Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1999, Blaðsíða 22
Utan úr heimi
Hilmar Snorrason skipstjóri
Stórflutningaskipin farast
Tvisvar sinnum fleiri stórflutningaskip (bulkcarriers) fórust á
síðasta ári en árið þar á undan eða alls 13. Tólf þeirra voru
eldri en 20 ára en það þrettánda var smíðað árið 1996 og
sökk það við strendur Japans og með því 10 manns. Fjöldi
skipa yfir 500 brúttótonn sem fórust á árinu voru 96 en það
var sjö skipum fieira en 1997. Sjötíu þeirra voru eldri en 20
ára en í tonnum talið töpuðust einungis 547 þúsund tonn á
móti 740 þúsund tonnum árið á undan. Þessi umtalsverða
lækkun er rakin til fækkun skaða á olíuskipum.
Strandaglópar
Það var mikill léttir þegar lausn komst á mál skipverjanna á
togaranum Odinkova sem dvöldust um borð í skipi sínu í
Reykjavíkurhöfn í rúma 9 mánuði. Mikla samúð fengu þeir
meðal landsmanna, en því miður eru margir sjómenn um
heim allan sem svo er ástatt fyrir, og misjafnt hvernig leyst er
úr málum. íslensk stjórnvöld töldu sig ekki geta lagt fram
lausn á þessu máli en að lokum tókst að selja skipið. Nýlega
losnuðu þrír sjómenn, ættaðir frá Angóla, úr þriggja ára prís-
und í höfninni í Le Havre. Þeir voru skipverjar á flutningaskip-
inu Kifangondo, skráðu í Angóla og í eigu ríkisfyrirtæki, en
vélarbilun varð í skipinu og það dregið til hafnar í byrjun janú-
ar 1994. Almenn söfnun fór fram til að greiða flugfar fyrir
mennina heim en talið er að franska ríkið hafi greitt þeim þau
vangoldnu laun sem þeir áttu inn, samtals 74 þúsund dollara.
Samkvæmt upplýsingum frá ITF eru að meðaltali fimm sjó-
menn yfirgefnir af útgerðum sínum í hverjum mánuði og eina
von þeirra til að fá laun sín, sem ekki eru þó há, og flug heim
er að búa um sig um borð í skipunum þar til og ef tekst að
selja þau. Það er eflaust ekki langt í að við fáum fleiri erlenda
sjómenn í strand hér á landi því ef stéttarfélög sjómanna og
önnur verkalýðsfélög, er reyna að verja hagsmuni sjómanna
Þrettán stórflutningaskiþ fórust á síðasta ári.
22
Sjómannablaðið víkingur