Skinfaxi - 01.04.1933, Page 53
SKINFAXI
53
g l e ð i l í f s i n s ! Þú scm kannt að bjóða
Jmð, sem okkur ávallt gagna má,
bcr þú okkur boða yfir lífsins,
brjóttu niður þunga strauma kífsins.
Heill þér gleði, — hreina lífsins stjarna,
helga dísin, — lífið þinna barna,
leijfðu öllum lýð að skilja þig.
Greið þú öllum götu, scm að tapað
gæfu lífsins hafa, og sér skapað
ömurkalda leið um lífsins stig.
Vertn’ í öllu, vors með blíðan anda,
vefðu allt « millum þinna handa.
S i g' u r b j ö r n S i g u r j ó n s s o n.
Héðan og handan.
Laufabrauð.
Síðan að eg skrifaði greinina „Laufabrauð" i Skinfaxa, hefi
eg fengið þær upplýsingar hjá gömlu fólki. Að hér áður fyr
þegar venja var að hafa matarveizlur við giftingar, þá var
jafnan notað laufabrauð í þær veizlur. Voru þá fengnar 2 eða
fleiri stúlkur — kom fyrir að það voru karlmenn — til að
skera laufabrauðið, og voru þær kallaðar laufabrauðskonur.
Þótti það sómi að eignast það nafn, og heiður fyrir sveitina
að eiga góðar laufabrauðskonur. — Geta má þess, að iaufa-
hrauðsgerðin hefir flutzt lil Ameriku, og er það notað þar á
jólunum og í meiri háttar átveizlum meðal íslendinga. Er það
drengilega gert af þeim að halda þessari list við, og sýnir
vinarþel og þjóðernisanda þeirra, eins og svo margt fleira, sem
við fáum þeim aldrei full þakkað.
Jóhannes Friðlaugsson.