Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1999, Blaðsíða 10
Bolungarvík
i
Þar sem allir
eru á línu
„Línan er það sem allt snýst um hér í Bolungarvík. Við
höldum að beitning sé sú atvinnugrein sem flestir stunda
orðið hér í bænum,“ sögðu félagarnir Elvar Stefánsson og
Jón Magnússon þegar Víkingurinn hitti þá þar sem þeir
voru að Ijúka beitningu seint um kvöld.
Þegar komið var til Bolungarvíkur var ekki mikla umferð
að sjá, enda kominn háttatími hjá mörgum. Við höfnina
vöktu Ijósin í skúrunum helst athygli og eins að verið var að
landa úr einum bát, Guðnýju ÍS. Eftir góðviðri dagana á
undan er hann farinn að blása nokkuð af suðvestri, það
spáir brælu.
Elvar og Jón segjast ætla að klára að beita þrátt fyrir að
þeir viti að það stefni í landlegu. Fyrir ekki svo löngum
tíma var lítið róið á línu frá Bolungarvík, en eftir því sem
smærri bátum hefur fjölgað hefur orðið umtalsverð breyting
þar á, enda verið að vinna í mörgum skúrum og þetta
Jón Magnússon segir ágætt að starfa við beitninguna.
Jón Pétursson skipstjóri segir aflann vera eðlilega mikinn eftir hreint
ævintýri næstu tvö ár undan.
kvöld, sem flest önnur, voru mörg bjóð beitt í Bolungarvík.
Á bryggjunni er Jón Pétursson skipstjóri á Guðnýju að
klára löndunina þegar okkur bar að garði. Hann segir fiskirí-
ið vera ágætt. „Það er orðið eðlilegt aftur eftir ótrúlega mik-
inn afla síðustu tvö ár, við erum með sjö tonn núna, sæmi-
legan afla," segir Jón.
Við förum að ræða saman um breytingar á útgerð. Frá
Bolungarvík eru nánast einungis gerðir út smábátar. „Fyrir
ekki svo mörgum árum þótti Guðný vera lítill bátur, þá voru
margir stórir og öflugir bátar gerðir út á línu við Djúp. Nú er
hún stærsti báturinn," sagði Jón.
Hann segir að þrátt fyrir að Guðný sé að verða hálfrar
i o
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR