group hf. allt hlutafé sitt í félaginu. Í kjölfarið var Burðarási hf. á árinu 2005 skipt upp og félagið sam- einað annars vegar Landsbanka Íslands hf. og hins vegar Straumi fjárfestingabanka hf. sem tóku við eign um og skuldum Burðaráss hf. Þann 21. nóvember 2006 var heiti Avion Group hf. síðan breytt í Hf. Eimskipafélag Íslands og þann 26. febrúar 2007 ákvað stjórn þess félags að það yrði sam- einað dótturfélagi sínu, Eimskipafélagi Íslands ehf.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.