Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1933, Page 76

Skinfaxi - 01.04.1933, Page 76
76 SKINFAXI hverri kynslóð, sem lifir í landinu. Óbornar kynslóðir eiga að marka sér stefnu sjálfar í sem flestu, og það gera þær, þrátt fyrir allt. Þær munu tilæja að draum- um og einfeldni þeirra, sem vildu gera ríkið einvalds- drottnara. Þær munu fyrirlíta þá, sem vildu stofna einstaklingsfrelsi og persónuleikanum í hættu, eins og við fyrirlítum nú auðvirðilegustu smásálirnar, sem sátu á keisarastólum miðaldanna. Þær munu fúsar taka sorg með gleði, keppa áfram, leggja krafta fram til þess itrasla — rétta hendurnar eftir meiru og meiru, sem auðgar Iífið. Það er vitni um vöxt. Og lianu er réttlátur og fagur, ef kröftum er ekki safnað á annarra kostnað. Og þegar svo verð- ur, er undursamlegá fagurt vor í þjóðlífinu.----- Þorgeirsstöðum, A.-Skaft., nýjársdag 1933. Sigurjón Jónsson. Frá framkvæmdanefnd „íslenzku vikunnar“. Á fundi iðnrekenda og annarra áhugamanna, sem haldimr var í Reykjavík 12. þ. m., var samþykt að lialda starfsemi „íslenzku vikunnar“ áfram þetta ár. Framkvæmdanefndin gaf skýrslu um störf sín á síðastl.. ári, ger'öi grein fyrir fjárreiðum siðasla árs og skilaði af sér störfum. Jafnframt lagði nefndin fram frumvarp lil laga um framtíðarstarfsemi „íslenzku vikunnar". Var framkvæmdanefndin endurkosin til þess að annast framkvæmdir „fslenzku vikunnar" á þessu ári, svo og frek- ari undirbúning framtiðarstarfseminnar. — Síðan liefir nefndin haldið fundi með sér, og ákveðið, að- næsta „íslenzka vika“ skuli haldin dagana 30. apríl til 7. mai n.k., og lieitir hún liér með á íslendinga um land allt að styðja starfsemi ]>essa með ráðum og dáð. Fyrst og fremst heitum vér á allar verzlanir i landinu að gera silt ýtrasta til að kynna almenningi íslenzkar vörur þessa vikti, hæði með þvi að sýna aðeins islenzkar vörur L

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.