Morgunblaðið - 20.12.2007, Side 50
50 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ ÞorbjörgBjörnsdóttir
fæddist á Bergs-
stöðum í Svartárdal
18. nóvember 1915.
Hún lést á Líkn-
ardeild Landakots-
spítala þriðjudaginn
11. desember síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Guð-
rún Sigríður Ólafs-
dóttir, f. 27.11.
1890, d. 25.6. 1918
og Björn Stef-
ánsson, f. 13.3. 1881,
d. 10.11. 1958. Seinni kona Björns
var Valgerður Jóhannsdóttir frá
Torfastöðum í Svartárdal, f. 26.4.
1902, d. 29.3. 1980. Foreldrar Guð-
rúnar Sigríðar voru Ólafur Ólafs-
sonar prestur á Lundi í Lund-
arreykjadal og síðar að
Hjarðarholti í Dölum og Ingibjörg
Pálsdóttir. Foreldrar Björns voru
Stefán Magnús Jónsson prestur á
Bergsstöðum í Svartárdal og síðan
Auðkúlu í Svínadal og fyrri kona
hans Þorbjörg Halldórsdóttir.
Systkini Þorbjargar eru: Ólafur
prófessor, f. 2.2. 1912, d. 22.2.
1999, kvæntur Guðrúnu Aradótt-
ur, f. 29.6. 1917, d. í nóv. 2005, syn-
úr grasi hjá föður sínum, föðurafa
séra Stefáni M. Jónssyni og konu
hans Þóru Jónsdóttur. Þorbjörg
fór ung til Reykjavíkur og gekk
þar í Kvennaskólann. Þau ár bjó
hún að Sólvallagötu 4 hjá föð-
ursystur sinni Hildi Stefánsdóttur
og móðurbróður sínum Páli Ólafs-
syni. Systur Þorbjargar fóru í
Menntaskólann á Akureyri en all-
ar enduðu þær í Reykjavík þar
sem þær leigðu saman um árabil,
fyrst í Ingólfsstræti 6 og síðar að
Lækjargötu 6. Árið 1944 flutti
Ingibjörg austur fyrir fjall. Ári
síðar fór Þorbjörg til London og
bjó þá á heimili frænku sinnar
Ingibjargar Pálsdóttur og Péturs
Eggerz. Eftir heimkomuna bjó
hún í mörg ár hjá móðursystur
sinni Kristínu Ólafsdóttur og
manni hennar Vilmundi Jónssyni
að Ingólfsstræti 14, eða allt þar til
hún keypti sína eigin íbúð á
Kleppsveginum þar sem hún bjó
til dauðadags. Þorbjörg ferðaðist
víða bæði innanlands og utan og
þegar árin færðust yfir ferðaðist
hún gjarnan með hópi séra Franks
M. Halldórssonar. Hún vann í
Landsbanka Íslands í Reykjavík
nánast alla sína starfsævi.
Útför Þorbjargar fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 11.
Jarðsett verður í Selfoss-
kirkjugarði.
ir þeirra eru Ari
Helgi, f. 1946, Björn
Gunnar, f. 1949 og
Örnólfur Jónas, f.
1951; Stefán Magnús,
f. 27.5. 1913, d. 2.7.
1913; Ingibjörg, f.
20.9. 1914, d. 13.5.
1977, gift Þórarni
Sigmundssyni, f.
27.7. 1917, d. 25.2.
1996, börn þeirra eru
Guðrún Sigríður, f.
1941, Björn Stefán, f.
1943, Kristín, f. 1945
og Ólafur Stefán, f.
1950; Ásthildur Kristín, f. 4.6.
1917, d. 18.7. 1998, gift Aðalsteini
Kristmundssyni (Steini Steinarr),
f. 13.10. 1908, d. 25.5. 1958; og
stúlka, f. 20.6. 1918, d. sama dag.
Dætur Björns og Valgerðar
(seinni konu Björns) eru Guðrún
Sigríður, f. 30.7. 1930, gift Jóni
Reyni Magnússyni og eiga þau 3
börn; og Ólöf Birna, f. 2.4. 1934,
gift Jóni Ólafssyni og eiga þau
einnig 3 börn.
