Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Blaðsíða 14
VÍKINGUR
y Loðnuspjall:
Ahugavert að skoða
hvað verðið fer
mikið niður
- segir Viðar Karlsson á Víkingi, sem óttast verðfall á frystri loðnu
Olafur Arnfjörð Guðmundsson
Loðnuvertíðin stóð sem hæst, marg-
ir bátanna höfðu verið að fá ágætan
afla. Það er þriðjudagurinn 7. mars og
síminn notaður til að heyra í þremur
skipstjórum. Það var margt að spjalla
um, t.d. að loðnuflotinn mun ekki ná
því að veiða þann kvóta, sem úthlutað
er í ár. Upp hefur komið sú spurning
hvort afnema eigi kvóta á loðnu á
þessu ári með það að markmiði að ná
meira magni á land.
Þorsteinn Kristjánsson,
skipstjóri á
Hólmaborg SU II:
Þá þurfa menn
ekki að kaupa
kvóta
„Við erum staddir undir Malarrifi á
Snæfellsnesi, hér er bræla, vindur
austanstæður og ekki hægt að athafna
sig. Við erum búnir að fá rúmlega
20.000 tonn á vertíðinni.“
Hvernig líst þér á að menn nái kvót-
anum?
„Það er útilokað.“
Hvernig líst þér á að gefa veiðarnar
frjálsar eins og ástatt er?
„Mér líst vel á það, það eru mörg
skip sem hafa sinnt veiðum á sumrin
og eru langt komin með kvótann sinn,
Hólmaborgin hefur verib meöal
aflahæstu skipa á síbustu árum.
aðrir sem hafa ekki byrjað fyrr en
núna eftir áramótin jafnvel eiga nógan
kvóta. Með því að gefa þetta frjálst
þurfa menn ekki að kaupa kvóta, sem
annars mundi detta niður dauður.
Miðað við hvernig gengið hefur í
vetur og allir vita hvernig veðráttan
hefur verið er ekki spurning um að
gefa þetta frjálst.“
Lárus Grímsson, skip-
stjóri á Júpíter ÞH 61:
Er ekki viss um
að Geiri frændi á
Guggunni yrði
hrifinn
„Við erum að nálgast Stafnes á suð-
urleið með fullan bátinn af hrogna-
loðnu, við fengum þetta átta mílur
suður af Jökli. A þessu svæði er bræla
núna en hann hægði í um sex tíma í
nótt og þá náðum við þessum 1.300
tonnum eða fullum bát.“
Hvernig líst þér á að hleypa frjálst á
loðnuveiðarnar?