Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Blaðsíða 44
VÍKINGUR
Vertíðarstemmning í Sandgerði:
Flóinn
er
fullur
af fiski
- á sama tíma fær ralltogarinn ekki titt
Það er stemmning í Sandgerði,
sannkölluð vertíðarstemmning. Þó er
hún ekki eins og áður fyrr. Þrátt fyrir
mikið ftskirí eru menn ekkert ánægðir.
Þeir kenna kvótanum um, eðlilega líð-
ur fiskimanni illa að mega ekki fiska
það sem hann getur.
„Við erum sammála um að svona
hrota hefur ekki komið síðan 1970.
Við vorum að ræða þetta áðan ég og
Tommi á Hafnarberginu. Við erum
sammála um að það eru tuttugu og
fimm ár frá því að annað eins fiskirí
hefur verið hér. Tommi var að taka
upp síðustu fimm trossurnar, bölvaða
garma, því menn skipta ekki um net í
þessu ástandi. 1 þessum fimm trossum
var hann með 20 tonn, það sýnir
hvernig þetta er,“ sagði Karl Einars-
son, hafnarvörður í Sandgerði, þegar
útsendarar Víkingsins voru þar á ferð
föstudagskvöldið 9. mars.
Já, það voru allir viðmælendur
okkar á því að annað eins fiskirí hefði
ekki verið í áraraðir. En menn vildu
ræða fleira en fiskirí. Kvótinn og lög-
in um stjórn fiskveiða eru mönnum
ofarlega í huga, mjög ofarlega. Með
þessari grein er birt viðtal við Sigurð
Ingólfsson og segja má að það, sem
hann hefur um þetta að segja, sé
dæmigert fyrir það sem sjómenn í
Sandgerði vildu helst ræða. Lesið
viðtalið við Sigurð.
Banndagarnir eru
allir í smástreymi
„Það þarf enginn að segja mér
annað en Kristján Ragnarsson og fé-
lagar hans í togaraklíkunni hafi átt
sinn þátt í því að banndagar krókabá-
tanna eru allir þegar smástreymt er, en
þeim er leyft að róa í stórstrauminn.
Þetta er útspekúlerað. Það á að eyða
smábátunum og það á að eyða öllum
bátaflotanum. Allt í þágu togarak-
líkunnar, sem er langt komin með að
eignast allan kvótann. Þetta er plan-
lagt, það þarf enginn að segja mér
annað. Ég er búinn að vera hér á
vigtinni í ellefu ár. Það var fyrst í dag
sem ég sá Kristján Ragnarsson koma
hingað til Sandgerðis, hann var á
þessum flotta jeppa með eitthvert
S Þ = 1 i STÓRÁSI 6 Skipa- jónusta HÉÐINN = 3MIÐJA • GARÐABÆ • SÍMI 652000 • FAX 652570
Hönnun • smíði • viðgerðir • þjónusta
44