Skinfaxi - 01.04.1939, Side 28
28
SKINFAXI
Hallgrímur Jónsson, Ljárskógum:
Sólvangur.
Hin síðari ár hefir komið glæsilegur fjörkippur í
mörg af hinum gömlu og góðu ungmennafélögum, sem
dreifð eru um byggðir landsins. Hinn brennheiti áhugi
og eldmóður, sem fyllti hugi æskumanna á fyrstu starfs-
árum félagshreyfingarinnar, hefir þó eflaust risið
liærra. En hver veit, nema sá eldur, sem nú hefir kvikn-
að, verði eins haldgóður? Hann er kveiktur úr göml-
mn glæðum, sem aldrei liafa að fullu slokknað, þótt
stundum liafi virzt heldur lítið um eldsnevtið. Neist-
inn hefir lifað innra með okkur og lifir i rauninni allH
af, þótt hann lýsi misjafnlega skært frá ári til árs, kyn-
slóð til kynslóðar. Aldan linígur og ris — eldurinn
biossar eða fölnar eftir því lofti, sem um hann leikur,
og eftir eldsneytinu atgervi og sálarþroska einstakl-
ings og heildar. En eitt er víst: Því fleiri spor, sem
stigin eru, ])vi fleiri sjónarsvið, sem fundin eru — þess
viðari og gleggri sjónhringur er markaður á liðnum
árum ungmennafélagsins um störf Iians, unnin og ó-
unnin, stefnur lians, heilsteyptar eða brotnar, vonir
hans, djarfar eða lágfleygar og lieit hans sönn eða ó-
sönn; með öðrum orðum: Þvi meiri reynsla og
gleggri saga frá liðnum árum ungmennafélagans, þess
meiri likur fyrir þvi, að hækkandi alda í störfum og
stefnum ungmennafélagans í dag merki lengri hið eft-
ir næsta öldudal. Og til |)ess er gott að hugsa.
Vafalaust má segja, að þetta sé óþarfur inngang-
ur að frásögn um starfsemi eins ungmennafélags iá einu
ári. Hann kom einhvernveginn ósjálfrátt af því að
ég tel afköst Umf.. „Ólafs pá“ á síðasta ári að miklu leyti
byggð á störfum og reynslu félagsins frá stofnun þess
og fram til síðasta árs. Eg hefi verið félagi í „ólafi pá"