Fyrstu þrjú ár ævi sinnar ólst
Þorbjörg upp hjá foreldrum sínum
að Bergsstöðum í Svartárdal en
eftir lát móður sinnar fór hún að
Auðkúlu í Svínadal þar sem hún óx
Ókunnugir héldu oft að Þorbjörg
væri amma okkar systkinanna eða
föðursystir; fjarlægari skyldleiki gæti
ekki skýrt ást okkar á henni. Um ára-
bil hafði hún búið í húsi móðursystur
sinnar, Kristínar Ólafsdóttur, og Vil-
mundar Jónssonar, og það var jafn-
sjálfsagt að hún væri ein af fjölskyld-
unni og að eiga afa og ömmu á því
heimili. Það var ekkert eðlilegra en að
fara með henni í heimsóknir til frænd-
fólks fyrir austan fjall, gista hjá henni
á Kleppsvegi hvenær sem okkur datt
í hug, heimsækja hana á vinnustaðinn
í Landsbankanum og eiga ævintýra-
lega viku á hverju sumri í bankabú-
stöðunum í Selvík við Álftavatn.
Þorbjörg kunni þá list að mæta
fólki af öllum kynslóðum sem jafn-
ingjum. Hún varð uppáhaldsfrænka
allra barna sem kynntust henni og
kölluðu þau hana ýmist Boddu eða
Tobbu. Ef ég vildi vera Mjallhvít eða
Öskubuska stóð ekki á henni að leika
dvergana alla sjö og hvaða prins sem
var, enda hélt ég á þeim aldri að hún
væri „fjórtán – að verða fimmtán.“
Engin spurning var of heimskuleg, og
margar gátur lífsins var nærtækast
að bera undir hana, t.d. hvernig jóla-
sveinar kæmust inn um lokaða glugga
á sjöundu hæð. Þessi vinátta eltist
hvorki af henni né okkur.
Bodda virtist ánægð í þeirri sjálf-
stæðu tilveru sem hún hafði skapað
sér og lagði fram í andlátið kapp á að
vera sjálfbjarga. Hún var hins vegar
fljót til þegar aðrir þurftu á hjálp að
halda, raungóð og traust, og gagnvart
henni gátu allir komið til dyranna eins
og þeir voru klæddir.
Í augum minnar kynslóðar var
Bodda hafsjór fróðleiks um liðna tíma
og eldri ættmenni, en ekkert í sam-
tímanum var henni heldur óviðkom-
andi. Hún hélt sig yfirleitt sjálf til
hlés, en var þannig sett að hún kynnt-
ist á langri vegferð ýmsum andans
mönnum og áhrifamönnum í þjóðlíf-
inu, sem ýmist voru skyldir henni eða
tengdir eða urðu á vegi hennar af öðr-
um sökum. Þess vegna hikaði hún
ekki við að segja slíkum mönnum
skoðun sína. Nýlega sagði hún frá
samtali sínu við biskupsritara – þótti
afleitt að hafa ekki fengið samband
við biskupinn sjálfan – og ekki eru
margar vikur liðnar frá kjarnyrtu les-
endabréfi. Um slík tiltæki ræddi hún í
léttum tón, þótt henni væri heitt í
hamsi, og hún gat hlegið að sjálfri sér.
Mér og mínum nánustu sýndi hún
ómælda umhyggju, og það hefur verið
mikils virði að eiga stuðning hennar
og skilning vísan, hvað sem fyrir
kynni að koma. Frænku af hennar
tagi ættu allar fjölskyldur að eiga;
þeir fara mikils á mis sem hafa ekki
átt hennar líka.
Guðrún Þórhallsdóttir.
