Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1999, Qupperneq 21
Flest ungt fólk gerir sér hins vegar grein fyrir þeirri baráttu
sem orðið hefur í félagslegri stöðu yfirmanna, og halda að í
þeirra hlutskipti komi einungis langar fjarvistir frá heimilum og
fjölskyldum, en það hefur breyst samanborið við það sem
áður þekktist og haldið hefur verið lifandi í hugum fólks. Að
lokum, þá er rétt að geta þess, með vísan til þess sem sagði
hér að framan, að sú fyrirmynd sem íslenskir skipstjórnar-
menn á kaupskipaflotanum voru ungum mönnum hér áður
fyrr er horfin. Þar kemur tvennt til, annars vegar sú staðreynd
að hafnasvæðin þar sem skipin og þeir sem þeim sigldu voru
sýnileg, eru nú lokuð og yfirmennimir eru horfnir í sama
svipmót og aðrir, en þeir skáru sig úr vegna einkenndra
klæða.
Nú er fyrirmynd ungra manna og kvenna hvítflibbamenn
sem versla á peningamarkaði með afrakstur framleiðslu og
þjónustu, en ekki þeir sem afla þess afraksturs. ■
Verum með
Sjómannablaðið Víkingur vill benda lesendum sínum á
að blaðið á að vera opinn vettvangur fyrir greinaskrif,
birtingu Ijósmynda og annars efnis sem hæfir að hafa í
blaði sem Vikingnum. Við bendum sérstaklega á að
blaðamenn Víkingsins eru reiðubúnir að aðstoða við skrif
greina sem birtast eiga í blaðinu.
Ljósmyndir og annað efni er vel þegið. Eins mælumst
við til að sjómenn og aðrir áhugasamir hiki ekki við að
benda okkur á efni og eins það sem betur mætti fara.
Ritstjórn Víkingsins er í síma 511 2122.
Víkingurinn á sjávarútvegssýningunni
Fjöldi gesta
Sjómannablaðið Víkingur var með bás á
Sjávarútvegssýningunni i byrjun september. Fjöidi gesta
kom á básinn og voru oft líflegar og skemmtilegar um-
ræður um blaðið og annað sem sjómenn hafa áhuga á.
Þau sem unnu á básnum voru mjög ánægð með
viðtökurnar sem blaðið fékk og nokkur fjöldi áskrifenda
bættist í þann góða hóp sem fyrir var.
í tilefni sýningarinnar var blaðið prentað í stærra
upplagi, í þvi voru fleiri blaðsíður en venja er til og það
var allt litprentað. Þeir sem standa að blaðinu er vissir um
að Víkingurinn mun verða á næstu sýningum, ekki síst til
að gefa áskrifendum og öðrum lesendum færi á að ræða
við það fólk sem vinnur að útgáfu blaðsins.
Sjómannablaðið Víkingur
21