Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Blaðsíða 53
VÍKINGUR
Er að skrá sögu
nýsköpunartogaranna
Hilmar Snorrason, skipstjóri og
skólastjóri Björgunarskóla sjómanna,
er að skrá sögu nýsköpunartogaranna
ásamt eiginkonu sinni, Guðrúnu
Hrefnu Guðmundsdóttur.
„Ég hef safnað miklu um íslensk
kaupskip og er enn að því og nú hef ég
ákveðið að safna upplýsingum um
nýsköpunartogarana. Þegar hafa kom-
ið út tvær bækur um kaupskip sem ég
hef tekið saman, bók þegar Skipa-
útgerð ríkisins varð 60 ára og bók
þegar Eimskipafélag Islands varð 75
ára. Takmarkið er að koma meiru af
þessum upplýsingum á prent.
Hvað varðar nýsköpunartogarana
þá er búið að skrá ýmislegt um það
tímabil í sögunni, en ekkert hefur ver-
ið skráð um skipin sjálf. Á árunurn
1947 til 1952 komu hingað 42 togarar
sem ríkið lét smíða í Bretlandi. Mig
vantar upplýsingar og myndir um tog-
arana. Miklar breytingar urðu við
komu þeirra, bæði voru þeir stærri en
þau skip sem fyrir voru og eins voru
þeir ekki kolakyntir, tlestir þeirra voru
olíukynt gufuskip, en fjórir þeirra
voru díseltogarar. Það er mikil saga á
bakvið þessi skip og þau sköpuðu
miklar breytingar víða um land,“
sagði Hilmar Snorrason.
Hilmar segir að enn vanti hann
upplýsing-
ar um 20
til 30
kaupskip,
en hann er
að safna
upplýsing-
urn allt
aftur til
ársins
1870.
Hofsá var sérstakt skip þegar ab því er gætt að það var smíðað í
Austurríki.
Ólafur Jóhannesson BA frá Patreksfirði var fyrsta fiskiskip Islendinga með
frystilest.
Við veitum góðri hugmynd
brautargengi!
LÁNASJÓÐUR VESTUR-N ORÐURLANDA
ENGJATEIGI 3-105 REYKJAVÍK - SÍMI: 560 5400 FAX: 588 2904
53