Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1973, Side 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1973, Side 2
Þetta eru vísindamennirnir, sem fóru í leiðangurinn á Bjarna Sæmundssyni, talið frá vinstri: Sven Aage Malmberg, Þórunn Þórðardóttir og Ingvar Hallgrimsson. ustu 3 ár, andar köldu frá hon- um og er botnhiti mjög lágur eða 0°—4°, en yfirborðshiti yfirleitt 4.5°—7.5°. Árið 1965 var fyrsta verulega hafísárið frá því á árinu 1918 og þótt kuldaskeiði því, sem þá hófst sé ekki lokið spá vísinda- menn ekki neinum austurís á komandi vetri og næsta sumri. Þó er ætlunin að fylgjast betur með þessu í ágústmánuði og á kom- andi haustmánuðum. Athyglis- vert er að yfirborðshiti er nú lægri í Norður-Atlantshafi en í meðallagi eða 2° undir. Styrkleiki Golfstraumsins hefur farið dvín- andi hér norðurfrá allt frá árinu 1953. Þetta hefur að sjálfsögðu áhrif á fiskigöngur hér við land. T. d. gera fiskifræðingar ekki ráð fyrir mikilli rækjuveiði á Húnaflóa á næstunni vegna sér- lega kaldra strauma á öllum könt- um flóans. Þörungagróður var athugaður með nákvæmum gegn- skinsaðferðum. Voru 115 sýni tekin með aðstoð ljósmælis og gegnskin yfirleitt lítið, sem þýðir ríkulegt plöntulíf sjávarins. Hins veg-ar er ekki búið að rannsaka öll sýnin og vildu vísindamenn- irnir á þessu stigi ekkert segja hvað þetta bæri í skauti sínu. Þó væri álit þeirra það, að gróður væri mun meiri nú en ísárið 1965 og lífsskilyrði yfirleitt góð. Áta er þó frekar lítil í sjón- um og hefur farið verulega minnkandi sl. 10 ár. Menn eru ekki sammála um hvers vegna, en margt bendir til að mengun í sjónum hafi þar veruleg áhrif. Á Þistilfirði köstuðu leiðang- ursmenn trolli og fengu tiltölu- lega gott af þorski. Lýðveldisdag- inn 17. júní toguðu rúmlega 20 brezkir togarar í Reykjafjarðar- áli. Þegar „Bjarni Sæmundsson" birtist þar gerði dráttarbátur- inn Statesman sig heimakominn og hringsólaði umhverfis rann- sóknaskipið, en lét skipið síðan í friði. Þar sem vísindamennina langaði að vita, hvernig fisk var að fá á þessum slóðum köstuðu þeir tvisvar var fyrra togið 1 klst., en það síðara 2 klst. Poki 202 rannsóknaskipsins var klæddur til að sjá hvaða fiskur var þarna. í þessum tveim holum komu upp 1040 fiskar, reyndist 53,8% undir þeirri stærð, sem frystihúsin taka við og telja sig geta nýtt, en það er 45 cm langur og lengri fiskur. Alþjóðamörkin eru þó nokkuð lægri eða 35 cm að lengd og munu Bretarnir eftir þessu að dæma sópa upp fiski, sem er 11,7 % und- ir alþjóðamælikvarða. Er full á- stæða til að halda að trollin séu að hluta klædd. Megin þorri þess fisks, sem veiddist þarna er 3ja ára ókyn- þroska fiskur eða allt að 50 %, en þorskurinn verður fyrst kyn- þroska við 6 ára aldur. Það er víti til varnaðar að benda á, að þorskárgangurinn frá 1964 var talinn mjög sterkur, en meira en helmingur hans var veiddur ó- kynþroska og kom það all óþyrmi- lega niður á veiðum okkar. Ef svo fer fram sem nú horfir, mun árgangurinn frá 1970, sem talinn er mjög sterkur, verða að engu, því að nú hirða skipin 3 ára ókynþroska fiskinn. Við höfum líka fregnir af því að stöðugt fleiri fiska þurfi til að fylla tonnið, þannig er brezk fiskikarfa talin innihalda 35 kg; Lóðrétti ásinn sýnir magn fisksins í hundraðstölu af veiddum fiski, en lárétti ásinn sýnir lengd fisksins í cm, sem veiddur var. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.