Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Blaðsíða 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Blaðsíða 40
VÍKINGUR Utan úr heimi eftir Hilmar Snorrason skipstjóra Skipið brotið Áhöfn Kýpurskipsins Trade Daring lenti heldur betur í vandræðum eftir að skip hennar fórst í höfninni Ponta da Madeira í Brasilíu. Skipið var að ljúka lestun á 80 þúsund tonnum af járngrýti þegar það brotnaði í tvennt og sökk án þess að nokkuð fengist að gert. Enginn fórst í þessu slysi en lestunarstaður skipins var ný- tekinn í notkun og því mikið tjón að hafa heilt skip liggjandi á hafsbotni í einhverjar vikur meðan unnið er að því að fjarlægja flakið. Bæði áhöfn og lestunaraðilar kenna hver öðrum um óhappið og er nú svo Véla- og skipaþjónustan FRAMTAK HF DRANGAHRAUN11 B SÍMI 91-652556 FAX 91-652956 VECOM Efnaframleiðsla og tæknileg þjónusta við skip og iðnað Alhliða vélaviðgerðir - Rennismíði - Plötusmíði A - Service Station komið að sautján skipverjar ásamt skipstjóra Trade Daring hafa verið hnepptir í fangelsi svo ekki sé hætta á að þeir fari úr landi. Ekki hefur tekist að fá upplýsingar um aðbúnað fanganna, en útgerð skipsins hefur þær upplýsingar að þeir séu í haldi við slæma vist en yfirvöld segja þá vera á hóteli. Áhöfnin er sökuð um að hafa falið skipsskjölin en hún ber yfirvöld fyrir þjófnaði á þeim. Að sögn skipstjóra mun lestunaraðilinn ekki hafa farið eftir þeirri lestunaráætlun sem áhöfnin hafði gert og því hafi skipið brotnað. Því er við að bæta að Trade Daring var orðið tuttugu og tveggja ára gamalt og því eflaust farið að láta á sjá. Stórflutningaskip í vanda Strax eftir að Trade Daring sökk bönnuðu hafnaryfirvöld í Sepetiba í Brasilíu komur eldri skipa en 20 ára til hafn- arinnar. Utgerðarmenn búlkskipa eru því áhyggjufullir yfir að fleiri hafnir fylgi í kjölfarið. Gömlu búlkskipin hafa átt stöðugt erfiðara með að fá farma sökum þess hversu tíðir skipsskaðar hafa orðið á þessari skipagerð. Þegar hafa eldri skipin verið sett á bannlista með ffutninga frá Ástralíu og um alla Suðaustur-Asíu sökum þessa. Þegar þessar gerðir skipa hafa náð 12 ára aldri virðist sem allur styrkur sé úr þeim og þau fari þá að gefa sig. Sjaldgæft er að skip undir þessum aldri lendi í skakkaföllum vegna styrkleika eins og eldri skipin. Á síðasta ári fórust 140 sjómenn með samtals níu búlkskipum. Þrjú þessara skipa hurfu sporlaust en þau voru Marika 7, Apollo Sea og Iron Antonis. Iron Antonis var síðasta búlkskip sem fórst árið 1994 en það var 26 ára gamalt, skráð á Kýpur. Skipið var á siglingu í Suður-Atlantshafi í sinni síðustu ferð áður en brotajárnspottarnir tækju við því að losun lokinni þegar það hvarf. Með skipinu fórust 24 menn. Hættulegur ferðamáti? í nóvemberlok sl. sáum við í fréttum myndir frá elds- voðanum í farþegaskipinu Achille Lauro, en skipið var á skemmtisiglingu á Miðjarðarhafi. Með þessum bruna lauk einu skelfilegasta ári ferja og farþegaskipa sem um getur í langan tíma. Þótt einungis fjórir hafi látið lífið þegar Achille Lauro brann verður það sama ekki sagt um það þegar Estonia eða Cebu City fórust. Nú farið þið, lesendur góðir, að velta fyrir ykkur hvaða skip Cebu City er. Það verður að segjast að hinn vestræni heimur fór alveg á mis við það slys sökum þess að fjölmiðlaflóran var hvergi á staðnum, engir evrópskir farþegar um borð og engir farþegar sem tóku myndir af slysinu. Engu að 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.