Skinfaxi - 01.04.1933, Side 2
SKINFAXI
Hvort mun geislinn: himin-sunnu
helgi-speglun bergs um þil,
eða norðurs sindur-sveifla
segulstraums í rúmsins hyl?
— Hvort er geislinn attars-eldur
Ólafs-lcirkju á Niðar-þröm,
eða Þórs frá þeysi-kerru
þrumu-elding tundur-röm?
Svaru, dýra dísin Saga,
Dofra og Björnsons móður-sál,
hvaðan vaknar, vex og tendrast
vafurlogi, er skín um ál. —
fííðum prúðir, hlustum hljóðir,
— helgimál vér námum fyr -—,
lwað oss greinir goða-svarið
gefið úl um himins dyr.
Heyrum svarið: Sólargeisla
safnað megn um loftin heið, —
segul-ljósa vafur-vöndur, —
Ving-Þórs blys frá himin-reið, —-
heilags Ólafs altars-Iogi,
— alvalds björg við frosti og Het.
-----Sem þér gátuð: geisla-flétta
greindra elda um norður-hvel. —
Langl um haf til brattra bjarga
beint í austur hvessum sýn. —
Sjá, þar opnast ægi-dalur
upp við Dofra jökul-Iín. —
Fjallastormur gnýr í gljúfri,
glymur fljót í kletta-þröng. -—
Stynur þungt um hof og hörgu
helgur skógur fornan söng.