Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Blaðsíða 27
VÍKINGUR
þegar báturinn fórst og hann vel hlað-
inn af fiski. Hitt er það að við höfum
haft þann sið hér að fara með bænirnar
okkar oft í upphafi veiðiferðar. Ég tel
að það sé ágætis siður og betra að gera
það fyrirfram að kalla á almættið frek-
ar en þegar allt er komið í óefni.“
Sverrir Gunnlaugsson,
skipstjóri á Eyvindi
f Vopna NS 70:
Ég er alveg laus
viðhjátrú
„Ég er alveg laus við að vera með
einhverja hjátrú, ég held ég hafi t.d.
byrjað núna á mánudegi, en það eru
sumir sjómenn með slíka hjátrú þótt
þetta sé farið að minnka töluvert. Ég
man hins vegar eftir því þegar maður
var að byrja á þessu, en ég var á Sig-
urði Bjarnasyni og Súlunni, að þá var
aldrei farið út á mánudegi eða mið-
vikudegi.“
Sigurður Magnússon,
skipstjóri á
IJólmanesi SU 1:
Ég tók aldrei
bakborðsbeygj u
Hólmanes SU.
„Jú, eitthvað hefur maður verið
haldinn slíku í gegnum tíðina en þetta
hefur minnkað hjá manni. Ég tók t.d.
aldrei bakborðsbeygju þegar ég fór frá
bryggju, en ég er farinn að gera það
einstaka sinnum núna en þá verða
strákamir alveg vitlausir. Núna er ég
t.d. alveg hættur að hugsa um hvaða
degi maður byrjar á, sérstaklega þegar
við erum á trolli. Þegar ég var á netum
fannst mér best að byrja á sunnudegi,
aldrei á mánudegi, þriðjudegi eða
miðvikudegi. Þessa reglu hélt ég
alltaf.“
En hvað segirðu um það að draga
lúðu, oft hafa menn haft uppi hug-
renningar í sambandi við það?
„Að draga lúðu, ja það var nú sagt,
þegar maður dró hana á handfæri
hérna fyrir vestan þegar ég var að
alast upp, að ef það var fullorðinn
maður eða maður sem var kominn
með hreina náttúru þá ætti hann von á
barni, en það var nú ekki alltaf sem
það var nú samt. Hins vegar töldu
sumir sig eiga von á einhverju ef þeir
drógu lúðu, aðrir voru búnir að barna!
Það heyrist nú enn að menn láta svona
út úr sér, svona einn og einn, en eitt-
hvað hefur nú dregið úr hjátrú svona
almennt hjá sjómönnum, þetta var
miklu meira hér áður fyrr og sérstak-
lega í kringum netin. Ég man t.d. eftir
því að menn fóru út á sunnudegi þótt
það væri bræla og lágu bara úti, þá
voru þeir farnir frá bryggju á sunnu-
degi og svo var kannski lagt á þriðju-
degi. Hjátrúin lifir, enda er allt í lagi
að menn trúi á slíkt — það skaðar
engan.“
Óskar Vigfússon, fyrr-
verandi formaður Sjó-
mannasambands
s
Islands:
Konan fylgdi mér
aldrei niour á
bryggju
„Því er hægt að svara bæði játandi
og neitandi, þetta hefur nú fylgt sjó-
mannastéttinni í gegnurn tíðina og
gerir enn. Jú, það fylgdi manni í gegn-
um sjómennskuna að hafa fyrir sér
„Ég man eftir tveimur skipstjórum
sem byrjubu aldrei á mánudögum,"
segir Oskar Vigfússon.
bæði drauma og annað, sem einhver
merki um það sem myndi gerast. Ég
t.d. lét aldrei konuna mína fylgja mér
niður að bryggju þegar ég var að fara
út á sjó, það er nú eitt af því sem ég
gerði aldrei. Það var líka yfirleitt regla
hér fyrir sunnan, bæði á togurum og
bátum, að fara aldrei út á mánudögum
þegar þeir voru að byrja úthald, þeim
var afar illa við það. Ég var lengi á
togurum og ég man t.d. eftir tveimur
skipstjórum sem byrjuðu aldrei á
mánudögum."
Gerist áskrifendur!
Áskrift-
arsíminn
er 562
9933
Sjómtannablaðið Víkingur
27