Morgunblaðið - 06.01.2008, Page 28
listir
28 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
H
in stóra veröld heims-
viðburða virðist óneit-
anlega nálæg þegar
farið er um borg eins
og París. Þar eru
ómetanlegir möguleikar til að finna
ný sjónarhorn og uppgötva nýjar
hliðar tilverunnar. Það getur jafnvel
verið nóg að skoða mannlífið, ganga
um götur og torg og skreppa þá líka
ofan í jörðina í Metró.
Í göngum og á pöllum Metró neð-
anjarðarlestanna er oft að sjá í hnot-
skurn samspil eða samskipti mis-
munandi heima, það sem skilur að og
það sem sameinar, það er bara að líta
í kringum sig. Ungir lögregluþjónar
á vaktinni að morgni dags voru að
vekja útigangsmann sem svaf á bekk
á einum af brautarpöllum Metró: „jú
vinurinn þú þarft að vakna það er
orðið bjart … jú komdu bara heim til
Parísar … ekkert gaman að vera á
Ítalíu lengur, það er orðið allt of mik-
ið af fólki þar,“ segir hinn ungi lög-
regluþjónn ljúfur í bragði. Það eru
víst um 8 þúsund heimilislausir í Par-
ís núna og ekki sofa þeir allir undir
Signubrúm.
List úr fjarlægð
Myndlist frá fjarlægum menning-
arheimum hefur löngum verið flokk-
uð hér á Vesturlöndum á mann-
fræðisöfn sem „hefðbundnir munir“
en ekki sem listaverk í sama mæli og
verk sem teljast tilheyra okkar eigin
menningarheimi.
Ef farið var um sali hinna hefð-
bundnu listasafna Parísar eða ann-
arra stórborga Evrópu, þar sem hin
„alþjóðlega“ list er kynnt, hefur
löngum ekki verið sýnt mikið af verk-
um frá t.d. Afríku, Eyjaálfu, S-
Ameríku né öðrum fjarlægum svæð-
um, hvorki eldri verk né samtímalist.
Þó er nú víða verið að opna leiðir til
þess að bæta úr þessu og greinilega
þörf og áhugi því listin er ein leiðin til
aukins skilnings í flóknum og fjöl-
breyttum heimi.
Nýtt listasafn – samskipti
margra heima
Nýtt listasafn, Musée du quai
Branly (Safn Branly-árbakkans), var
opnað í fyrra. Það er safnið sem tók
við því hlutverki að kynna list og
menningu utan Evrópu eða utan hins
svokallaða vestræna menning-
arheims og að stuðla að samskiptum
allra menningarsvæða. Þar er stórt
og þarft hlutverk fyrir höndum.
Stofnun Musée Branly á rætur að
rekja til þeirrar umræðu sem komst
á skrið á síðustu áratugum 20. aldar
að listaverkum frá Afríku og víðar að
væru ekki gerð sómasamleg skil á
ríkislistasöfnum í Frakklandi.
Musée de l’homme (Safn manns-
ins), safn um mannfræði og þróun,
hýsti mikið safn verka eða gripa. Það
hóf starfsemi 1936 en byggðist á
safni sem var starfrækt frá síðasta
hluta 19. aldar. Frá 1960 var einnig
safn verka frá Afríku og Eyjaálfu í
sérstöku safni sem miðaði frekar við
kynningu á listrænni hlið verkanna
en fyrrnefnt „Safn mannsins“ sem
lagði áherslu á mannfræðilegu hlið-
ina og slíka fræðslu. Þessi söfn áttu
sinn þátt í að veita aðgang að list sem
hafði mikil áhrif á þróun myndlistar.
Þau voru oft ekki síður en hefð-
bundnu listasöfnin stunduð af lista-
mönnum, listnemum sem og öðrum
Minning Samsett ljósmynd eftir Sammy Baloji frá Alþýðulýðveldinu Kongó. Eldri mynd frá tímum þrælavinnu í námum er sett inní umhverfi námabæjarins eins og Baloji myndar það núna.
Ljósmynd/ Nicolas Borel
Fjölmenning Hluti hinnar stóru og fjölbreytilegu byggingar, Musée du quai Branly í París, safns lista og menningar: Afríku, Asíu, Eyjaálfu og Ameríku.
Potturinn í París –
dularfullur er heimurinn
Það er hægt að skoða
heiminn út frá mörgum
og mismunandi sjón-
arhornum og þá ekki
síst í hinni litríku Par-
ísarborg. Jóhanna
Bogadóttir var þar á
ferð að skoða listir og
mannlíf.
Ljósmynd/Jóhanna Bogadóttir
List á lestarstöð Heilagur Mikael berst við drekann ofan í jörðinni í göng-
um St. Michel-stöðvarinnar. Eia Ásgrímsdóttir Siglfirðingur skoðar mósa-
íklistaverk.
» Vissir listamenn frá
Afríku sem fjalla um
samfélagsmál í verkum
sínum hafa vakið athygli
í Evrópu og eru þá áhrif
nýlendustefnu og ras-
isma oft ofarlega á
baugi