Skinfaxi - 01.04.1939, Page 67
SKINFAXI
67
ullir óska þess, að honum auðnist enn um langa framtíð að
vinna að sínu þjóðholla ræktunarstarfi: Að rækta blóm mann-
göfginnar í sálum ungra manna.
Og við, sem nutum þess, að horfa á iþróttir þeirra Hauk-
dæla á þessu ferðalagi. Þökkum þeim fyrir komuna og ósk-
um þess, að Sigurð og sveina hans beri sem fyrst að garði
ungmennafélaganna á ný.
Sigurður Greipsson:
Mótið 1940.
A síðasta sambandsþingi U.M.F.Í., sem háð var í Þrasta-
lundi 11.—12. júní 1938, var samþykkt svohljóðandi tillaga:
„Þingið samþykkir, að efnt verði til allsherjar íþróttamóts
innan U.M.F.Í. 1940 og verði mótið liáð á Akureyri. Þriggja
manna nefnd vcrði þegar kosin til undirbúnings þessa máls
og starfi hún í samráði við stjórn U.M.F.Í.“
í þessa nefnd voru kjörnir: Sigurður Greipsson, Haukadal,
mag. Geir Jónasson, Akureyri, Kjartan Sveinsson, Hvanneyri.
Sem kunnugt er hafa ungmennafél. bezt allra starfsheilda
unnið að útbreiðslu íþrótta um dreifðar byggðir lands vors.
Verður ekki fram hjá því gengið, að svo hefir áunnizt, að
.sveitaæskan er á margan liált mennilegri í framgöngu en
hún nokkru sinni hefir verið fyrr. í þeim félögum, þar sem
iþróttirnar eru vel ræktar, er jafnan félagsskapurinn öflug-
astur.
U.M.F.Í. gekkst fyrir fyrsta allsherjar íþróttamóti íslands
1911.
Ýms héraðssambönd og jafnvel einstök ungmennafélög hafa
efnt til árlegra íþróttamóta innan sinna vébanda. Hefir þetta
sameinað félögin og örfað starfsemi þeirra.
Það virðist því vel til fallið, að ungmennafélög landsin:;
efni liráðlega til allsherjarmóts, þar sem ungmennafélagar
einir komi fram til þátttöku í ýmsum íþróttagreinuin. Það
þykir vel valið, að Akureyri sé mótstaður, því að þar stóð
citt sinn vagga þeirrar hugsjónar, sem ungmennafélögin hafa
lifað fyrir.
Eg geri ráð fyrir, að ýmsum muni þykja þetta ærið um