Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1989, Side 37
. . . Henry A. Hálfdansson
Áhöfnin sem sigldi
skipinu heim. Taliö frá
vinstri: Ásgrímur
Björnsson skipstjóri,
Pétur Kristjánsson
vélavöröur, Einar Sig-
urjónsson bátsmaöur,
Hannes Hafstein há-
seti, Alex Strutt frá
RNLI á Orkneyjum,
Hálfdan Henrysson
stýrimaður og Haildór
Olesen vélstjóri.
Á miöju ári 1944 réðst hann
til SVFÍ og starfaði þar sam-
fleytt þar til hann andaöist í
nóvember 1972, 68 ára að
aldri.
Á þessum vettvangi starfaði
Henry heilshugar. Hann þekkti
af eigin raun hvar skórinn
kreppti í öryggismálum sjó-
manna og lagði ríka rækt við
slysavarna- og björgunarstörf-
in. Ekki verða tíunduð störf
Henrys á þeim kröfuharða og
margþætta vettvangi. Þó skal
eins getið sérstaklega. Það var
hans áhugamál að björgunar-
skútur yrðu starfræktar í hverj-
um landsfjórðungi. Því er vel að
svo glæstur og góður farkostur,
sem hér liggur bundinn við höf-
uðstöðvar SVFÍ, beri nafn
Henrys og þeim mun ánægju-
legra að geta tengt vígslu
Þessa björgunarskips og nafn-
9ift við merk tímamót í starfi og
sögu SVFÍ og sjómannadags-
ins.
Þetta er öllu slysavarnafólki
sannkallaður gleðidagur. Við
samgleðjumst frú Guðrúnu
Þorsteinsdóttur, ekkju Henrys
A. Hálfdanssonar, og hennar
fólki öllu. Á þessum tímamótum
er henni heilshugar þakkað,
hversu vel og dyggilega hún
stóð við hlið síns ástkæra eigin-
manns og studdi hann með
ráðum og dáð að slysavarna-
og björgunarmálum.
Þau fögnuðu hvort öðru
af miklum innileik, Ester
Kláusdóttir varaforseti
SVFl og Hannes Haf-
stein háseti.