Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Blaðsíða 77
Fyrirtækið Bræðurnir Ormsson í
Reykjavík hefur tekið i notkun nýjan
tölvustýrðan og afar nákvæman stillibekk
til stillingar á eldsneytisdælum í skip,
báta, vinnuvélar og bíla.
Nýi stillibekkurinn er fyrsti bekkurinn
hér á landi, og sá eini, sem er tölvustýrð-
ur að öllu leyti. Hægt er að kalla frarn
stillingu á hverri einustu dælu sem
Bosch hefur framleitt. Bekkurinn gefur
nákvæmlega upp hvaða árangri eigi að
ná eftir viðgerð og hverju hver strokkur
eigi að skila. Dælan fer því ekki frá fyrir-
tækinu fyrr en hún er komin í sama horf
og þegar hún kom frá framleiðanda.
Nútíma díselvélar krefjast mun meiri
áreiðanleika í stillingum en eldri vélar.
Mikið minna magn fer inn á hvern
strokk, sem krefst nákvæmni. Olían berst
á hljóðhraða frá dælunni og verður þetta
að gerast með innan við einnar gráðu ná-
kvæmni - stillibekkurinn hjá Bræðrunum
Ormsson á ekki í erfiðleikum með að
uppfylla þessi skilyrði.
Stillingarverkstæði fyrirtækisins hefur
verið endurbyggt með tilkomu bekksins
og danskur sérfræðingur frá Bosch verk-
smiðjunum dvaldi þar um tveggja mán-
aða skeið við þjálfun starfsmanna. Hjá
Bræðrunum Ormsson segja menn að
þeim sé full alvara þegar þeir halda því
frarn, að þar bjóðist besta þjónusta sem
hægt er að bjóða við stillingar á eldsneyt-
isdælum.
Fyrirtækið yfirfer og stillir allar gerðir
af eldsneytislokum. Einnig er til á lager
eða hægt að útvega varahluti í flestar
gerðir eldsneytisloka og dæla.
Láttu dæluna ganga
UM 30 MJÚKÍSKERFI í NOTKUN FRÁ1997
ÞYKKUR OG ÞUNNUR MJÚKÍS SAMTÍMIS - HÁMARKS HAGKVÆMNI!
FLO Ís-GEL ískerfin hafa reynst traust, afkastamikil og hagkvæm við kælingu og ísun á
öllu hráefni á sjó og í landi. Þar má nefna fiskmarkaði og fiskvinnsluhús, nóta-, línu-
og túnfiskskip, ferskfisk-, frysti- og rækjutogara, krabba- og humarbáta o.m.fl.
Sjáið ískerfi framtíðarinnar með eigin augum...
STG ÍSVÉLAR ® 587 6005 Fax 587 6004 WWW.Stg.is
Sjómannablaðið Víkingur - 77
Þjónustusíður