Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Blaðsíða 50
VÍKINGUR
2.300 tonna togari
leigður til
Vesturbyggðar
Sigurður Viggósson, framkvæmda-
stjóri Odda hf. á Patreksfirði, hefur
ásamt fleirum tekið rúmlega tvö þús-
und tonna togara á leigu til eins árs.
Möguleiki er á að framlengja samn-
inginn. Togarinn, sem er frá Litháen
og búinn frystitækjum og brennslu,
verður gerður út á úthafskarfa. Sig-
urður Viggósson var tekinn tali vegna
þessa.
Hver var aðdragandi þess að menn á
Patreksfirði tóku á leigu togara og
fóru að gera út?
„Við höfðum verið að leita eftir því
fyrir vestan, við stöðugan samdrátt í
fiski, hvernig væri hægt að ná inn
meiri afla á svæðið og einn liður af
mörgum var að gera út togara með
þessum hætti. Við komumst í sam-
band við aðila sem voru með
litháískan togara á leigu, við sáum
möguleika í því að fara sömu leið og
þeir og senda hann á
Reykjaneshrygginn, þar sem er karfi,
og þá með það í huga að fá karfann að
hluta til í vinnslu á Patreksfirði.“
Er þetta frystiskip?
„Þetta er frystiskip með öllum
frystibúnaði og afkastagetan á
sólarhring er um 30 tonn, einnig er um
borð mjölverksmiðja og lýsisvinnsla.
I fyrstu var einvörðungu verið að
hugsa um að veiða karfa og vinna
hann um borð. Þegar ég kom inn í
þetta dæmi sá ég hins vegar mögulei-
ka á að vinna hluta af aflanum, eða um
25% hans, á Patreksfirði, 75% af
aflanum fara hins vegar á
Japansmarkað.“
Hvers vegna er skipið gert út frá
Patreksfirði?
„Við erum tveir Patreksfirðingar
eigendur í fyrirtækinu sem hefur
skipið á leigu. Við höfðum að sjálf-
sögðu áhuga á að fá skipið til
Patreksfjarðar og það var samþykkt af
öllum aðilum, reyndar með því
fororði að það næðist að ná niður
kostnaði með því að nota Patreksfjörð
sem umskipunar- og löndunarhöfn.
Við náðum samningum um lægri
kostnað við löndun, hafnargjöld og
aðra þjónustu, eða öllu heldur: það er
komið vilyrði fyrir lækkun á hafn-
argjöldum, það er komið vilyrði fyrir
góðum kjörum hjá Eimskip á flutningi
á afurðum og svo öðrum þjónustu-
þáttum. í áhöfn eru 35 Litháar og
Rússar auk þess sem um borð er ís-
lenskur fiskiskipstjóri, Ásgeir Þórðar-
son, en hann er jafnframt einn af eig-
endunum. Svo eru tveir vinnslustjórar
um borð til að tryggja gæðin, þeir eru
einnig íslenskir.“
Aukast umsvif á Patreksfirði við
komu þessa skips?
„Já, tvímælalaust, þetta mun auka
umsvif allra þjónustuaðila í sjá-
i
Ocher vib komuna til Patreksfjarbar, en hluti aflans fer til vinnslu þar.
so