Skinfaxi - 01.04.1933, Qupperneq 41
SKINFAXI
41
vindlinga hafi gerl börn að þjófum.“ Má því fullyrða
að undantekningarlítið megi tclja tóbaksnautn með
frumorsökum alls þess sem miður fer innan þjóðfé-
laganna. Nú í ár fara 1 milj. 220 þús. kr. til dómstóla
og löggæzlu, lijá okkur Íslendingum.
Þá komum við að þriðja og síðasta liðnum, nefnilega
að tala um fjárhagslegu eyðsluna. Margir eru þeir sem
eyða nál. 1 krónu á dag í tóbak. I fljótu bragði virðist
þelta ekki vera nema lítil uppbæð. En við nánari at-
hugun sést, að svo er þó ekki. Dagarnir í árinu eru 365.
— Það verða 365 krónur á ári, með krónu eyðslu á dag.
Þó bygg eg', að tæplega sé rétt að rígskorða þetta við
365 krónur. Margir eyða meiru. Eg geng út frá 375
krónum vfir árið. Við getum liugsað að maðurinn
byrji tóbaksnotkun þegar hann er 15 ára, og bætti 45
ái'a. Tímabilið er 30 ár. Ef bann ekki neytti tóbaks, en
legði 375 kr. á vöxtu, á bverju ári í 30 ár, þá yrði það
á sama tíma, með vöxtum og vaxtavöxtum kr. 25,793.
Sömu upphæð eyðir bann raunverulega, þó að vextir
eða vaxtavextir komi ekki lil greina. Hugsum okkur
nú hvert stefnir með þessu. Hugsum okkur þann þjóð-
arauð sem skapast myndi, ef bver gætti skyldu sinnar,
og neytti ekki tóbaks. Hugsum okkur þann lífeyri sem
tóbaksneytendur gætu átt, ef þeir legðu á vöxtu þá
peninga, sem þeir nota sér aðeins til bölvunar.
Þetta er eftirtektarverð saga og lærdómsrík fyrir
þjóðfélag, sem berst í bökkum efnalega, og verður
jafnvel að stöðva nauðsynlegar framkvæmdir vegna
fjárskorts.
Hvaða ráð getum við nú upijlmgsað gegn þessu?
Fjöldi fólks, og þar á meðal margir tóbaksnotendur
viðurkenna þessar þrjár höfuðbölvanir tóbaksins. En
þrátt fyrir það vantar viljann til framkvæmda. Enn all-
sterkt lijarta þarf til að borfast i au'gu við svipaðar
staðreyndir og bér bafa verið dregnar fram.
Til að stemma stigu fyrir tóbaksnautn eru tvær leiðir.