Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Blaðsíða 59
VÍKINGUR
Sveinbjörn Jónsson, Suðureyri:
Kerfið býr til
krimma og sóða
Smábátaeigendur á Vestfjörðum
horfa þessa dagana á kollega sína á
Suðurnesjum moka upp fiski. Slæm
tíð hefur gert þeim erfitt fyrir og þeir
hafa ekki komist mikið á sjó, en er
þetta það sem gerir þeim erfiðast fyrir
í trilluútgerðinni? Ekki er svo að
heyra á Sveinbirni Jónssyni á Suður-
eyri, sem er harður andstæðingur nú-
verandi kvótakerfis. Hann vill það
burt og að tekið verði upp sóknarkerfi.
Hvernig hefur trilluútgerð gengið á
Suðureyri?
„Héðan róa eitthvað um fimmtán
trillur og það hefur gengið afleitlega
það sem af er þessu ári, það má segja
að ekki sé hægt að gera út trillu við
þessar aðstæður. Hitt er svo annað mál
að í venjulegu árferði hefur ársafli
smábáta héma verið í kringum 2.000
tonn yfir árið. Eg hef komist þrisvar á
sjó frá áramótum, tvisvar í febrúar og
einu sinni í mars. Það var sæmilegur
afli í þessum róðrum en við höfuni
ekki komist oftar á sjó vegna veðurs,
við róum með línu svona frá því í
ágúst og alveg fram í maí. Við vorum
stopp í desember og janúar og svo
komumst við tvo róðra í febrúar og
einu sinni í mars.“
Hvernig finnst þér stýringin á
aflasókn krókaleyfisbáta?
„Það er alveg ljóst að allar takmark-
anir eins og þær hafa verið fram-
kvæmdar, hvort sem um er að ræða
dagastopp eða eitthvað annað, munu
leiða til þess að menn eru harðari þann
tíma sem þeir mega róa. Það er vísasti
Ólafur Arnfjörð Guðmundsson
vegurinn til að stefna þessum hlutum í
voða að vera með svona kerfi á þessu.
Hitt er annað mál að frjálsræði er
betra. Það væri best, úr því að menn
vilja vera að stjórna þessu, ef þeir
gæfu okkur 120 sóknardaga á ári, það
er alveg nóg. Menn fengju þá að nota
þá daga eins og þeir vildu. Það var til-
laga á Fiskiþingi, sem var samþykkt í
hittifyrra og árið þar áður, sem gerði
reyndar ráð fyrir
180 sóknardögum.
Um þessa tillögu
var sátt í sjávar-
útvegi landsins og
hjá Fiskiþingi, hún
var samþykkt með
þorra atkvæða
bæði togarasjó-
manna og á stærri
bátum, en ráðu-
neytið vill hafa
þennan háttinn á.“
Hvernig er
ástandið á
norðursvæðinu á
Vestfjörðum?
„Isafjörður er
náttúrulega tog-
araútgerðarbær, en
hérna suðurúr má
segja að menn
lepji dauðann úr
skel þegar svona
er og svo eru hót-
anir um víðtækari
hindranir, sem eru
inni í lögum í dag.
Banndagatjöldi á
næsta ári gæti farið upp í 240 daga ef
við fiskum sæmilega þetta árið. Þetta
kerfi er svona og burtséð frá öllum
mannréttindaþáttum þá er þetta lög-
brot.“
Gengur þetta núverandi kerfi frá
smábátaútgerðinni?
„Það endar með því og eflaust er
það stefna stjórnvalda að minnka
þessa útgerð. Þetta er ein af hliðum
59