Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1933, Page 74

Skinfaxi - 01.04.1933, Page 74
74 SKINFAXI Við sjáum allvíða livað samhugur orkar. Samvinna á sem flestum sviðum atvinnulífsins, eltki aðeins i verzlnn, heldur og í útgerð, iðnaði og ræktun — sam- vinna til lands og' sjávar, mundi kippa í lið ýmsnm verstu liðhlaupum þjóðfélagsins. Hugsum okkur sjómennina, sem nú sitja á mölinni gráir og hnuggnir yfir atvinnuleysi, sem er þeim sama og dauði. Ef þeir ættu hlut i skipi, hefðu þeir alltaf vissa vinnu, þegar ráðlegt þætti að róa. Þeir ynnu fyr- ir sjálfa sig, kaupdeilur og verkföll færu fyrir ofan garð og neðan hjá þeim. Þeir ynnu til að skapa sem mest verðmæti. Og ef allir ættu hlut í framleiðslutækj- unum og í framleiðslunni, sem þeir ynnu að, vrðu kjör þeirra betri og jafnari. Sem belur fer sést visir til þessa. En betur má, ef duga skal. Og þá verður framleitt og keypt, óreiður og fjárkreppur mundu verða sjaldgæfari, óþarfa milliliðir hyrfu og viðskipt- in yrðu óþvingaðri. Slikt líf, slík barátta mundi hefja mannkynið, það sæi leiðir inn i ný lönd og tæki fagnandi móti hverri nýrri liugsjón, sem vekti það til nýrra átaka. Sú kenn- ing, að allir leggi jafnt fram til að mynda auðæfi þjóð- arinnar er röng. En það vill oft verða, að sá, sem legg- nr þar drýgst til, nýtur ekki verka sinna. En sönn samvinna mundi að miklu leyti leiði-étta það, þar sem sannvirði vinnunnar yrði staðgengill núverandi óreglu á verðlagi vinnu og hluta. Þá vrði kröfunni um almennt jafnrétti að vísn neit- að. En það cr gert, af þvi að liún er röng og ófram- kvæmanleg, nema aö heitt sé grimmdarlegri þvingun — sem þó gæti aldrei fylgt þeirri kenningu út í yztu æsar. Hins vegar mundi þá útilokað, að einn safni anði á kostnað annars, og margt færðist i réttlálara liorf en nú tíðkast. T. d. launagreiðslur til opinberra starfsmanna, embættismanna, sem nú eru oftast alltof

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.