Morgunblaðið - 20.12.2007, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 65
/ AKUREYRI/ KRINGLUNNI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
„BEOWULF ER
EINFALDLEGA
GULLFALLEG...“
ENTERTAINMENT WEEKLY
2 VIKUR Á TOPPNUM Á ÍSLANDI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
Leiðinlegu
skóla stelpurnar
- sæta stelpan
og 7 lúðar!
Amanda Bynes úr She‘s The Man er
komin aftur í bráðskemmtilegri mynd
eeee
„American gangster er
vönduð og tilþrifamikil“
- S.V., MBL
eeee
,,Virkilega vönduð glæpamynd
í anda þeirra sígildu.”
- LIB, TOPP5.IS
„Óskarsakademían mun standa á
öndinni... toppmynd í alla staði.“
Dóri DNA - DV
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
JÓLAMYNDIN Í ÁR
ATH. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
FRED CLAUS kl. 8 - 10:20 LEYFÐ
HITMAN kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
SÝND Í ÁLFABAKKA
JÓLAMYNDIN 2007
SÝND Í ÁLFABAKKA
NÚ VERÐUR ALLT VITLAUST!
ÍKORNARNIR ALVIN, SÍMON OG THEÓDÓR
SLÁ Í GEGN SEM SYNGJANDI TRÍÓ!
STÓRSKEMMTILEG GAMANMYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA OG JÓLAMYNDIN Í ÁR.
FRED CLAUS kl. 8 - 10:20 LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 8 LEYFÐ
DAN IN REAL LIFE kl. 10 LEYFÐ
SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI WWW.SAMBIO.IS
FRED CLAUS kl. 3:30D - 8D - 10:30D LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 3:30D - 6D LEYFÐ DIGITAL
BEE MOVIE m/ensku tali kl. 8:30 LEYFÐ DIGITAL
BEOWULF kl. 5:303D - 83D - 10:303D B.i. 12 ára 3D-DIGITAL
AMERICAN GANGSTER kl. 10:30 B.i. 16 ára
FRED CLAUS kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
BEE MOVIE m/ensku tali kl. 10 LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
SIDNEY WHITE kl. 8 LEYFÐ
eee
GÓÐ SKEMMTUN
FYRIR YNGSTU BÖRNIN
- S.V. MBL
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA er búið að vera uppi í hillu
hjá mér frá árinu 2000,“ segir Þór
Freysson leikstjóri sem vinnur að
gerð heimildarmyndar um Hinn ís-
lenska Þursaflokk um þessar mund-
ir. Eins og fram hefur komið mun
sveitin koma fram á tónleikum í
Laugardalshöll hinn 23. febrúar
næstkomandi, þeim fyrstu í átta ár.
„Þeir spiluðu á Tónlistarhátíðinni í
Reykjavík í Höllinni árið 2000, og ég
tók þá tónleika upp, auk þess að
fylgjast með þeim á æfingum dag-
ana á undan. Við eigum það efni, en
aðeins eitt lag af tónleikunum hefur
verið sýnt opinberlega, „Brúðkaups-
vísur“, þegar tónleikarnir voru
sýndir á Stöð 2 á sínum tíma.“
Þór segir að þegar ákveðið hafi
verið að halda tónleikana í Höllinni í
febrúar hafi honum þótt tilvalið að
taka upp þráðinn þar sem frá var
horfið, og klára myndina. „Við erum
til dæmis búnir að vera að fylgjast
með þeim frá því þeir byrjuðu á æf-
ingum í bílskúrskjallaranum hjá Ás-
geiri Óskarssyni, og svo þegar þeir
voru að máta þetta með CAPUT-
hópnum um daginn.“
Gamall aðdáandi
Aðspurður segir Þór að töluvert
sé til af gömlu myndefni með Þursa-
flokknum, og það muni hann nota í
myndinni. „Til dæmis er ég með að-
gang að efni hjá RÚV, og svo veit ég
að það er til efni hér og þar. Til
dæmis á Friðrik Þór eitthvað frá því
í kringum Rokk í Reykjavík, og svo
eiga þeir sjálfir eitthvað efni, þótt
það sé mest í formi ljósmynda. En
ég mun nýta mér allt það gamla efni
sem er til,“ segir Þór sem er gamall
aðdáandi Þursaflokksins. „Ég var
nú í Bara-flokknum í gamla daga og
við spiluðum oft með þeim á tón-
leikum þannig að það myndaðist
ákveðinn kunningsskapur, og ég hef
kannast við þá síðan þá. En ég hef
alltaf verið sérlega hrifinn af þessari
tónlist, og þeirra spilamennsku.
