Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Blaðsíða 28
VÍKINGUR
Gámur
Tölur um aflaverðmæti, þegar skip
koma til lands, eru ekki alltaf
áreiðanlegar. Vigri RE og Þerney RE
komu bæði úr góðum túr um
mánaðamótin nóvember/desember. í
báðum tilfellum var áætlað að afla-
verðmæti væri um hundrað milljónir
króna. Þegar uppgjör úr túrunum lá
fyrir kom í ljós að aflaverðmæti
Vigra var um 85 milljónir og Þern-
eyjar rúmar 90 milljónir króna.
Þórður Magnússon, skipstjóri á
Þemey, segir að þeir þekki dæmi
þess að meira hafi fengist fyrir
aflann en gert hafi verið ráð fyrir og
eins að það verð, sem áhöfnin telur
að fáist, verði lægra þegar upp er
staðið.
aEinn útgerðar-
maður er starf-
andi blaðamaður,
en það er Reynir
Traustason á DV.
Mjög kaldir vind-
ar blása milli hans og formanns
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, Kristjáns Ragnarssonar.
Kristján mun hafa ákveðið að ræða
ekki við blaðamanninn og útgerðar-
manninn Reyni Traustason.
Mikið hefur verið af þorski í
Breiðafirði í vet-
ur. Dæmi er um
að dragnótarbátur
hafi fengið 40
tonn í hali, en þeir
náðu aðeins 16 til
17 tonnum úr
nótinni. Bátarnir
geta, sökum
kvótaleysis, ekki nýtt sér þessa
miklu fiskgengd nema í litlum mæli.
Samval
ÖRUGGT MAL
J"Vá árinu 1978 hefur PÓLS hannað og
og tæki fyrir fiskvinnslu, bæði á sjó og í
hefur farið ört vaxandi ú undanfömum
stöðugri þróun og framleiðslu á tækjum
sinna og tekur þátt í nýsköpun í íslensku
PÓLS-Rafeindavörur hf. Markaðsdeild Ármúla
Voga- og stýrikerfi
5114* Fax 588 5116* Telex 2253 Poles is.
28