Skinfaxi - 01.04.1935, Qupperneq 45
SKINFAXI
45
konar stofnanir eru starfandi í sveitum landsins, sem
liljóta að starfa að þessu frekar öðrum. Á eg þar við
skólana og ungmennafélögin.
í sveitaskólum okkar eru nokkur hundruð ungra karla
og kvenna, er slunda nám árlega. Hvergi er betra tæki-
færi en þar, til þess að efla félagskenndir og samvinnu-
hug unglinganna. Því hefir verið lialdið fram af ýms-
um, að fólk, er sótt hefir alþýðuskóla, vildi síður setjast
að í sveitum að loknu námi, en ef það hefði enga skóla
sótt. Eg býst við að eitlhvað sé salt í þessu og mér virð-
ist eðlilegt að svo sé. Það er lítið lokkandi fyrir ungt
fólk, sem verið hefir margt saman við nám, að setjast
að á afskekktum bæjum í fámenni. Ef sveitafólkið, sem
skólana sækir, fæst ekki til þess að sinna sveitastörf-
um við þau skilyrði, sem nú eru, þá verður að breyta
starfsskilyrðunum, svo að þau verði í samræmi við
óskir fólksins. Hér verður þeim ekki breytt á annan
hátt en þann, að auka þéttbýlið og vinna meira saman.
Hlutverk skólanna er að ala unga fókið upp til þess að
það geti tekið að sér hin nýju verkefni. Hvað er eðli-
legra, en hópur af ungu fólki, sem stundað hefir nám
saman og þjálfazt þar til margskonar samvinnu, laki í
félagi samvinnubyggð á leigu og hefji þar húskap. Eg
hefi mildu meiri trú á því að sú samvinna lánist og beri
glæsilegan árangur, heldur en ef fólki, sem ekkert
þekkist áður, væri hóað saman.
Ungmennafélög hafa starfað hérlendis um þrjátíu
ára skeið. í öndverðu tóku ]iau sér að einkunnarorðum
,.Ræktun lýðs og Iands“. Þau ætluðu sér það fagra hlut-
verk, að breyta óræktarmóum og uppblásnum melum
í gróðursælar ekrur og þroska og glæða sálarlíf fólks-
ins, svo að það yrðu betri þjóðfélagsborgarar. Margir
telja, að árangur af störfum ungmennafélaganna sé
lítill. Slíkt er hinn mesti misskilningur. Eg er sannfærð-
ur um að starfsemi þeirra síðasta aldarfjórðunginn er
ómetanleg fyrir land og lýð. Hitt hefir þótt við brenna,