Þetta er náttúrulega eitt öflugasta
band Íslandssögunnar.“
Flottur pakki
Þór segist ekki alveg búinn að
ákveða hvað hann ætli að gera við
myndina, þótt hann hafi vissulega
ákveðnar hugmyndir. „Ég er að
vinna hjá Saga Film og við erum að
gera þetta undir merkjum fyrirtæk-
isins. En ég vona að einhver sjón-
varpsstöð hafi áhuga á að sýna þetta
þegar þar að kemur. Svo kem ég
líka til með að taka tónleikana sjálfa
upp og ég sé fyrir mér að þetta gæti
orðið mjög skemmtilegur pakki,
heimildarmyndin og tónleikarnir
saman á DVD. Ég veit að Sena ætl-
ar allavega að gefa tónleikana út á
DVD og ég geri mér ágætar vonir
um að þeir hafi áhuga á heimild-
armyndinni líka,“ segir Þór sem er
kominn nokkuð vel á veg með
myndina. „Ég ætla að reyna að
klára allar tökur fyrir tónleikana, öll
viðtöl og svona, svo förum við lík-
lega að byrja eftirvinnslu í byrjun
mars,“ segir hann, og því ljóst að
myndin ætti að geta komið út um
mitt næsta ár.
Eitt öflugasta band Íslandssögunnar
Nútíminn er trunta Hinn íslenski Þursaflokkur í ham fyrir einhverjum árum síðan. Sveitin er af mörgum talin ein sú besta sem Ísland hefur alið.
Morgunblaðið/Frikki
Leikstjórinn Þór hefur lengi verið aðdáandi Hins íslenska Þursaflokks.
Þór Freysson vinnur að heimildarmynd um Hinn íslenska Þursaflokk
Á JÓLUNUM stinga upp rauðum
og hvítbrydduðum kollinum gömlu
góðu jólamyndirnar, en allt er í
heiminum hverfult. Fyrir fáeinum
árum kom á markaðinn fyrirbrigðið
Bad Santa, hátíðamynd fyrir nýja
öld, hún gaf hortugan tón í kvik-
myndagreinina og Fred Claus er af-
leggjari groddaláta í Billy Bobs í
rauðu.
Fred (Vaughn) er ekki drykk-
felldur þjófur eins og fyrirmyndin,
heldur þjófóttur stóri bróðir Niku-
lásar jólasveins (Giamatti). Fred féll
frá fyrsta degi í skuggann þegar litli
bróðir fæddist og þegar myndin fer í
gang er hann orðinn útskúfaður
svikahrappur og situr í fangelsi.
Nikulás bróðir kemur vitaskuld til
hjálpar og býðst til að bjarga mál-
unum gegn sanngjarnri „samfélags-
aðstoð“ í jólalandinu á Norð-
urpólnum.
Fred Claus fer hressilega af stað
og á spaugilega kafla allt fram undir
væmin lokin. Fred kynnist m.a. sam-
tökum manna sem hafa fallið í
skuggann af stóra bróður og þar
koma m.a. við sögu litli bróðir Bills
Clinton, Sylvesters Stallone og einn
þeirra Baldwinsbræðra skælir í sí-
fellu, „Ég er ekki Alec, ég er ekki
Alec!“
Mynd sem lumar á slíkri setningu
getur ekki verið alvond og Fred
Claus á ekki síður erindi til fjöl-
skyldna landsins en annað ámóta
léttmeti sem fylgir þessum árstíma.
Giamatti, Weisz, Bates og Spacey
eiga þó betra skilið, þó þau hressi
upp á pakkann.
Jóladans Fred Claus tekur spor.
Svarti sauð-
urinn í jóla-
sveinafjöl-
skyldunni
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjóri: David Dobkin . Aðalleikarar:
Vince Vaughn, Rachel Weisz, Kathy Ba-
tes, Kevin Spacey. 107 mín. Bandaríkin
2007.
Fred Claus
bbmnn
Sæbjörn Valdimarsson