Þorbjörg Björnsdóttir, Bodda,
fæddist á Bergsstöðum í Svartárdal,
dalnum þar sem blá bergvatnsáin lið-
ast eftir dalnum sínum grunlaus um
að neðar bíður Blanda kolmórauð og
kraftmikil þess albúin að gleypa
Svartá í sig á dalamótum. Björn og
Guðrún Sigríður, foreldrar Boddu,
eignuðust áður börnin Ólaf, Stefán
Magnús og Ingibjörgu. Stefán Magn-
ús dó í frumbernsku en á eftir Boddu
fæddist Ásthildur og loks andvana
stúlka. Björn, pabbi þeirra, hafði líka
fæðst á Bergstöðum því þar var Stef-
án Magnús, faðir hans, prestur áður
en hann flutti sig yfir árnar að víðsýn-
inu á Auðkúlu í Svínadal.
Guðrún Sigríður fæddi sex börn á
sex árum og dó eftir fæðingu síðasta
barnsins, aðeins 27 ára að aldri.
Mikill harmur var kveðinn að fjöl-
skyldunni á Bergsstöðum – sá harm-
ur bjó með systkinunum alla þeirra
ævi. Ólafur og Ásthildur fóru til afa
síns og ömmu að Hjarðarholti í Döl-
um en Bodda og Ingibjörg fóru að
Auðkúlu til afa síns, Stefáns, og síðari
konu hans Þóru Jónsdóttur. Stefán
þekkti missi af eigin raun því að hann
eignaðist 13 börn en missti sjö og
fyrri konu sína frá fimm börnum á
viðkvæmum aldri.
Stefán og Þóra tóku móðurleys-
ingjunum vel en þau höfðu misst tvær
dætur, Þóra átti aðeins eina eftir, Sig-
ríði, sem þá var 14 ára. Litlu stúlk-
urnar leituðu ekki hvað síst skjóls hjá
henni og Bodda svaf í holunni hjá Sig-
ríði þar til Sigríður gifti sig tíu árum
seinna. Imba og Bodda kölluðu Þóru
ömmu og hún bar mikla umhyggju
fyrir þeim alla tíð. Sigríður leit á þær
sem nánustu skyldmenni sín og elsk-
aði þær eins og yngri systur.
Ólafur og Ásthildur komu síðar að
Auðkúlu og þangað kom Björn pabbi
þeirra líka, giftist Valgerði Jóhanns-
dóttur og eignaðist dæturnar Guð-
rúnu Sigríði og Ólöfu Birnu.
Bodda fór ung að árum til Reykja-
víkur, síðar til Englands, vann í
Landsbankanum í um það bil hálfa
öld og eltist aldrei. Hún var alltaf jafn
létt á fæti og létt í lund, lét sig allt
mögulegt varða og barðist fyrir því
sem henni fannst máli skipta eins og
til dæmis að Auðkúlu og kirkjunni þar
væri sómi sýndur.
Bodda fékk að vita það umbúða-
laust fyrir nokkrum vikum að hennar
biði ekkert nema dauðinn. Það þarf
kjark til að taka slíkum tíðindum og
skiptir þá litlu þótt árin séu orðin
mörg, ef heilsan hefur alltaf verið góð
og enga þreytu að finna.
Guðrún Sigríður, systurdóttir
hennar, flutti af heimili sínu til Boddu.
Hún yfirgaf hana hvorki nótt né dag
og annaðist hana af einstæðum kær-
leika. Það skýrist af því einu að til er
fólk eins og Guðrún sem finnur mest-
an tilgang í því að fórna sér fyrir aðra.
Sjálf fékk ég að njóta ylsins sem
Bodda hafði fundið í holunni hjá Sig-
ríði, mömmu minni. Hún sýndi mér
aldrei annað en gæði og góðvild og
það hlýjaði mér um hjartaræturnar
að hún kallaði mig ævinlega gælu-
nafninu sem mamma mín notaði.
Án Boddu er tilveran breytt.
Tengslin við ömmu og afa og Auð-
kúluheimilið fyrir um 80 árum hafa
slitnað en eftir lifir þakklæti – aðeins
þakklæti.
Hólmfríður K. Gunnarsdóttir.
