Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1933, Page 33

Skinfaxi - 01.04.1933, Page 33
SKINFAXI 33 byggingarsnilli, nokkurt augljóst menningartákn heill- ar þjóðar, meðan tugir þúsunda i næsta nágrenni eiga ekki skýli um höfuð? Eru risafengnar, undursamlegar vélar, er mannsandinn liefir framleitt, nokkur sönnun djúpviturrar menningar með þeirri þjóð, sem lætur við þær vinna mikinn hluta livers sólarhrings óþrosk- uð, veikburða börn? Eru hin dýrmætu bókasöfn, sem geyma djúpúðgustu hugsanir snillinganna, vitsmunavott og mannbótastarf, skír skuggsjá auðnuríkrar menningar, meðan smæl- ingjar þjóðfélagsins í miljónatali cru ólæsir og fá þeirra að engu notið? I liöfuðborg Bretaveldis, Lundúnum, er skemmti- garður, sem beilir Hyde Park. Hann er stærstur og að ýmsu leyti fegurstur allra þeirra lystigarða, sem um borgina liggja á ýmsum stöðum. En liann og þau önnur skemmtisvæði, sem að lionum liggja, eru og oft nefnd öðru nafni. Hyde Parlc er líka kallaður „luiigu Lundúna“. Staðurinn, sem geymir lífsloft heims- borgarinnar, þangað sem íbúarnir sækja sér hressingu, liollustu og endurnærandi hvíld frá önn daglegs slrils. Tugir þúsunda snoturlega búins fólks sitja þar á þægi- legum, ódýrum leigustólum cða reika um cggslétta vellina, undir skuggaríkum trjám, eða liggja i grasinu og hvila augun við silfurgljáa fleti bugðóttra vatna. En allt i kring og i nokkrum fjarska gnæfa yfir skóg- arlundana slórhýsi og sigurmerki staðarins. Skemmtisvæðið er friðsælt og yndislegt —- þangað til maður sér meinsemdirnar i þessum lungum. Mað- ur hefir ekki reikað lengi um þessar slóðir, er fyrir augu ber flökka hálf-sofandi fólks —- og svo útsogið af eymd og hungri, að manni lileypur liryllingur um merg og hein. Hálfnakið og líkara villimönnum á frumstigi, cn íbúum í menningarmiðstöð í einu vold- ugasla í’íki veraldar. Það eitt er ólíkast með þessum lýð og frumstæðum villiþjóðum, að lxér skín sultur-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.