Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1933, Page 20

Skinfaxi - 01.04.1933, Page 20
20 SKINFAXI brátt gildi sínu. Það cr ekki þess megnugt að veita þá uppbyggingu, sem því var ætlað. Því verður það engis virði. Þá leitar sá maður, sem fjárráð liefir, gjarnan að öðrum skemmtiefnum, sem föl eru við fé. En óhjá- kvæmilega verður liann leiður á þeim öllum, ef hann þarf ekki að starfa til að njóta þeirra, eða þau stinga vilja lians svefnþorn og villa vitund hans eins og nautn áfengis og tóljaks. Sá maður, sem lifir einungis til þess, að njóta lifsins, glatar gjarnan manndómi sinum í til- gangsleysinu. Hann verður átlavilltur af stefnulausu reiki. Hann skortir hátt lakmark, liugsjón og alla þá festu og styrk sem slíkt veitir. Það fer því yfirleitl svo, að þessi flokkur myndar eyðslusaman cða rótlítinn nantnalýð, með minnkandi atgervi og manndómi. Þá cr annar flokkurinn, þeir, sem þrá meira hóglífi og eyðslufé en kostur er á við alþýðleg kjör. Þeir menn leila ýmsra ráða. Sumir afla sér lærdóms til að lifa af. Þeir stunda skólanám, án þess að finna hjá sér nokkra köllun til að vinna þau störf, sem lærdómurinn opnar þeim leiðir að. Það er jafnan háskalegt, þegar þesshátt- ar menn komast í trúnaðarstöður. Þó cr e. t. v. enn meira tjón að hinum, sem óheppnir eru og ekki kom- ast i embætti, heldur lifa á margskonar snöpum og hraski. Nota þeir oft þekkingu sina til að gerast sníkju- dýr og blóðsugur á þjóðfélaginu og það samvizkulaust, ])ó að ]>eir standi í þakklætisslculd við þjóðfélagið fyrir þekkinguna. Er það hæði litilmennska og illmennska, að launa svo gott með illu. Fremstir í þessari fylkingu eru svonefndir brennivínslæknar. Afsökun Iiafa þessir lærdómshraskarar þó eina, að þeir bera ekki skyn á grundvöll samfélagsins. Þeir þekkja ekki skyldur sínar. Öðrum er ekki sýnt um nám og velja því aðrar leiðir að sama marki. Ráðast þeir tíðum í fjárgróðafyrirtæki og cr misjafnt uin heiðarleik ])eirra og liamingju. En þó eru það alltaf nokkrir, sem vinna sig til auðs og met-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.