Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Blaðsíða 13
VÍKINGUR
Kristján Loftsson
á barnum
Steinar fór í fleiri hrefnuleiðangra
til Islands og aflaði vel. Hann segist
hafa skotið hval uppi í landsteinum
þegar svo bauð við að horfa og komist
upp með allt. Seinustu ferðina fór
hann sumarið 1984. Eftir það tók hann
að sér kennslu í sjómennsku í Afríku
tvö ár. En þegar hér var komið sögu
var ekki lengur heimilt að veiða hval
og baráttan við Grænfriðunga - og
einnig norsk stjórnvöld - hafin.
Steinar segir frá fundi í Alþjóða-
hvalveiðiráðinu í San Diego í Banda-
ríkjunum árið 1988. Þar er Kristján
Loftsson einnig meðal fullrúa,
kurteisari en aðrir hvalfangarar,
drekkur viskí á barnum á kostnað
Grænfriðunga og ræðir við leiðtoga
þeirra, David McTaggart, um einhvers
konar málamiðlun í hvalveiðideil-
unni. Viðræðunum lýkur á því að
Kristján segir, kurteis sem fyrr: „Nei,
við treystum ekki glæpamönnum.“
Steinar er hrifinn af tiltektum Is-
lendingsins og hann fréttir síðar að
Grænfriðungurinn hafi gengið niður-
brotinn maður út af barnum.
Bjargvætturinn Magnús
Magnús Guðmundsson kvikmynda-
gerðarmaður fær einnig góða dóma
hjá Steinari. Hann segir að Magnúsi
hafi með myndum sínum tekist að
afhjúpa delluna í hvalavinum og að
„kvikmyndamaðurinn frá Sögu-
eyjunni“ eigi einna stærstan þátt í að
Norðmenn hófu hvalveiðar að nýju.
Og þar kom á síðasta ári að norsk
stjórnvöld féllust á að heimila veiðar á
hrefnu. Sigurinn var í höfn. Steinar er
þó ekki sestur á lriðarstól. Hann á enn
marga mótstöðumenn. Einum þeirra
mætti hann nú á Þorláksmessu í Ala-
sundi. Steinar var þar að árita bók sína
þegar norskur hvalavinur veittist að
honum með höggum og spörkum.
Tvö rif brotnuðu í síðu „Norðlands-
kjaftsins“ en hvalavinurinn lá óvígur
eftir. Steinar er ekki vanur að draga af
sér þegar hann réttir frá sér hramminn.
Bastesen heitir þessi bátur, eða sami nafni og söguhetjan, Steinar Bastesen.
Steinar telur Magnús eiga stóran
þátt í að Norðmenn hófu hvalveiðar
á ný.
SKOÐUN OG VIÐGERÐIR GÚMMÍBÁTA.
EINNIG SKOÐUN OG VIÐGERÐ
BJARGBÚNINGA.
Gúmmíbátaþjónustan
Eyjaslóð 9 • Örfyrisey • sími 91-14010 • fax 91-624010.
13