Morgunblaðið - 06.01.2008, Qupperneq 60
60 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MISCHA Barton, leikkonan úr
þáttunum O.C., hefur ákveðið
að leita til Guðs eftir að hún
var handtekin fyrir ölvunar-
akstur í síðustu viku. Barton
sótti guðsþjónustu hjá kaþ-
ólskum söfnuði kenndum við
Góða hirðinn í Beverly Hills
og ef marka má vitni sem sáu
hana koma út úr kirkjunni var
hún hin heilagasta, klædd í
hvítan kjól sem undirstrikaði
umskiptin yfir á beinu braut-
ina. Barton sem er 21 árs var
stöðvuð af lögreglunni í Vest-
ur-Hollywood á næst síðasta
degi ársins og var í kjölfarið
ákærð fyrir að aka undir
áhrifum áfengis, án öku-
skírteinis og fyrir að hafa
undir höndum maríjúana.
Góði hirðirinn er sami söfn-
uður og leikarinn úr Prison
Break, Lane Garrison, sótti í
desember á síðasta ári eftir að
hann var valdur að dauðaslysi
í umferðinni. Hann situr nú í
fangelsi fyrir manndráp. Þá
mun Paris Hilton einnig hafa
sótt messu í kirkjunni eftir að
henni var varpað í fangelsi
fyrir að hafa ekið án ökuleyf-
is.
Stjörnurnar leita fyr-
irgefningar í trúnni
Mischa Barton
Lane Garrison Paris Hilton
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
ÞAÐ þarf varla að kynna þessa
síðu fyrir aðdáendum kvikind-
islegra teiknimyndabrandara. Þeir
sem hins vegar þekkja ekki dásam-
lega svarta brandara Wulff-
morgenthaler ættu tafarlaust að
skella sér á netið og slá inn ofan-
greinda slóð.
Wulffmorgenthaler er hugverk
hinna dönsku Mikael Wulff og
Anders Morgenthaler en þeir hófu
að semja og teikna brandarana ár-
ið 2001. Wulff er grínisti og sjón-
varpsmaður en Morgenthaler
teiknari. Brandararnir hafa birst í
fjölda dagblaða og tímarita og árið
2005 gengu þeir skrefi lengra og
hófu gerð hreyfimynda í sama stíl,
sem má m.a. finna á YouTube, og
héldu úti sjónvarpsþætti á Dan-
marks Radio 2 árið 2005.
Það er erfitt að lýsa bröndurum
Wulffmorgenthaler í stuttu máli og
ætlar undirritaður ekki að reyna
það. Texti eftir höfundana á vefsíð-
unni er sjálfsagt lýsandi fyrir
þeirra persónuleika og skopskyn:
„Okkur finnst leikjatölvur, tölvu-
leikir, farsímar og DVD-diskar,
tölvur og bílar og flugferðalög of-
metin og gagnslaus í samanburði
við sveskjusafa – hann er hollari og
bætir meltinguna,“ og „Við höfum
sérstakt dálæti á kvikmyndum um
lögfræðinga sem bera út skjald-
bökur og vonumst til að gerðir
verði sjónvarpsþættir um það. Við
höfum dálæti á tónlist eftir lög-
fræðinga.“
Þeir félagar skella inn brandara
hvern einasta dag og geta menn
gerst áskrifendur að þeim í tölvu-
pósti, sem er sannarlega hressandi
í flóðbylgju ruslpósts og í morg-
unsár mæðulegra mánudaga. Þá er
hægt að kaupa ýmsan varning á
síðunni, boli frá þeim félögum,
dagatöl og hægt að hala niður skjá-
myndum og myndum til að setja á
bloggsíður, svo eitthvað sé nefnt.
Brandarana er hægt að skoða
fimm ár aftur í tímann þannig að
þeir sem hafa ekkert að gera í
vinnunni, eða vilja ekki gera neitt í
vinnunni, ættu að geta hlegið í
margar klukkustundir eða jafnvel
heilu dagana yfir gríni þeirra fé-
laga og gert samstarfsmenn sína
forvitna um leið.
VEFSÍÐA VIKUNNAR: WULFFMORGENTHALER.COM»
Dönsk grínsnilld