Tobba eins og hún var alltaf kölluð í
Landsbankanum hóf störf í Endur-
skoðunardeildinni tvítug árið 1935 og
þar var hún í fullu starfi í 50 ár og að
auki í hlutastarfi næstu átta árin.
Seint verður þetta met slegið en
ástæðan var hreinn sparnaður. Hún
þekkti svo vel öll vinnubrögð að hag-
stætt var að hafa hana áfram.
Hún mætti ætíð eldsnemma, tók
við gögnum frá RB og raðaði á borð
hvers og eins, svo allt var klárt þegar
liðið mætti til starfa. Einnig leiðbeindi
hún nýjum starfsmönnum og siðaði
þá til. Það hafði hún lengi gert, sér-
staklega við þá sem hún hafði mætur
á og skipti þá ekki máli þótt þeir væru
jafnvel orðnir aðstoðarbankastjórar.
Hún skammaði þá eins og stráka ef
henni mislíkaði hegðunin og komst
upp með það því menn virtu hana og
vissu að umhyggja var undirrótin.
Ég þekkti Tobbu ekki náið fyrr en
ég kom í deildina árið 1965 en vissi
hvert orð fór af henni í vandvirkni og
stálheiðarleika. Þá var verið að und-
irbúa tölvuvæðingu Landsbankans en
Þorbjörg Björnsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast
fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi
eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss
er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem
kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
STEFÁN BENEDIKT BENEDIKTSSON
frá Húsavík,
Sjávargrund 4a,
Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Garðakirkju föstudaginn
21. desember kl. 11.00.
Sigurbjörg Sigvaldadóttir,
Hanna Stefánsdóttir, Jón Guðlaugsson,
Sigrún Stefánsdóttir, Sigþór Sigurjónsson,
Bylgja Stefánsdóttir,
Stefán S. Stefánsson, Guðfinna Baldvinsdóttir,
Guðný Stefánsdóttir, Agnar Agnarsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓTTARR PROPPÉ,
sem lést fimmtudaginn 6. desember verður
jarðsunginn frá Garðakirkju föstudaginn
21. desember kl. 13.00.
Else A. Proppé,
börn og barnabörn,
Ólafur Proppé, Pétrún Pétursdóttir,
Guðný Ásólfsdótttir,
Friðbjörg Proppé,
Hrafnhildur Proppé, Guðmundur Grímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Skrifstofur okkar verða lokaðar í dag, fimmtudaginn 20. des-
ember, vegna útfarar ÞORSTEINS KRISTINSSONAR endur-
skoðanda.
Endurskoðun og reikningshald.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður, teng-
damóður, ömmu og langömmu,
GUÐNÝJAR KRISTRÚNAR NÍELSDÓTTUR,
áður til heimilis á Stýrimannastíg 14,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sóltúns, Landakots
og dagdeildar Vitatorgs.
Páll Stefánsson, Halldóra Viktorsdóttir,
Soffía Stefánsdóttir, Georg Ólafsson,
Hildur Stefánsdóttir, Sigurgeir Kjartansson,
börn og barnabörn.
✝
Elskuleg dóttir okkar, systir og barnabarn,
BERGLIND UNA MAGNÚSDÓTTIR,
Birkihlíð 2b,
220 Hafnarfirði,
lést mánudaginn 10. desember.
Útförin fer fram frá Kálfatjarnarkirkju, Vatns-
leysuströnd, þann 21. desember kl. 11.00
Magnús Sigurðsson, Sigríður Lárusdóttir,
Daníel Magnússon,
Una Hallgrímsdóttir, Ásgeir Þórir Sigurjónsson.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SÖLVEY F. JÓSEFSDÓTTIR
frá Atlastöðum í Fljótavík,
Sundstræti 27,
Ísafirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði
17. desember.
Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn
29. desember kl. 14.00.
Bergmann Ólafsson, Ardís Gunnlaugsdóttir,
Guðmundur K. Ólafsson, Stefanía Eyjólfsdóttir,
Margrét B. Ólafsdóttir,
Jakob R. Ólafsson, Kristin Bekkholt,
barnabörn og langömmubörn.